22. september 2009

Hvurslags eiginlega rugl er þetta?

Er að reyna að tala ekki eða hugsa ekki um DO. En það reynist mér næsta ómögulegt. Það eina sem ég get gert er að þakka Guði fyrir að vinna ekki lengur á Mogganum. Það hefði verið mér of erfitt að selja auglýsingar í flokksblað og sérstaklega undir stjórn DO.

He who must not be named.

Þetta er svona eins og með smábörnin. Maður vill ekki að þau hegði sér illa - segi kúkapiss og fleira þegar ekki á við - en maður vill heldur ekki veita þeim og ósiðunum of mikla athygli. Maður vonar að þetta hverfi bara einn daginn... Ignore ignore ignore.

21. september 2009

Kristilegt uppeldi

Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi líka. Við reyndum saman. Við fórum nokkrum sinnum og stundum gekk alveg ágætlega en oftast var KS ekki að fíla þetta. Það var töff þegar Pétur Ben stjórnaði tónlistinni og þá var KS sáttur. Það er samt eitthvað við barnamessurnar nú til dags eða ef til vill hefur þetta alltaf verið svona en gestir eru 90% stilltar og prúðar stúlkur.

Kannski var þetta meira fyrir mig gert enda tengi ég góðar minningar og tilfinningar við það að fara í barnamessu. Ró og friður og ljúfur söngur. Ég ætla ekki einu sinni að útskýra hvernig KS bregst við kristilegum boðskap í dag... Hann var samt mjög sáttur við sumarnámskeiðið hjá KFUM&K þannig að ef til vill er von.

Ég ræddi við BF um barnamessu og við ákváðum að skella okkur í gær. Drösluðumst áfram í rigningu og roki en það er mjög stutt að fara. Sérstaklega núna þegar barnamessan fer fram í nýja safnaðarheimilinu. BF leist ekkert á þetta en sat nokkuð góður fyrstu mín. Svo vildi hann bara fara heim. Minnti mig á þegar við fórum með KS á Línu og hann talaði mjög hátt um að hann vildi fara heim. HEIM HEIM HEIM.... Ég reyndi að díla við hann. En ákvað að pína hann ekki og byrjaði að klæða hann í úlpu. Þá kom púki í kauða og hann sagði bara.. Kúkapiss kúkapiss... og ég bara shit shit... og dreif okkur út við óminn af tikkitikkitakk. Nei takk.

Spurning hvort að barnamessur séu ekki bara fyrir stelpur.

19. september 2009

Hjóladagur fjölskyldunnar
var haldinn hátíðlegur eins og alltaf hér á Ásbraut. Þar sem er hreyfing og fjölskyldufjör - þar erum við.
Við pumpuðum í dekk og rótuðum eftir hjólahjálmum og þutum af stað. Eftir kortershjólatúr ákváðum við að taka smá pásu. Þá hringdi ég í pabba..
Pabbi: hvar eruð þið?
me: Við erum hérna að hjóla.
Pa: Já öll fjölskyldan bara.
Ég: Já já öll fjögur ;-)
Pa: Það er aldeilis... (áherslupása).. heilbrigt!
Svoldið eins og þetta kæmi honum á óvart. Eins og þruma úr heiðskíru.
Hann komst svo að því síðar að við vorum í pásu á KFC á N1 eftir nkl. 15 mín hjólatúr þar sem 7 mín. fóru í að reiða hjólin. Pásan endaði svo þannig að við vorum sótt þar sem KS var að verða of seinn í afmæli og úti var úrhellisrigning. Maður lætur nú ekki bjóða sér hvað sem er.

Við pabbi og BF fórum á Upp og skemmtum okkur vel þar. Svo fórum við heim og BF dundaði sér við hljóðlátan leik og ég las og las og las. Dásamlegt og heilbrigt yes indeed.

17. september 2009

Skemmtilegur leikur
Við fjölsk. þolum ekki þegar bílar leggja upp á gangstétt. Oftast risastórir milljónajeppar... en ekki alltaf. Skiptir ekki máli hvað bíllinn kostar - hrokinn og tillitsleysið er algjört þegar menn leggja svona í veg fyrir gangandi vegfarendur. Til að stytta sér aðeins leið!
Háskóli Íslands þolir ekki þennan hroka. Í byrjun annar voru nokkrir ansi djarfir í að leggja á gangstéttir í kringum Odda. Það gladdi mitt litla smáborgarahjarta þegar ég sá að rúðuþurrkum þessara bíla hafði verið ýtt upp (við gerum þetta líka stundum - kreisí jebbs). En það var gengið enn lengra og búið að líma með teipi krossa yfir allar rúður. Meeeen það var fyndið.

Svona hefur maður skrítinn húmor. En núna leggur enginn þarna og það eru reyndar líka komnar keilur og eitthvað en ég er viss um að þessir örfáu letihaugar hafi lært sína lexíu :-) Vonandi læra þeir eitthvað fleira sniðugt líka í HÍ.

16. september 2009

Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu.
Super ofurskemmtilegi playlistinn minn gerir kraftaverk á gráum rigningar haustdegi.
Það er Lady Gaga, Katy Perry, Britney og Justin, Regina, Múgsefjun og Jason Mraz. Allt mitt uppáhalds þessa dagana.

Best að nýta kraftinn og halda áfram.

10. september 2009

Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín uppáhaldsblogg en þó verð ég að viðurkenna að feisið hefur náð að rústa daglegum netrúnti mínum. Það er ekki eins að setja eitthvað í status eins og að skrifa heilt blogg. Munurinn er augljóslega sá að á feisinu er maður hluti af samfélagi sem "líkar" við það sem maður er að segja eða gera og það er notalegt og nice. En ég hef alltaf sagt að ég bloggi fyrst og fremst fyrir mig. Til að hafa skráð þetta helsta sem ég er að hugsa um og það sem ég er að gera. Núna ætla ég að halda áfram þar sem frá var horfið.

Like?

Blog Archive

Um mig