1. nóvember 2009

Klapp á bak

Þessi vika var alveg hreint mögnuð. Ég skipulagði og sat stjórnarfund og einnig teymisfund vegna rannsóknarinnar. Ég sá um að innkaup á vörum og skreytingum vegna opnunarteitis, bjó til veitingar, skreytti salinn og gekk frá eftir opnun. Ég var ásamt kennara mínum með erindi á Þjóðarspeglinum. Þessa daga sendi ég einnig tölvupósta og vann í ýmsum málum sem og sendi Ma ritgerðina mína til eins kennara míns. Nú... 5 daga af síðustu 7 hefur GFS verið í útlöndum. KS fór norður í 2 daga og það þurfti að fara með og sækja hann á flugvöllinn. Þetta heppnaðist allt nokkuð vel þó að sumt hafi alveg mátt ganga aðeins betur (til dæmis var erfitt að áætla magn í boðið.. og það var smá of mikið af grænmeti í boðinu: note to self - fólk vill frekar gotterí en grænmeti). Heimilið er líka í góðu ástandi en ég þakka það góðviljuðum vinum og fjölskyldu sem hafa boðið okkur til sín í mat og heimsóknir. Móðir mín og faðir hjálpuðu mér á erfiðustu álagspunktunum og þau fá svo sannarlega líka klapp á bak og mínar bestu þakkir. Og síðast en ekki síst kíktum við Þóra á Ingó á Ólíver og ég þakka henni fyrir dásamlegar samverustundir og stuðning!
Þetta er alveg brútal mikið mont blogg um minn eigin dugnað en þar sem það er ekki oft sem ég sýni þessa ofurduglegu og metnaðargjörnu hlið þá varð ég að bóka þetta hér mér til minnis um að allt er hægt. Meira að segja ég get verið mansísk ef ég ætla mér það.
Plús.. hef ég lesið 160 bls. í bókinni Sex grunaðir en ég er með hana í 2ja vikna láni og á að skila í næstu viku. Ég skal klára og geri auðvitað allt til að forðast sekt. Bókin er 640 bls. ca.
Stuuuuuð og stemning!

1 comments:

Nafnlaus sagði...

Thu matt sko vera stolt af ther GB, thu ert buin ad vera rosalega dugleg, algjor hetja knus

Blog Archive

Um mig