Lookin gooooood
28. nóvember 2008
27. nóvember 2008
Sá auglýst súkkulaðidagatöl frá Kinnerton í dag í Fréttablaðinu.
Þetta er einmitt framleiðandinn sem framleiðir hnetulaust súkkulaði.
Þeir sem eru að flytja þetta inn og selja ættu að auglýsa það.
Pottþétt fleiri en við sem gleðjumst yfir þessum valkosti.
Niður með hnetur!

25. nóvember 2008
Klaufar
Skrítið hvað fólk sem hefur töluvert mikið fylgi kjósenda getur átt erfitt með að eiga samskipti við fólkið sem kaus það. Þetta er eiginlega vandræðalegt!

23. nóvember 2008
Hver er að ljúga núna og hverjum er ekki sama?
Í dag snýst allt um það hvort að Samfó/ISG vilji kosningar eða hvort hún sé bara að segjast ekki vilja kosningar en vilji það í raun. Allt í einu er verið að tala um Davíð Oddsson eða ÓRG og nýju bókina hans. Allt í einu er bónusfánamaðurinn orðinn einhvers konar þjóðarhetja. Allt í einu er það í lagi að brjóta rúður og brjótast inn á lögreglustöð með valdi.
Hvað varð um peningana? Hvað á að gera næst? Hvers eigum við að gjalda?
Sonur minn sagði við mig um daginn - upp úr þurru: Það vill enginn bera ábyrgð? Og ég spurði þá - hvað meinarðu vinur - ábyrgð á hverju? Hann horfði á mig hneykslaður - nú KREPPUNNI auðvitað! Við ræddum þetta aðeins nánar og hann sagði að það vildi auðvitað enginn bera ábyrgð á kreppunni en í raun bæru allir ábyrgð. Stjórnin og meira að segja forsetinn og fólkið í landinu sem hefur bara verið að eyða of miklu.
Ég hef áður viðrað þá skoðun mína að ég hef ekki áhuga á kosningum. Er fólkið sem brýtur rúður og efnir til óreiða fólk sem ég treysti til að taka við hruninu? Nei. Raunin er því miður sú að ég treysti ENGUM. Það vantar greinilega íslenskan Obama sem gefur okkur von um betri tíma. Leiðtoga sem talar við fólkið en ekki niður til þess.
Talandi um leiðtoga. Hvar eru alþingismennirnir? Einstaka kemur með yfirlýsingu um að DO eigi að segja af sér eða segja inn á Alþingi að það eigi að kjósa eða allt sé í rugli. Mér finnst eins og það skipti engu máli. Alþingi er valdalítil stofnun og það þarf meira en kosningar til að breyta því. Framkvæmdarvaldið ræður og það hefur verið þannig mjög lengi. Þess vegna væri huggulegt ef ráðherrar segðu af sér og í staðinn kæmu óháðir og hæfir einstaklingar.
Það þarf að hreinsa til í bönkunum líka. Ég fæ óbragð í munninn við að hugsa um það að sama liðið situr enn og stjórnar og tekur ákvarðanir um sparifé fólks. Auðvitað á DO að segja af sér líka. Á morgun!
Framsóknarflokkurinn er að hverfa. VG er allt í einu voða stór. Sjálfstæðisflokkurinn minnkar en Samfó minnkar minna. Staðreyndin er sú að 50% aðspurðra í nýjustu könnun tók ekki afstöðu til flokkana og það er stærsta fréttin. Fólk er komið með miklu meira en nóg af flokkspólitíkinni, hagsmunatengslum og valdabrölti. Og já þetta er ekki MR að kenna ;-) (ætli nú ekki einu sinni að ræða það þó ég vildi... hehe)
Enn er mikilvægt að halda áfram að spyrja, gagnrýna og fá svör. Enn er mikilvægt að mótmæla og standa upp og segja sína skoðun. Enn er mikilvægt að bera virðingu fyrir lögreglunni... það skiptir máli að það fari ekki allt í rugl. Sonur minn var að segja við mig að hann ætli að fara að kasta eggjum! Hvers konar skilaboð er verið að senda. Og já verð að hætta að leyfa barninu að horfa á fréttir. Þetta er of ljótt fyrir saklausa en hugsandi sál!
Þetta blogg er snilld og skyldulesning daglega: http://www.henrythor.blogspot.com/

20. nóvember 2008
Nei ekki núna
Mikið er ég ekki í skapi til að hlusta á eitthvað væl í ÓRG.
Ekki nenni ég heldur að hlusta á DO.
Gamlir gráhærðir (fyrrum) stjórnmálamenn sem halda að þeir ráði einhverju en beri ekki ábyrgð á neinu eru eitthvað svo... 2007. Oj.

18. nóvember 2008
Skömm barnsins
Við sváfum yfir okkur í morgun. Vöknuðum klukkan átta.
Þegar ég var að klæða mig í skóna sá ég mér bregða fyrir í speglinum. Ekki beint fögur sjón.
Ég: Æi ég ætti kannski að greiða mér áður en við förum.
KS: Ha? Nei nei þetta er allt í lagi.
Ég hugsa: ohhh sætur mamman bara ekkert svo mikil hörmung.
KS bætir við: Þú kemur hvort sem er ekki með mér inn í skólann....

Ég efast
Þó ég hafi ekki bloggað mikið undanfarið þýðir það ekki að ég hafi ekki miklar skoðanir á málum.
Ég eins og fleiri er þó orðin ofboðslega þreytt á ástandinu, á fréttum og á mönnum og málefnum.
Það virðist sem fáir hafi svör en margir hafi spurningar. Það sýður á fólki alls staðar og hroki og yfirgangur ráðamanna er ekki að hjálpa. Ráðamenn verða að axla ábyrgð og svara heiðarlega.
Ég vil sjá uppstokkun í stjórnarliðinu og að fullt af fólki segi af sér. Ég er samt ekki viss um að kosningar séu málið. Ég vil ekki kosningar og fögur loforð. Ég vil sjá breytingar til batnaðar og framtíðarsýn.
Það er ömurlegt að fara að sofa á hverju kvöldi með kvíðahnút í maganum. Ég hef það ekki slæmt en ég á erfitt með að sofna.
Ég hugsa um þá sem eru að missa vinnuna og húsin sín. Svo hugsa ég fáránlega mikið um peninga. Um krónuna og ESB. Hvað er málið með það? Hvar eru peningarnir og skulda börnin mín í ALVÖRUNNI allan þennan pening? Þetta er ekki sanngjarnt og mig langar til að leggjast í gólfið og öskra. Grenja og öskra. Ætli einhver myndi hlusta?
Efast um það.

9. nóvember 2008
Brim
Kjartan Sveinn veltir hlutum fyrir sér. Hann hefur mikinn áhuga á að hitta ÓRG og ræða við hann um umhverfismál og kreppuna. Hann fékk góða hugmynd um daginn og hugmyndin var einhvern veginn þannig að opna ætti hús í kreppunni þar sem allir gætu komið sem væru í kreppunni. Í þessu húsi átti fólk að vinna saman. Húsið vildi hann kalla Brim.. þar sem við værum að ganga í gegnum öldugang... en svo myndi lægja...
Í dag sá ég umfjöllun í Fréttablaðinu um hugmynd rektora háskóla á Íslandi. Eitthvað um hús og þar gæti fólk komið saman. Vantar kannski nafn á húsið?

7. nóvember 2008
Eins og ég er sátt með sigur Obama þá er það verða svoldið þreytandi að í hvert skipti sem einhver segir Obama þá byrjar Bjarki að syngja Bahama lagið.
2. nóvember 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
▼
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
▼
nóvember
(10)
- Lookin gooooood
- Sá auglýst súkkulaðidagatöl frá Kinnerton í dag í ...
- Klaufar Skrítið hvað fólk sem hefur töluvert miki...
- Hver er að ljúga núna og hverjum er ekki sama? Í ...
- Nei ekki núna Mikið er ég ekki í skapi til að hlu...
- Skömm barnsins Við sváfum yfir okkur í morgun. Vö...
- Ég efast Þó ég hafi ekki bloggað mikið undanfarið...
- Brim Kjartan Sveinn veltir hlutum fyrir sér. Hann...
- Eins og ég er sátt með sigur Obama þá er það verða...
- Of fyndið... Palin plötuð - -einhver að þykjast v...
-
►
desember
(14)