29. október 2008

Ósmekklegt

Mér finnst frekar glatað að eigandi Sterling sem nú er farið á hausinn grínist með það að hann geti ekki farið til Dene á næstunni og hann ætli þá bara til Alicante.

Ég fletti Nýju Lífi um daginn og gjörsamlega blöskraði þegar ég skoðaði fatahugmyndir ritstjóranna. Skósíðan var full af háum hælum þar sem parið kostaði 30 til 90 þúsund. Svo var opna með alls konar fatnaði fyrir konur. Peysa á 60 þúsund og kjóll á 80 þúsund. Fötin voru öll á svona rugl verði. Merkin voru fín og flott en fötin voru ekkert flottari en margt í Vero og Oasis. Hvaða snobb er þetta? Var þetta auglýsing eða hvað? Þetta var ekki sett upp sem auglýsing en fyrir minn smekk og örugglega fleiri er þetta gjörsamlega óviðeigandi á þessum tímum - tja og á öllum tímum. Meira að segja InStyle og fleiri tískublöð blanda saman ódýru og designer fötum. Gefa hugmyndir um hvernig hægt er að klæða sig smekklega án þess að það kosti of mikið. Mér ofbauð okrið.

Mér finnst frekar glatað hvernig staðið er að mótmælum. Komið kl. 15 eða 16 og mótmælið einhverju bara til þess að mótmæla en frekar með okkur en hinum. Þörf er á samstöðu og einingu ekki klofningi, ósamstöðu og heimsku.

Já ég er svoldið pirr í dag!

27. október 2008

Dagurinn verður bara betri og betri

15,9% verðbólga.

Great. Á maður kannski að gleðjast af því að hún er ekki 100%?
Hægt að pirra sig á öllu

eða gleðjast. Framundan er vetrarfrí. KS verður í fríi fimmtudag og föstudag. Bjarki verður í fríi föstudag. GFS er í fríi fimmt. og fös. Ég þarf að læra... en ætla að reyna að stilla lærdóminn af þannig að við getum gert eitthvað, eða ekki neitt saman.

Það er oft verið að pikka í kennara. Þeir fá svo mikið frí og hafa það svo gott. Jeminn eini hvað mér finnst svona umræða glötuð. Ef til vill er ég hlutdræg en kannski veit ég líka eitthvað um hvað ég er að tala. Ég fékk að sjá launaseðil kennara um all nokkuð skeið, fékk að hanga með kennara á kvöldin þegar hann fór yfir próf og verkefni, einnig sá ég kennara sinna foreldrasamskiptum og undirbúa hvern einasta dag. Mér finnst að við eigum að styðja við kennara og hvetja ekki skamma og letja. Viljum við ekki að besta fólkið fari í þessi mikilvægu störf þar sem menntun barna okkar og uppeldi fer fram?

Njótum þess að vera í vetrarfríi með börnunum okkar og tölum vel um skólann, kennara og nemendur.

Þessi færsla er skrifuð af því að ég var að lesa þetta: http://eyjan.is/silfuregils/2008/10/26/tilgangslaust-vetrarfri/
Skil samt alveg að þetta geti verið vesen... en margir mjög góðir punktar koma þarna fram. Eins og að skóladagatal er gefið út langt fram í tímann. Mér finnst líka frábært að fá tíma til að tjilla um miðjan vetur. Sonur minn verður líka glaður - það er ég sko viss um!

23. október 2008

60 ára í dag

Elskulegur pabbi minn er 60 ára í dag. Hann lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 50 ára (eða 14 eins og KS sagði í gær...). Hann er líka ungur í anda og með puttann á púlsinum, kominn á facebook og alles.

Pabbi hefur alltaf verið til staðar fyrir okkur börnin, tengdabörnin og barnabörnin og við erum eilíflega þakklát fyrir allt sem hann hefur gefið okkur, tíma, athygli, góð ráð og hvatningu. Þúsund þakkir elsku besti pabbi minn!

Stundum hugsa ég um það hvað við höfum látið hann ganga í gegnum... þá kannski sérstaklega ég. Hann er svo bóngóður og ætli hann hafi ekki sett met í skutli hér á árum áður. Keyrði og sótti út í hið óendanlega! Líklegast verður KS með afa sinn á speeddial eftir nokkur ár. En hann er bara svo góður bílstjóri hann pabbi og ekki var verra að spjalla saman um allt og ekkert á leiðinni hingað og þangað. Mæli með svona skutl-foreldrum sem leið til að ná til barna og unglinga.

Innilega til hamingju með afmælið!

Lag tileinkað pabba:



og kveðja frá afastrákunum...

20. október 2008

Hundrað spurningar

Er þetta rétti tíminn til að vera reiður? Eða er þetta rétti tíminn til að líta til framtíðar - eða til fortíðar? Eigum við að standa með stjórnvöldum sem segjast vera að gera sitt besta? Eigum við að krefjast afsagnar ráðamanna og þeirra sem bera ábyrgð? Á ég að borga skuldir sem ég hef ekki stofnað til? Verður skorið niður í velferðarkerfinu og verður Nýja Ísland byggt upp á kostnað okkar - almennu borgaranna? Hvernig gat þetta gerst? Hvað er að gerast? Er ástandið verra eins og ISG segir? Verra en gjaldþrot og atvinnuleysi, skortur á nauðsynjum? Verra og meinar hún þá hungur og dauða? Hvað er verra en að missa aleiguna? Að missa heilsuna, vini, fjölskyldu og öryggið? Hvað er verið að tala um? Er VG að hugsa alvarlega um stjórnarsamstarf með D? Hvurslags eiginlega RUGL er það? Algjört sellout... Er innganga í ESB svarið? Er það raunhæfur möguleiki eins og staðan er í dag? Er þetta staður og stund fyrir þá umræðu?

Af hverju segir D ekki af sér? Hvar eru peningarnir? Af hverju sagði enginn neitt við neinu? Förum við finnsku leiðina? Hvað þýðir lán hjá IMF? Mun það bitna á velferðarkerfinu? Hvað með þá sem minnst mega sín? Hvað með þá sem hafa sparað - eins og ráðlagt var. Hvað vorum við að spá? Af hverju ekki að borga niður lán? Af hverju bara kaupa meira? Er lífshlauparkapphlaupið búið að sprengja þolið? Hvað skiptir máli í lífinu? Hvernig á að hjálpa þeim sem missa vinnuna? Hvernig á að styðja við venjulega fólkið? Hvað á að gera við siðlausa liðið? Hvað klikkaði?

Hvað verður um hálfbyggðu húsin? Hvernig fer með glansmyndirnar? Hættir Innlit/útlit? Getum við farið til útlanda aftur? Getum við haldið haus og haldið áfram? Eigum við að standa saman? Vorum við að standa saman þegar sumir áttu fullt en aðrir miklu minna? Áttu þeir það þá skilið að eiga minna og hinir meira? Hver á hvað skilið núna? Þeir sem skulda eiga að borga en hver skuldar hvað og af hverju? Vorum við blind? Var þetta fyrirséð?

Eru stjórnarslit að fara að gera eitthvað fyrir okkur? Annað en að skapa meira óöryggi og reiði? Getum við unnið okkur út úr þessu á einu ári eða fimm? Hver á að vinna okkur út úr þessu? Hver veit hvað það er og hvers vegna þetta varð svona? Erum við að fara vinna meira og fá minna til þess að bjarga okkur sjálfum úr vandræðum sem við vitum ekki hver kom okkur í? Eru allir sekir eða allir saklausir? Er þetta alþjóðahnattvæðingunni að kenna? Er fall Ísland falli amerískra banka eða flugi amerískra gilda að kenna?
Af hverju var fólk að kaupa sér 4 milljóna króna skópar? Hvers vegna þyrlur? Hvað er málið með 250 milljón króna sumarvillur? Slapp ég eða missti ég af? Sit ég eftir skaðbrennd í súpunni sem annar eldaði? Hvenær fæ ég sushi aftur?

Hvað og hverjir skipta mig máli í lífinu? Hvernig gildi skipta máli? Hvað ætla ég að gera fyrir aðra? Hvernig getum við staðið saman og haldið áfram? Hvenær verður hvíta bókin gefin út?

Eigum við að vera jákvæð? Eigum við að vera neikvæð? Eigum við að vera raunsæ? Eigum við að vera bjartsýn?

Hundrað spurningar - engin svör.

Ég er bara eitt stórt spurningarmerki!

16. október 2008

Kannski kemur eitthvað gott úr úr þessu öllu

til dæmis gæti verið að börn og fullorðnir læri í eitt skipti fyrir öll að það er ekki j í nýi.. sbr. nýi glitnir og nýi landsbankinn.

14. október 2008

Sonur minn eldri er vel með á nótunum.

Hann hefur undanfarna daga velt fyrir sér hvernig hægt er að fá pening í kreppunni. Ein hugmynd var fengin að láni hjá besta vini hans og það var að sykra rabbabara og búa til sultu og selja. Önnur var að KS ætlaði að búa til Andrésblöð og selja á stigaganginum. Hann var alveg viss um að fólkið á stigaganginum ætti börn eða barnabörn sem gætu haft gaman að heimatilbúnu Andrésblöðunum til dæmis í jólagjöf. Þau áttu að kosta 100 eða 500 kall. Þegar ég sagði að þetta gæti nú verið voða fín jólagjöf frá honum sjálfum horfði hann á mig eins og ég væri alveg gaga... nei sko hann ætlar að KAUPA gjafir handa fólki fyrir peninginn sem hann fær fyrir blöðin. Bisness tip 101 - eiga fyrir því sem maður kaupir!

Þegar við komum norður til Ak. vaknaði sonur minn hress og það fyrsta sem hann sagði var: ég þarf ekkert að fá neitt nýtt dót hérna á Akureyri. Ég get alveg leikið mér með gamla dótið. Það er miklu betra núna í kreppunni. Bisness tip 102 - njóta alls þess sem maður á.

Yngri sonur minn er kannski ekki alveg jafn vel með á nótunum. Gargar á okkur og segir bara usssss við okkur ef honum líkar ekki það sem við erum að segja. Til dæmis ef við segjum NEI... ekki núna... þá veifar hann vísifingri að okkur og segir annað hvort FRÁ eða USSSSSS eftir því sem hentar.

Stundum langar mig að segja frá eða ussss, sérstaklega þessa dagana í krepputali og leiðindum. Þeir hafa kannski báðir eitthvað til málanna að leggja!

6. október 2008

Heyrst hefur...

að kona ein hafi keypt sér skópar á fjórar milljónir. Hvort það hafi verið skópar eða skópör þá er þetta viðbjóðslegt og í takt við það sem hefur verið í gangi. Óhóf og ólifnaður. Manni verður óglatt að hugsa um þetta.

Hvernig verður þetta á morgun? Hvað verður öðruvísi? Mun þetta bitna á þeim sem síst skyldi á meðan þeir sem stóra ábyrgð bera fljúga burt á einkaþotunum sínum til að versla fleiri milljón króna skópör? Grunar það - því miður. En á meðan verið er að verja almannahagsmuni þá er ég nokkuð sátt við atburði dagsins. Þó að milljónagaurarnir flýi land þá er mér sama en þegar gamla fólkið, öryrkjar og aðrir missa ævisparnað og sparifé þá fýkur í mig.

Sver það samt - óglatt!

Áfram Ísland!!

2. október 2008

Litið um öxl (sem glæframenn, bankamenn og stjórnarmenn í bönkum vilja alls ekki gera)

GB fór í banka. Átti smá aur en var í bankanum til að láta leiðrétta eitthvað rugl.

GB situr og þjónustufulltrúinn fer yfir málin. Í sárabót fær GB nokkra góða glitnispunkta (ó mæ - ætti maður að fara og leysa þá út? til að gera hvað? fara til útlanda og fara endanlega á hausinn). Jiiii hvað GB var glöð með þessa punkta. Þá segir þjónustufulltrúinn... ahhh ég sé að þú ert með smá aur hérna inn á bankabók.. þetta er alveg rugl... ættir að færa þetta annað - til að ávaxta aurinn betur... GB vill vera örugg en hefur heyrt að það sé mál málanna að græða og græða meira. Tja já þú segir það. En er þetta rugl með kortin og það allt saman leyst? Já þjónustufulltrúinn hlær að þessari vitleysu og dregur athyglina aftur að aurunum sem eru ekki að ávaxta sig. Sko, best að setja þá hérna inn á SJÓÐ 9 :-)))))) Já einmitt það já. GB hlustaði á þjónustufulltrúann sannfæra sig um að þar er allt öruggt og hægt að fá góða vexti. Hljómar vel. Of vel. En ok prófum það. Viti menn - aurarnir rúlluðu upp á við og gott að GB kunni lítið á bankann sinn og vissi ekkert hvernig hún átti að losa um aurinn sinn þegar hana vantaði pening.

Það var ljóst að þetta var ekki bankabók en voru þetta hlutabréf? Hvað er sjóður? Spurningarnar voru margar en GB hugsaði sem svo að þetta væri alveg öruggt.

Margir aðrir hugsuðu eins og margir aðrir áttu í svipuðum samræðum við umhyggjusaman þjónustufulltrúa. Þetta var einmitt OF GOTT til að vera SATT.

http://eyjan.is/silfuregils/2008/10/02/loglegt-en-sidlaust/

ENDIR.

P.s veit það er kjánalegt að tala um mig sem GB en þetta er SAGA og ég verð að reyna að fjarlægja mig frá atburðunum. Til að geta hlegið ísköldum kaldranalegum hlátri. En sá hlær best sem síðast hlær. Whatever.

1. október 2008


Börnin eru með þetta allt á hreinu.
Við vinkonurnar hittumst í gær - aðallega til að ræða Peningasjóð 9 hjá Glitni, Davíð (aka kónginn), Jón Ásgeir (aka vælukjóann), dollarann, viðskiptahugmyndir og tækifæri í kreppunni og um almennt hörmulegt ástand í efnahagslífinu og umhverfismálum.

Hostess ég - var með léttar veitingar (comfort food) og lét hughreystandi orð Birgis Arnar í 24 stundum (aftan á blaðinu í gær) ganga. Svo grétum við saman og gáfum hvor annarri ráð um bækur sem helst gætu kitlað gráturtaugarnar.

Það var hressandi! Held það sé nauðsynlegt að hitta fólk á þessum síðustu og verstu.. og vita það eitt að maður er ekki einn og það er hægt að gera margt skemmtilegt í kreppu. Alltaf gaman að borða til dæmis.

Orð Birgis Arnar eru heilbrigð og hvetjandi fyrir okkur öll, sérstaklega síðasta setningin: Eina leiðin til að fá allt sem þú vilt er að vilja allt sem þú færð.

Magnað.

Verð með smá hitting á morgun og ég er viss um að það verður líka fjör þá :-)

Blog Archive

Um mig