19. september 2009

Hjóladagur fjölskyldunnar
var haldinn hátíðlegur eins og alltaf hér á Ásbraut. Þar sem er hreyfing og fjölskyldufjör - þar erum við.
Við pumpuðum í dekk og rótuðum eftir hjólahjálmum og þutum af stað. Eftir kortershjólatúr ákváðum við að taka smá pásu. Þá hringdi ég í pabba..
Pabbi: hvar eruð þið?
me: Við erum hérna að hjóla.
Pa: Já öll fjölskyldan bara.
Ég: Já já öll fjögur ;-)
Pa: Það er aldeilis... (áherslupása).. heilbrigt!
Svoldið eins og þetta kæmi honum á óvart. Eins og þruma úr heiðskíru.
Hann komst svo að því síðar að við vorum í pásu á KFC á N1 eftir nkl. 15 mín hjólatúr þar sem 7 mín. fóru í að reiða hjólin. Pásan endaði svo þannig að við vorum sótt þar sem KS var að verða of seinn í afmæli og úti var úrhellisrigning. Maður lætur nú ekki bjóða sér hvað sem er.

Við pabbi og BF fórum á Upp og skemmtum okkur vel þar. Svo fórum við heim og BF dundaði sér við hljóðlátan leik og ég las og las og las. Dásamlegt og heilbrigt yes indeed.

2 comments:

Nafnlaus sagði...

hljómar vel þessi dagur : ) Ég er rosalega ánægð að þú sért byrjuð að blogga aftur knús

Guðrún Birna sagði...

Jamm fínasti dagur!
Takk - sjáum hvað þetta endist :-)

Blog Archive

Um mig