10. mars 2009

Bíddu, áttu svona fáa vini?

Facebook... sumir (ég) eiga bara ekki svo marga vini. Ég er fyrir löngu búin að viðurkenna það og er svo sem ekkert að gráta það að eiga ekki 900+ vini. Ég tek ekki þátt í félagslífi, stjórnmálum eða íþróttum. Ég er gift tveggja barna móðir í 100% námi (og meira að segja að skrifa ritgerð = mannleg samskipti í sögulegu lágmarki). Auðvitað gæti ég átt fleiri vini.. held ég. Efast um að fólk ignori mig. Sérstaklega ekki fólk sem á 600 vini. Þá yrði ég auðvitað sár.

En þó ég eigi fáa vini á facebook þá tel ég mig eiga marga góða vini í raunveruleikanum. Ég hugga mig við það þegar ég er næstum dáin úr minnimáttakennd og skömm yfir vinafátæktinni á feisinu. Gummi á til dæmis fáránlega marga vini og var strax á öðrum degi á feisinu komin með 200+ vini. Hann hefur auðvitað stjórnmála og félagslíf-þátttökuna með sér. Og jú jú hann er alltaf glaður og hress.

Facebook hefur marga kosti og mjög marga galla. Mér finnst verulega óþægilegt þegar af mér birtast óritskoðaðar myndir en mér finnst frábært að geta verið í nokkið góðu sambandi við vinkonur mínar í útlöndum og gamla vini úr Eyjum, Való og MR. Veit ekki hvort ég sé að fíla að vita allt um alla. Samt.. ég er svoldið þannig að ég vil vera í góðu sambandi við þá sem eru í kringum mig og mér er annt um. Ég vil vita hvenær börn vinkvenna minnar eru lasin og þegar þær sjálfar eru með kvef. Mér finnst voða gaman að vita ef þær skemmtu sér vel eitthvert kvöldið, fóru í bíó eða uppgötvuðu nýja tónlistardívu. Eins finnst mér mjög gott að vita þegar vinir og kunningjar okkar GFS fara norður eða til útlanda. Það er líka æði þegar hægt er að hvetja fólk áfram í rækt eða námi.

Á móti kemur þarf ekki mikið spjalla. Maður veit næstum allt um alla og lítið við að bæta. Einnig finnst mér tölvupóstum hafa fækkað. Færri saumaklúbbar og hittingar. Það er ekki gott! Ég vil alls ekki að við breytumst í einhvers konar Wall-E samfélag. Ég er samt svoldið svona wallE. Tala við fólk á msn, feisbúkkast og sendi sms. Stundum líða dagar á milli þess sem ég hef mannleg samskipti við aðra en boys heima. Það er SICK sko.. alveg kreisí.

Þannig að... ég er glöð með ýmislegt en ekki annað. Sem betur fer er saumó á fimmt. Einnig á ég bókað lunch date. Like it a lot.

Over and out.

2 comments:

Kristbjörg sagði...

ég er alger fésfíkill hehe :)
Sérstaklega þegar ég er í vinnutörn því þá hitti ég bara vinnufélaga mína í þessa 5 daga og gott að geta aðeins kíkt inn í garðinn hjá nágrönnunum. En þú mátt alls ekki hætta að blogga, ert uppáhaldspenninn minn og eitt af afar fáum bloggum sem ég kíkji mjög reglulega inn á.
Svo er ég alveg endilega til í lunch deit við tækifæri :)

Guðrún Birna sagði...

Takk kærlega kæra Kibba!

Endilega ákveðum lunch :-) Skal hugsa málið með bloggið. Verst hvað ég er andlaus eitthvað.

Gangi þér rosa vel skvís,
GB

Blog Archive

Um mig