Dagur 3
Er ekki alveg að meika þetta núna.
Er yfir mig þreytt en svo spennt að ég get ekki sofnað. Hef ekkert að lesa... langar að kíkja á FB en nei ég geri það ekki.
Núna hugsa ég til Ace sem er að klára Ma-ritgerðina sína! Sendi henni baráttukveðjur héðan af klakanum... og risa knús!
Hef svo sem ekkert að segja. Var lengi í vinnunni í dag. Alveg lengi lengi lengi. Við KS ræddum saman í 45 mín fyrir svefninn. Ég sagði honum hvað ég hlakka mest til að gera um jólin (vera a náttfötunum og lesa endalaust mikið) hann mér hvað hann hlakkar til (vera með fjölskyldunni.. ohhh.) Fékk sting í hjartað og tár í augun. Hann er svo dásamlega sætur og góður þessi drengur. Bjarki Freyr vill hins vegar ekki sjá mig - bara pabba sinn og hefur gert í nokkra mánuði núna. Pabbi hans má bara lesa, bara bursta og hann leikur sér bara við hann. Nema þegar hann er ekki - þá má ég. Væri nett sár nema ég átti hann fyrstu 3 árin og nýt þess núna að hafa tíma með KS. Þetta er auðvitað bara sjálfselskulegt móðurblaður en það er á svona stundum sem það er dásamlegt að eiga tvö börn. Eitt á mann :-)
30. nóvember 2009
29. nóvember 2009
Dagur 2
Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook er alls ekki slæmt.
Veit samt ekki hvort það hefði breytt einhverju í dag.
Fór út á sleða með Bf, í heimsókn til ma og pa en stærstur hluti fór í að fara yfir próf. Þvílíkir montgleðistatusar sem ég hefði getað haft.
Búin að fara yfir nokkur próf og fara með BF út í snjóinn
Ahhh kaffi með sírópi hjá ma og pa nice
Gengur svaka vel að fara yfir próf.
Kvöldið fer í abstraktgerð.
Brrrr kalt - en gott að fá snjóinn.

28. nóvember 2009
Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að sitja við tölvuna meirihluta dags og brasast í ritgerðinni minni. Copy/paste-a eins og mér væri borgað fyrir það og stundum er það delete takkinn sem tekur völdin. Delete delete. Nútímatækni er dásamleg. Maður heyrir að hnitmiðaður texti sé málið - styttri ritgerðir en ekki langlokur. Enda nennir engin að lesa svoleiðis..hmmm. Mínar ca 50 bls. virka því kannski ekki sem stór pakki en þvílíka vinnan sem er að baki.. ó já. Þannig að það er barasta núna lokahnykkurinn eftir - sem ég ætla ekki að gera lítið úr. Ég á enn eftir að fá athugasemdir frá kennurunum og ef til vill er meira eftir en ég vona.
GFS er sannfærður um að ég sé löngu búin og sé núna bara að skemma allt saman hahaha. En nei nei nei alltaf smá smá smá eftir.

Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukkan bara rétt að ganga 10 og ég ekkert búin að kíkja á Feisið. Ég viðurkenni þó að hafa hugsað um það. Hver ætli sé vaknaður? Hvaða foreldrar eru að bilast yfir barnaefninu? Ætli einhver sé byrjaður að læra eins og ég? En nei ég veit ekkert og það er ágætt.
Í Fréttablaðinu í dag er skilgreiningar á hópum fólks á feisinu. Svoldið skemmtó enda er það eitthvað sem maður spáir stundum í. Fólk sem er svo vibbaógeðsduglegt að maður bara deyr úr minnimáttarkennd við að lesa statusana.. fólkið sem fer í ræktina 70 sinnum í viku og fólkið sem þrífur og bakar allan liðlangan. Þetta er allt svo frábært finnst mér og ótrúlega hvetjandi á vissan hátt. Nema auðvitað þegar ég fær minnimáttarkennd, en ég hugsa stundum.. já þau setja bara svona inn á fb þegar eitthvað gerist en þess á milli gerist ekkert hjá þeim frekar en hjá mér múhahahhaa.
Ég var að spá í hvaða grúbbu ég er. Veit það ekki en það sem ég dýrka við feisið er Like-ið. Og myndirnar, gömlu og nýju, sögurnar, skemmtilegu statusarnir og samskiptin. Ætli það sé ekki bara best að vera brot af öllu? Smá mont stundum, smá ádeila stundum, smá nöldur stundum, smá leiði stundum, smá gleði oftar, barnastatusarnir vekja oftast góð viðbrögð og svo er það statusarnir klassísku um dugnað minn í ritgerðarsmíð og hversu frábæran eiginmann og fjölsk. ég á. Hahaha.. æðislega bilað eitthvað.
Ok útrás lokið. Ritgerðarsmíð haldið áfram.

27. nóvember 2009
Án facebook í fimm daga
þar sem ég hef svo sjúklega mikið að gera hef ég ákveðið að fara í sjálfskipað fb bann. Fimm dagar án þess að fara inn á FB. Ég er nefnilega frekar félagslega einangruð í ritgerðarvinnu og þá er fb oft mín einasta tenging við heiminn - þarna úti. En ég hef ákveðið að nú þurfi ég að sætta mig við einangrunina og nýta mér hana. Hætta að fara á FB og vera sjúklega dugleg að vinna í ritgerðinni sem ég ætlað að klára fyrr en síðar. Já reyndar bara næstu daga mun ég klára. Skil bara ekki hvað tíminn líður hratt... það er ekki fair.
Ok here goes... fimm dagar... sem byrja á morgun... og ég mun fá útrás mína hér.. like old days.
Jeiii... punktur punktur punktur.

22. nóvember 2009
Meistara-taktar
Önnur helgi að líða. Þessi fór í brjálaða MA-ritgerðartörn. Ég hugsa ekki lengur um mig, er í flís- og jogging fötum, sæki í sykur og sætindi, sef lítið og illa og er haugur.
Ég þakka mínum sæla fyrir dásamlegan eiginmann sem hvetur mig áfram en spyr þó annað slagið - hvenær fæ ég þig svo aftur? Svoldið krúttlegt. Krúttlegra en.. þegar þú ert svo búin með ritgerðina geturðu einbeitt þér meira að heimilisstörfum (sagt í uppbyggjandi bjartsýnistón). Broskall. Þetta komment eitt og sér gæti orðið til þess að ég útskrifist ekki fyrr en í júní. Kaldhæðinn blikkkall.
En nei - fyrir jól skal skilað.
En án gríns þá er joggaraflís outfittið að valda mér áhyggjum. Mikið finnst mér sorglegt þegar fallegt fólk í blóma lífsin breytist í vibbaógeðs-jogging fríkur oft í kringum próf og oft á bókhlöðunni. Maður alveg fær sting í hjartað og hugsar: heldur þessi manneskja að henni gangi betur að læra ef hún gerir sig eins hörmulega og mögulegt er?
En ég prófaði í dag (hef alveg prófað að vera haugur en joggarinn hefur haldið sig að mestu heima og inni í skáp). Leit ekki í spegil og hljóp upp í Gimli með hettu á höfði og svo fór ég ekkert út - nema út í bíl. Ég er ekki frá því að mér hafi gengið ögn betur og blóta því þessum fordómum mínum í garð joggarans. Ef ég hefði prófað þetta fyrr? Til dæmis bara í MR - þá væri ég kannski búin með þetta MA núna. Væri hamingjusöm í joggaranum.
Næst eru það náttbuxurnar og ég klára fyrir lok nóv.

5. nóvember 2009
Endalaus pirringur
Við Anna sátum í kaffi í Hámu nýlega og vorum eins og skets úr Spaugstofunni. Blótuðum siðlausum auðmönnum og kjarklausum stjórnmálamönnum í sand og ösku.
Mér blöskrar umræðan á Alþingi og oft sú orðræða sem þar fer fram. Mikið svakalega er ég þreytt á því að velta fyrir mér hver sé i hvaða liði og þreytt á að hlusta á stjórnmálamenn draga fram eldgamlar syndir. Við vitum að xD og xB eiga stóran þátt í hruni Íslands. Sumir þeirra hafa meira að segja viðurkennt það. Ok það er glatað og fúlt að dómgreindarleysi stjórnarmanna og margra annarra hér á landi hafi verið svona ótrúlega mikið. Sala bankanna markar upphafið að endinum að mínu mati. Það er ekki hægt að benda á einn en það er hægt að benda á hópa og það er hægt að krefjast þess að þeir sem báru ábyrgð sýni ábyrgð og fái dóm. Ekki dóm götunnar. Dóm réttlætis.
En við þetta vil ég bæta að eins og mér leiðist að hlusta á xD og xB fría sig ábyrgð þá er gjörsamlega ömurlegt þegar xS og VG velta sér upp úr forarpytti fortíðar í stað þess að byggja upp traust og horfa til framtíðar. Þeirra verkefni er að halda áfram, hvetja og sameina þjóðina en ekki halda þjóðinni fanginni í skulda-skjaldborg. Koma með lausnir og nýjar leiðir. Leysa vanda og vanda til verka. Djöf.. nenni ég ekki flokka ógeðs pólitík lengur! Stop it og vinnið ykkar verkefni - látum dómskerfið um að dæma menn. Þjóðin er ef til vill gleymin en hún er aðallega þreytt á aðgerðarleysi. Ef þið standið ykkur vel þá þurfið þið ekki að taka þátt í skítkasti og hörmulegheitum á ALÞINGI. Rise above it!
Mig verkjar í hausinn við að hlusta á fréttir og lesa blogg. Ég hef reynt að kúpla mig frá fréttum og set frekar góða tónlist á og tek til. Það er ALLT skemmtilegra.
Ég er hrædd um að í ljós komi að stjórnmálamenn og embættismenn hafi brugðist trausti okkar. Eins hafi auðmenn, útrásarvíkingar, bankamenn og aðrir farið glæfralega með fé og hegðað sér ósiðlega - en er hægt að dæma þá? Var eitthvað saknæmt í gangi? Ég eiginlega vona það því án réttlætis og án dóma er þjóðin týnd í samsæriskenningum og of upptekin við að spá í - í hvaða liði hver er í og hver gerði hvað hvenær - til að halda áfram með lífið og koma Íslandi á réttan kjöl.
Ég trúi því enn að við eigum von. Ég veit að það er fullt af frábæru fólki að láta hugmyndir verða að veruleika, nýsköpun eða sjálfsbjargarviðleitni. Skiptir ekki máli - við megum og eigum ekki að gefast upp. Við skuldum börnum okkar það.
Þá segi ég - því þó að ég vilji halda því fram að ég hafi ekki verið að tapa mér í gullæðinu þá skulda ég börnunum mínum samt að halda áfram. Hvað græða þau á því að ég grenji yfir óréttlæti heimsins og heimsku ráðamanna? Samt grenja ég og væli annað slagið og mun gera áfram.
En ég mun líka gleðjast og halda áfram því það er ekkert annað í boði.

1. nóvember 2009
Klapp á bak
Þessi vika var alveg hreint mögnuð. Ég skipulagði og sat stjórnarfund og einnig teymisfund vegna rannsóknarinnar. Ég sá um að innkaup á vörum og skreytingum vegna opnunarteitis, bjó til veitingar, skreytti salinn og gekk frá eftir opnun. Ég var ásamt kennara mínum með erindi á Þjóðarspeglinum. Þessa daga sendi ég einnig tölvupósta og vann í ýmsum málum sem og sendi Ma ritgerðina mína til eins kennara míns. Nú... 5 daga af síðustu 7 hefur GFS verið í útlöndum. KS fór norður í 2 daga og það þurfti að fara með og sækja hann á flugvöllinn. Þetta heppnaðist allt nokkuð vel þó að sumt hafi alveg mátt ganga aðeins betur (til dæmis var erfitt að áætla magn í boðið.. og það var smá of mikið af grænmeti í boðinu: note to self - fólk vill frekar gotterí en grænmeti). Heimilið er líka í góðu ástandi en ég þakka það góðviljuðum vinum og fjölskyldu sem hafa boðið okkur til sín í mat og heimsóknir. Móðir mín og faðir hjálpuðu mér á erfiðustu álagspunktunum og þau fá svo sannarlega líka klapp á bak og mínar bestu þakkir. Og síðast en ekki síst kíktum við Þóra á Ingó á Ólíver og ég þakka henni fyrir dásamlegar samverustundir og stuðning!
Þetta er alveg brútal mikið mont blogg um minn eigin dugnað en þar sem það er ekki oft sem ég sýni þessa ofurduglegu og metnaðargjörnu hlið þá varð ég að bóka þetta hér mér til minnis um að allt er hægt. Meira að segja ég get verið mansísk ef ég ætla mér það.
Plús.. hef ég lesið 160 bls. í bókinni Sex grunaðir en ég er með hana í 2ja vikna láni og á að skila í næstu viku. Ég skal klára og geri auðvitað allt til að forðast sekt. Bókin er 640 bls. ca.
Stuuuuuð og stemning!

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
▼
2009
(42)
-
▼
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
▼
nóvember
(8)
-
►
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
►
desember
(14)