2. maí 2009

Samtal hjóna

GFS: sumt fólk stoppar bara ekki. Er alltaf að gera eitthvað. Taka til eða fara eitthvað. Stoppar ekki - án gríns.

GB: Já það er ekki við.... svo langt frá því. Því miður..

Ég vildi að ég væri svona fólk sem stoppar ekki. Fór samt út að labba í morgun og fékk mér grænan heimatilbúin djús. Solla hnetu lover mælir með þessu og ég varð að prófa og sjá hvort ég yrði nú ekki óstöðvandi. Fór beint og lagði mig. Mikil átök að búa til drykkinn og þrífa svo eftir mig.

Annars er ég alveg dugleg líka - núna að vinna heimaverkefni sem ég á að skila á mánudaginn. Í gær tókum við skápa í gegn. Reyndar ryksugaði ég í dag og setti í eina vél. Það þarf enn að skúra og setja í svona 5 vélar til viðbótar. Svona er þetta ef maður er ekki þessi óstöðvandi týpa. Kannski ef ég fæ mér aðeins meiri heimalagaðan djús?

4 comments:

Svala sagði...

haha...ég er því miður þessi týpa sem þú lýsir...eða ekki því miður..því þetta er vægast sagt MJÖG praktískt! annars ættirðu kannski að prufa spirulinu töflurnar...taka í viku max skammt...og sjá hvort energíið kikkar ekki inn")

knús,sveil

Sólin sagði...

Hmm... sek. Stoppa ekki oft. Það er ekki fínt. Stundum praktískt samt - en oftast er maður bara í einhverju óþarfa veseni.

Þóra sagði...

Ég er algjörlega ósammála þér GB. Þið eruð víst ofboðslega dugleg -hvað er Gummi t.d. með mörg háskólapróf? Hversu margar útilegur fóruð þið í fyrra? Það er aldrei drasl heima hjá þér þegar ég kem og þið eruð voðalega dugleg að fara út með strákana að leika, bókasafnið, göngutúra o.s.frv. Síðast en ekki síst ertu að rúlla þínu mastersnámi upp með einkunum sem styðja það og trausti yfirmanns námsins!

Guðrún Birna sagði...

Hehe gaman að sjá þessi komment.

Kannski væri það ekki að skemma að hafa smá Spirulina við hendina... betur má ef duga skal.

Og takk Þóra fyrir þetta uppbyggilega komment. Ég sé það núna að við erum ógó dugleg :-) Svona alveg í hófi samt án þess að lenda í miklu óþarfa veseni og svo kallar vesen oft á fjárútlát þannig að leti og aðgerðarleysi er ágætis sparnaðarleið.

Allt er gott í hófi??

Blog Archive

Um mig