Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
31. desember 2008
Árið
Topp 10 komment hjá KS
1. Mamma (eftir að ég sagði að gömul kona væri svo myndarleg og falleg) ekki segja mér að þú sért að íhuga að byrja að verða lesbía.
2. Fj.. Fjjj.. ffff. ó mamma ég var næstum búin að segja F orðið. (hvaða orð?). Æi þú veist þarna fffffff nei ég get ekki sagt það - það er svo hræðilega ljótt. (nú jæja ok). Æi þarna þú veist maðurinn sem stjórnar undirheimunum.... FJANDINN.
3. Mikið rosalega er hann Bjarki illa upp alinn. Það þarf að fara að aga hann svoldið til.
4. Ég vildi að börn fæddust bara svona 3ja ára.
5. GFS og GBK voru að horfa út um bílrúðuna og sáu manneskju og voru að spá hvort hún væri karl eða kona.. stelpa eða strákur. Þá sagði KS: Kannski er hann KYN-VILLTUR.
6. Við aðstoðarskólastjórann í skólanum um óþekkan dreng. Veistu, ég vil ekki segja þér þetta - en ég bara VERÐ..... Ég held að uppeldið á honum XXX hafi bara GJÖRSAMLEGA misheppnast!
7. Ég er að teikna úúú á Davíð.
8. Það bera allir ábyrgð á kreppunni. ALLIR. Líka forsetinn! Líka þú og ég mamma! Allir hafa eytt of miklum peningum.
9. Mamma - Þú sagðir að þú værir búin að ljúka verkefnum þínum í skólanum. Hvað ertu þá að gera í tölvunni? (mamman í tölvunni og vanalega var það lrædómur sem var afsökunin en greinilega ekki meir.)
10. KS að skipuleggja konungsríkið okkar.
Mamman er auðvitað drottningin, hann prinsinn, Sigga frænka þjónustustúlkan og Þórlindur frændi hershöfðinginn!

Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi
1. Múgsefjun
2. Emilíana Torrini
3. Páll Óskar
4. Sálin - 20 ára
5. Hjaltalín
Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi
1. Múgsefjun
2. Emilíana Torrini
3. Páll Óskar
4. Sálin - 20 ára
5. Hjaltalín
Árið
Topp 5 fólk og atburðir erlendis
1. Barack Obama forseti USA
2. Britney vinkona náði sér á strik.
3. Guy og Madonna skildu.
4. Silfurdrengirnir meikuðu það í Peking.
5. Sarah Palin gerði lífið skemmtilegra... en sem betur ekki meir en það.

Árið!
Topp 10 persónulegt
1. Eignaðist lítinn frænda :-)
2. Varð 30 ára (eða þið vitið 25).
3. Fékk diplómu i náms- og starfsráðgjöf.
4. Átti langt og gott sumarfrí. Sund í lauginni hennar Þóru formanns og góð stund í sveitinni..æði bara.
5. Fór á Sálartónleika og í gegt eftirpartý...
6. Söng oft í Singstar og átti góðar stundir með góðum vinum.
7. Kom börnunum í nýja skóla.
8. Fór í æðislega sumarbústaðferð með strákunum mínum.
9. Fór til Köben í geggjaða stelpuferð.
10. Fór á MA hátíð þar sem GFS var 10 ára stúdent og pabbi 40 ára stúdent. Hrikalega skemmtileg helgi. (Fór líka á MR reunion en því miður nær það bara að vera í sviga á topp 10 listanum.)

22. desember 2008
Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ekki allt tilbúið áður en jólin byrja
Sagði Guðmundur... við eiginkonu sína sem var að halda jóla-verðum-að-gera-þetta-og-hitt-og-þetta-annars-pistilinn. Einlægnin skein úr augunum. Svo hlógum við mjög mikið. Gaman að þessu.

19. desember 2008
í skóginum stóðu kofar tveir
Sátu við gluggann árni og geir
þá komu lítil bankaskinn
með risa-reikninginn
elsku besta ríkisstjórn
væri það nokkuð of mikil fórn
ef þið borgið þetta allt
og börnin þúsundfalt
elsku besti davíð minn
hleyptu okkur líka inn
við erum bara að mótmæla
með litlum snjóbolta
eftir GB og KS hóhóhó
Sátu við gluggann árni og geir
þá komu lítil bankaskinn
með risa-reikninginn
elsku besta ríkisstjórn
væri það nokkuð of mikil fórn
ef þið borgið þetta allt
og börnin þúsundfalt
elsku besti davíð minn
hleyptu okkur líka inn
við erum bara að mótmæla
með litlum snjóbolta
eftir GB og KS hóhóhó
17. desember 2008
Dagurinn
Gleymdi lyklum heima
Gleymdi síma heima
Fann gjöf í bílnum okkar sem barn í bekknum hans KS var búin að búa til (og leita mikið að) - handa foreldrum sínum.
Heilsaði stúlku kumpánlega sem ég hélt að væri að heilsa mér.. hún var það ekki heldur einhverjum fyrir aftan mig.
Annars gott bara.

7. desember 2008
6. desember 2008
Lærilíf
Var að læra í dag og fer að læra á morgun. Er í hópaverkefni og það er alltaf stuð.
Skiptir ekki máli hvort það sé laugardagur eða sunnudagur í svona læritörn. Það er þó ágætt að taka feis-rúnt og sjá að það eru fleiri í sömu stöðu og maður sjálfur. Það er alltaf einhver að læra eða láta sér leiðast eða að borða eða drekka. Mjög áhugavert. Það er plús í kreppunni að þurfa ekki að fara út til að skemmta sér.
Feisið maður feisið.

4. desember 2008
Lengi getur vont versnað
Mikið er þessi: I told you so.. tugga DO orðin leiðinleg. Maðurinn var við völd þegar einkavæðing bankanna fór í gegn. Hann ber jafn mikla ábyrgð og hinir ráðamennirnir. Hann var við stjórn Seðlabankans þegar bankarnir hrundu. Skiptir það ekki máli? Gæti verið ef hans persónulega óvild í garð "götustrákana" hefði ekki verið svona mikið issue að eitthvað hefði verið hægt að gera? Ég er þó ekki að segja að bankarnir beri ekki ábyrgð. God knows... þeir bera allir ábyrgð. Ef þeir gætu bara viðurkennt það.
Ef DO fer aftur í pólitík mun ég taka þátt í prófkjöri og kjósa hann ekki. Ef hann nær einhverjum árangri þá flyt ég. Þetta er óþolandi ástand og hann er BULLY - ekki gott íslenskt orð sem hægt er að lýsa því hvernig hann er. Getur hann ekki sest í helgan stein og skrifað bækur eða samið ljóð? Skilur hann ekki að hans tími er liðinn? Sama hvað hann segir og gerir? Það er nóg komið! Miklu meira en nóg. Ég er BRJÁLUÐ. Og verst er að heyra í já kórnum sem rís nú upp frá dauðum og fagnar endurkomunni.
Þetta er eins og þegar - sá sem ekki má nefna - sneri aftur í HP. Nú vantar okkur Harry Potter og Obama týpuna. Ég er enn að bíða og vona.

2. desember 2008
Morgungleði
Það er alltaf skemmtilegt að vakna á morgnana. Ok - kannski ekki alveg alltaf en langoftast. Bjarki byrjaði á því að hlæja að bumbunni á pabba sínum og þar með var búið að stilla stemninguna.
Ég kveikti á útvarpinu í eldhúsinu og á öllum jólaljósunum. Ristaði brauð handa strákunum og gaf þeim appelsínusafa að drekka með. Útbjó heilsusamlegt nesti handa KS og hlustaði á meðan á Grétu vinkonu mína tala um náms-og starfsráðgjöf í HR. Hún er snillingur hún Gréta - ótrúlega jákvæð og full af lífsorku. Hef eiginlega sjaldan kynnst öðru eins... enda verð ég að viðurkenna að ég sæki í að vera nálægt henni í skólanum. Það er bara svo hressandi og notalegt. Þetta var því óvænt ánægja. Best fannst mér þegar Gréta sagði að hugurinn þyrfti ekki að vera í kreppu. Í viðtalinu komu fram margir góða punktar og frábært að heyra í náms- og starfsráðgjöfum. Það er víst nóg að gera hjá þeim þessa dagana. Ræði það kannski betur seinna.
Á leiðinni í skólann var ég með kveikt á útvarpinu. Alltaf tilbúin að slökkva ef einhver leiðindi byrja. Þá heyrðum við í Láru Ómarsdóttur en hún kom með sparnaðarráð fyrir jólin. Ég elska svona sparnaðarráð. Þau virka nefnilega mjög oft. Við GFS höfum ekki verið á blússandi ferð í góðærinu - alltaf annað okkar í námi þannig að við höfum tileinkað okkur nokkuð mikla nægjusemi. Lára sagði að fólk ætti að ákveða hversu miklu það ætlar að eyða og standa svo við það. Þetta á við um fleiri tíma ársins en þó sérstaklega núna.
Annað sem hún sagði og ég vil endilega koma á framfæri. Það MARGborgar sig að kaupa gjafir tímanlega. Búðirnar eiga það til að hækka markvisst eftir 15. des og ekki gaman að lenda í því. Svo er æðislegt að vera búin að kaupa eða búa til gjafir tímanlega og geta svo dúllað sér á aðventunni- tja til dæmis við lærdóm... hehe.
Þegar ég kom heim kveikti ég enn og aftur á útvarpinu. Alls ekki búin að fá nóg af jákvæðu umræðunni sem virðist vera í gangi. Þá var Hafliði Kristinsson fjölskylduráðgjafi að hvetja fólk til að endurskoða gildi sín. Síðustu ár hefur ekki endilega verið góðæristími hjá mörgum fjölskyldum þó þær hafi átt fullt af peningum. Góðærið gerði kröfur á fólk á að vinna mikið og gera mikið. Nú er kannski tími til að vinna minna eða fara í skóla og gera allt til þess að njóta lífsins.
Það er sko eitthvað sem er ómetanlegt!
Gangi ykkur öllum vel í dag á afmælisdegi aðalskvísanna en Hjördís vinkona og Britney vinkona eiga afmæli í dag!! Jeijei.

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
▼
2008
(174)
-
▼
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
- Dagurinn Gleymdi lyklum heima Gleymdi síma heima...
- Einn í jakkafötum. Hinn í náttfátum og Bubba stí...
- Doldið sætur...
- Lærilíf Var að læra í dag og fer að læra á morgun...
- Lengi getur vont versnað Mikið er þessi: I told y...
- Morgungleði Það er alltaf skemmtilegt að vakna á ...
-
▼
desember
(14)