Uppeldi í annað sinn og byssur
Ég er tveggja barna móðir. Eldri sonur minn er dásamlegur og góður. Sumum finnst skrítinn áhugi hans á Seinni heimsstyrjöldinni, Hitler og Stalín en mér finnst það frábært (sögulegur áhugi einungis af því góða). Auðvitað bregður mér örlítið þegar hann talar hátt um hversu gott það var fyrir heiminn þegar Hitler "drap sig sjálfur!" og fleira í þeim dúr. En hann er svo ljúfur og góður að ég hef litlar áhyggjur af þessu. Ég veit eftir 7 ára uppeldi að flest sem manni finnst voða mál - er ekkert mikið mál - gengur yfir og lagast með tímanum. Þannig var með sjómannin Voga sem hefur blessunarlega horfið úr lífi okkar og ofuráhuga KS á að fá að horfa á Stubbana... Það gekk yfir og án mikilla átaka.
Ég var að sjálfsögðu með gríðarlegan metnað í upphafi (er enn með metnað en hófsaman og raunhæfan). Þannig var ég ákveðin í að KS fengi ekki að leika með byssur. Þar til hann varð ca 3ja voru engar byssur á heimilinu, einstaka sverð kannski en engar byssur. Svo fór ein og ein byssa/riffill/skammbyssa að bætast í safnið. Bjarki Freyr fæddist því inni í gott vopnabúr (eins og KS kallar vopnasafn sitt) og er hæstánægður með þetta. Hann er líka dásamlegur og góður en hann þarf að díla við annan raunveruleika en KS. Stundum finnst mér eins og að hann hafi fæðst með riffil í hendinni. Það hvarflar ekki að mér að reyna að halda byssum frá BF. Ég reyndi aðeins með KS en sá líka fljótt að hann var nógu hugmyndaríkur til að redda sér bara sjálfur. Þá breyttist brauð, bananar og kubbar í byssur, við öll möguleg og ómöguleg tækifæri.
Ég talaði mikið við KS um frið og að vopn voru slæm og að herir og stríð væri hræðileg fyrirbæri. Við vildum frið á jörðu og bla bla bla.
Í mesta lagi núna bið ég BF að beina byssunni ekki að fólki... og leiðrétti strákana þegar þeir segja skjótti eða drepti - nei nei það á að segja skaut og drap!
Þetta er raunveruleiki í uppeldi. Stundum fara hlutirnir öðruvísi en ég ætlaði, en með umhyggju, þolinmæði og raunhæfum væntingum ganga hlutirnir nokkuð vel.
Það er stuð að vera strákamamma.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
►
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
►
desember
(14)
0 comments:
Sendu inn athugasemd