11. janúar 2009

Veit ekki af hverju en mér finnst tíminn líða svo hratt. Ég er líka alltaf að segja eitthvað dularfullt eins og- bráðum fer nú að vora.. sumarið er rétt handan við hornið.. bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Þrjátíu ára að verða áttræð.

IH barði mig næstum í gær þegar fór að tala um frostið í næstu viku. Horfði á mig og bara - ERTU Í ALVÖRU AÐ TALA UM VEÐRIÐ VIÐ MIG??? Mjög scary hún IH vinkona mín en hún hefur náttúrlega búið svo lengi í NY að hún kann bara ekki lengur að meta íslenskt tjitttjatt. Anna aftur á móti skilur mikilvægi þess að ræða um veðrið. Heyrði í henni í dag og eftir 5 mín. samtal fórum við að ræða af mikilli alvöru og innlifun um veðurspána og mun á veðri í Dene og Íslandi og mun á veðri á Ak og Rey. Þetta er lífið.
Þrítugar að verða áttræðar.

Skrapp á ústölur og keypti snilldar skó - létta gönguskó. Nú get ég labbað í öllu veðri og vindum. Þarf ekki að fylgjast eins vel með veðurspánni eða hvað?

6. janúar 2009

Um mæður

Það eru nokkrir hlutir sem best er að varast að ræða við nýbakaðar mæður. Eða allavega að ræða með varúð.
Auðvitað fyrst og fremst brjóstagjöfin. Ég held, eftir töluverða reynslu og marga klukkustunda - ef ekki sólarhringa umræður, er ljóst að hver og einn verður að gera eins og hentar. Maður lærir að segja já ok og sýna engin svipbrigði þegar talað er um brjóstagjöf - sama hvað er. Mér finnst í alvöru ekki koma mér við hvort að kona sé með barnið á brjósti í þrjá eða tíu mán. Það virðist þó vera að þetta sé eitt af þessum eldheitu umræðum þar sem allir vita best og vilja tjá sig um það endalaust. Konur eiga heiður skilinn fyrir að ganga með börn, fæða þau og klæða. Karlmenn eiga líka að fá plús fyrir að styðja konu og barn.

Annað eldheitt og eldfimt umræðuefni kvenna er snuddunotkun. Hvenær er barnið með snuð og hvenær ekki? Hvenær á að hætta með snuð og ef barnið er ekki með snuð - hvað þá? Geta börn verið án þess? Skemmir snuð ekki tennur? Þetta er alveg ofboðslega vandasamt.. að koma barni upp á það að nota snuð og taka snuðið af barninu á hárréttum tíma. Tek eftir því að foreldrar fá komment eins: Já er hún/hann ENN með snuð? Eins og barnið sé að drekka kókblandaðan vodka úr pela. Já og guð forði okkur frá pelaumræðunni. Hef sjálf dottið í það að hneykslast á pelanotkun barna. Það var reyndar úti í útlöndum þegar ég passaði gulldrengina sem fengu kakó í pela 2x á dag. Hitað 1x á dag. Þeir voru fjögurra og sex ára þá.

Þessi viðkvæmu og merkilegu tímamót virðast snerta mæður svo á þeim sér. Hrukkunum fjölgar og baugarnir myndast. GOD af hverju get ég ekki látið barnið hætta þessu og hinu.. Jeminn þetta er svo glatað...

Þessi umræða fer ekki eins í mig núna og þegar KS var lítill. Ég var ung og áhrifagjörn. Núna er ég tveggja barna móðir með reynslu. Auðvitað hugsa ég hitt og þetta - kannski ekkert minna en þá. En ég er aðeins rólegri. Eins og faðir minn margbenti mér á áður.. hvaða fullorðin manneskja er enn með snuð, bleyju, getur ekki talað og gengið (nema fötluð sé). Þetta er hárrétt.

Bjarki Freyr er að hætta með bleyju. Hann er að verða 2ja og hálfs þannig að þetta er alveg tímabært (hehe - samanber umræðan - hvænær Á barn að hætta með bleyju..). Nú þegar móðirin er reynslunni ríkari er hún líka afslappaðri. Ekki skemmir að þvottavél er í húsinu (Sem var ekki þegar KS var að þessu sama) og mamman hefur um annað hugsa. Svo hefur mamman pabbann sér við hlið sem er snillingur í öllu svona. Tjillaður og umburðarlyndur, hvetjandi og stuðningsríkur. Hann hefur líka hemil á mér og setur mjög oft í þvottavélina. Einnig á ég snillinga vinkonur sem gefa góð ráð og stuðning. Held það sé gott að þekkja sjálfan sig og leita þeirra bjarga sem til eru í nánasta umhverfi. Stundum þurfa mömmur smá pepp og oft eru það vinkonurnar sem ná að láta mömmurnar (mig) hlusta. Heilbrigð skynsemi heitir það víst.

Bottom line: Það borgar sig að slaka á - anda inn og anda út. Njóta þess að vera með barninu og reyna ekki alltaf að breyta og bæta. Auðvitað hefur maður metnað en metnaðurinn verður að hafa einhver mörk. Geðheilsa fjölskyldunnar hefur alltaf forgang. Þegar verið er að taka svona ákvarðanir er þetta mjög mikið í höndum okkar foreldranna. Þannig að ábyrgðin er okkar - win or lose. Úff... þetta er endalaus yndisleg barátta!

4. janúar 2009

1. janúar 2009






Útskrifaður af leikskóla í maí. Við tók langt og viðburðarríkt sumar.
Gleðilegt nýtt ár!

Blog Archive

Um mig