Veikindavika
Í upphafi vikunnar talaði ég um að ég hlakkaði til að hugsa um lasarusana mína og líkti þeim við heit, mjúk teppi. Þetta var alveg ágætt til að byrja með en þegar varð sjálf veik og þeir áfram veikir breyttist aðeins stemningin. Einn ljúfur dagur varð að fimm erfiðum. Nú er áttundi eða níundi í veikindum og ég í raun hætt að telja. Strákarnir bilaðir á mér og á hvor öðrum, ég biluð á inniverunni og GFS bilaður á kvartinu í mér...
En við erum öll þrjú að hressast og næsta vika verður heilbrigð og góð. Veit samt ekki hvað ég var að spá þegar ég lýsti yfir tilhlökkun minni yfir að vera heima með veikum börnum og þegar ég líkti þeim við heit mjúk teppi - kreisí ég.
Ég missti af saumó með skemmtilegum konum sem ég var búin að hlakka mikið til að fara í. Einnig frestaðist langþráð stelpusumarbústaðaferð (vegna veðurs ekki mín samt) og strákarnir ætluðu norður en fóru ekki (vegna veðurs en við vorum fegin því þeir voru ekki alveg orðnir hressir).
Sárabót í máli var að ég fékk Krua Thai mat, fékk að sökkva mér í meistarastykkið I heart NY (ég spái Booker ef ekki nóbel fyrir þessa snilld um stúlku sem leitar að ást í NY eftir erfiðan skilnað..) en síðast en ekki síst skúraði Gummi öll gólf á heimilinu! Það toppar án efa allt. Það þarf svo sem ekkert voða mikið til að gleðja mann á þessum síðustu og verstu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
►
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
►
desember
(14)
2 comments:
Mig langar pínu í meira blogg.
Kv. Gráðug... og vantar afþreyingu.
vesgú :-)
Sendu inn athugasemd