EF til vill til lækning við ógeðis ógeð hnetuofnæminu!!!
Fæ tár í augun og sting í hjartað við tilhugsunina.
Sjá hér.
20. febrúar 2009
19. febrúar 2009
Loksins fær íslenska þjóðin eitthvað annað að hugsa um.
Nú getum við öll beint einægri reiði okkar að idol-dómaranum sem var líklegast í dópi fyrir ári síðan.
Æi en hann sagði nú viðtali við DV að hann hefði kannski átt að sleppa þessu.
Ég er ekkert svo fúl út í hann og er enn ótrúlega fáránlega spennt fyrir idol-keppninni.
Skil ekki hvað alþingismenn eru að blaðra niðri á þingi um nýjar leiðir í kosningum. Einstaklings eða flokka kjör? Þetta er svo augljóst - höfum idol-keppni og sá sem sigrar verður forsætisráðherra. Þeir sem detta fyrst út verða í stjórnarandstöðu og svo er hægt að vera með Wild-card hóp og einhverjir heppnir geta komist áfram þannig. Kosið verður um framkomu, útlit, framkvæmdagleði, ákvörðunartökuhæfni og hugmyndaauðgi.
Sver það - við eyddum 10 vikum plús í júró í fyrra. Eyðum smá púðri í framtíð okkar.
X-IDOL.

18. febrúar 2009
Hádegismatur er uppáhalds.
Þegar ég er heima að læra eða einhvers staðar annars staðar þá finnst mér alltaf jafn hvetjandi að hugsa um hádegismat. Best er að fara með einhverju skemmtilegum í lunch. En ég get líka alveg verið ein með sjálfri mér og borðað brauð með osti. Elska það alveg.
Svona er að vera einmana námsmaður....

11. febrúar 2009
Lífið er of stutt
Ég hitti yndislega vinkonu mína í gær. Við vorum sammála um að lífið væri of stutt.
Vegna þess hversu takmarkaðan tíma við höfum á þessari jörð er mikilvægt að nýta tímann vel.
Eftir efnahagshrunið hef ég átt í innri baráttu. Á ég að vera ofboðslega reið og leið? Ef ég er það ekki, er ég þá að gefa þeim sem einhverja sök eiga á hvernig fór of góðan díl? Ég get pirrað mig út í hið óendanlega á ómerkilegum rifrildum ráðamanna á milli og á óforskömmuðum útrásarvíkingum. Þetta er glatað og ömurlegt en ég vil heldur horfa fram á veginn. Ég er bara þannig. Meika ekki meir af leiðindunum. Held alveg áfram að pirra mig, rífast og skammast en ég held að mikilvægt sé að spýta í lófana og fara að vinna í því að byggja upp nýtt og betra samfélag.

8. febrúar 2009
Nenni ekki að blogga um Davíð. Mikið væri ég til í einhvers konar fjölmiðlabann á umræður um hann blessaðan.
Hins vegar hef ég endalaust úthald til að blogga um mig og mína hehe. Síðustu daga hef ég hvatt þá sem ég hef talað við að mæta í nýja safnaðarheimilið okkar hér í Kópavogi og sjá Skoppu og Skrítlu. Alveg svaka spennt. Búin að segja Bjarka Frey sem ískraði af spenningi og KS sem skalf af hryllingi af tilhugsunina: Öll fjölskyldan lagði af stað í morgun en fljótlega sáum við að ekkert var um að vera í Safnó. Þá fórum við í fjölskyldumessu í staðinn en vorum enn að vonast til að sjá SogS. Í staðinn fengum við að hlusta á fallegan söng en þegar ræðumaður úr Gídeón félagi (örugglega fínt félag en var ekki að höfða til gauranna minna) hóf upp raust sína fengu bræðurnir alveg nóg og við yfirgáfum kirkjuna. Þetta var bara ekki alveg að gera sig...
Sem BETuR fer mætti enginn af þeim sem ég var búin að nefna þetta við!
En verra var að KS fékk boð í afmæli og ég hélt að það væri um næstu helgi en það var í dag og hann missti af því. Það er alveg ömurlegt þegar maður er 6 ára. Hann fór samt í keilu með hetjunni sinni honum Snorra og það er vonandi sárabót sem hann getur huggað sig við.
Hann gladdist einnig mjög yfir fréttum dagsins. Ekki um Davíð - hann var nú hundfúll yfir þeim. En glaður var hann að frétta af frænda sínum sem ákveðið hefur að stefna á 4. sæti í Reykjavík í prófkjöri D. Hann vill gefa honum nokkur góð ráð: Reka Davíð en ekki fólkið í landinu, bjarga dýrum í útrýmingarhættu (hann efast um hvalveiðar), gera Íslendinga umhverfisvænni - t.d. fá bíla sem menga ekki eins mikið og segja öllum að hætta að vera sjálfselsk!
Hann heyrði í frænda sínum áðan og byrjaði samtalið svona: Hæ - það er ekki að ástæðulausu sem ég hringi... svo byrjaði samtal um framboð og helstu áhersluatriði.
Ég get ekki annað en dáðst að bróður mínum fyrir að fara í þennan slag og vona innilega að honum gangi sem best.
Þórlind á þing! :-)

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
▼
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
►
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
►
desember
(14)