5. nóvember 2009

Endalaus pirringur

Við Anna sátum í kaffi í Hámu nýlega og vorum eins og skets úr Spaugstofunni. Blótuðum siðlausum auðmönnum og kjarklausum stjórnmálamönnum í sand og ösku.

Mér blöskrar umræðan á Alþingi og oft sú orðræða sem þar fer fram. Mikið svakalega er ég þreytt á því að velta fyrir mér hver sé i hvaða liði og þreytt á að hlusta á stjórnmálamenn draga fram eldgamlar syndir. Við vitum að xD og xB eiga stóran þátt í hruni Íslands. Sumir þeirra hafa meira að segja viðurkennt það. Ok það er glatað og fúlt að dómgreindarleysi stjórnarmanna og margra annarra hér á landi hafi verið svona ótrúlega mikið. Sala bankanna markar upphafið að endinum að mínu mati. Það er ekki hægt að benda á einn en það er hægt að benda á hópa og það er hægt að krefjast þess að þeir sem báru ábyrgð sýni ábyrgð og fái dóm. Ekki dóm götunnar. Dóm réttlætis.
En við þetta vil ég bæta að eins og mér leiðist að hlusta á xD og xB fría sig ábyrgð þá er gjörsamlega ömurlegt þegar xS og VG velta sér upp úr forarpytti fortíðar í stað þess að byggja upp traust og horfa til framtíðar. Þeirra verkefni er að halda áfram, hvetja og sameina þjóðina en ekki halda þjóðinni fanginni í skulda-skjaldborg. Koma með lausnir og nýjar leiðir. Leysa vanda og vanda til verka. Djöf.. nenni ég ekki flokka ógeðs pólitík lengur! Stop it og vinnið ykkar verkefni - látum dómskerfið um að dæma menn. Þjóðin er ef til vill gleymin en hún er aðallega þreytt á aðgerðarleysi. Ef þið standið ykkur vel þá þurfið þið ekki að taka þátt í skítkasti og hörmulegheitum á ALÞINGI. Rise above it!

Mig verkjar í hausinn við að hlusta á fréttir og lesa blogg. Ég hef reynt að kúpla mig frá fréttum og set frekar góða tónlist á og tek til. Það er ALLT skemmtilegra.

Ég er hrædd um að í ljós komi að stjórnmálamenn og embættismenn hafi brugðist trausti okkar. Eins hafi auðmenn, útrásarvíkingar, bankamenn og aðrir farið glæfralega með fé og hegðað sér ósiðlega - en er hægt að dæma þá? Var eitthvað saknæmt í gangi? Ég eiginlega vona það því án réttlætis og án dóma er þjóðin týnd í samsæriskenningum og of upptekin við að spá í - í hvaða liði hver er í og hver gerði hvað hvenær - til að halda áfram með lífið og koma Íslandi á réttan kjöl.

Ég trúi því enn að við eigum von. Ég veit að það er fullt af frábæru fólki að láta hugmyndir verða að veruleika, nýsköpun eða sjálfsbjargarviðleitni. Skiptir ekki máli - við megum og eigum ekki að gefast upp. Við skuldum börnum okkar það.

Þá segi ég - því þó að ég vilji halda því fram að ég hafi ekki verið að tapa mér í gullæðinu þá skulda ég börnunum mínum samt að halda áfram. Hvað græða þau á því að ég grenji yfir óréttlæti heimsins og heimsku ráðamanna? Samt grenja ég og væli annað slagið og mun gera áfram.
En ég mun líka gleðjast og halda áfram því það er ekkert annað í boði.

0 comments:

Blog Archive

Um mig