Jæja góður dagur framundan?
Jebbs.
29. september 2008
28. september 2008
Lag með Emiliönu í Greys
Greys hafa nú áður spilað Emilíönu lög og í fyrsta þættinum í nýju seríunni er lag af nýju plötunni.
Þetta er að vera skemmtilegt mission.. hvar ætli heyrist í Emiliönu næst??? OTH???? GG???

27. september 2008
Fréttir, Kastljós, Spaugstofan og Leiðarljós endursýnt aftur og aftur og aftur og aftur...
Hljómar ekki vel, er það?
Þetta er veruleikinn fyrir börn á Íslandi í dag. Það vantar stórlega upp á að það sé metnaður fyrir vönduðu barnaefni. Stundin okkar er ágæt stundum en persónulega finnst mér að það mætti taka hana til gagngerrar endurskoðunar. Er svoldið spennt að sjá hvað gerist með nýjum stjórnanda en á samt ekki von á miklu. Það mætti vera svo margt annað í gangi - t.d. íslenskur fræðsluþáttur sem höfðaði til barna og unglinga.
Undanfarnar vikur hefur ekkert verið að gerast í barnaefninu. Hálftími hér og hálftími þar af endurteknu efni. Krakkar á ferð og flugi eru dæmi um vel heppnaða þáttaröð fyrir börn en jesús minn almáttugur þarf að endursýna hvern þátt fjórum til fimm sinnum? Hvað þá Stundina okkar? Fyrst endursýnd Stundin og þar á eftir endursýndur Krakkar á ferð og flugi og svo í lokin einn gamall Latabæjarþáttur og allir sáttir? Hell no!
Með nýjum íslenskum þáttum eins og Næturvaktinni og Pressunni er augljóst að hægt er að gera vandað íslenskt sjónvarpsefni. Hvernig væri að nota þetta hugmyndaríka og hæfileikaríka fólk í að gera þætti fyrir börn, og unglinga jafnvel líka. Veit að Anna Kr. vinkona er með fullt af góðum hugmyndum en hún þarf enn áfallahjálp þegar hún hugsar um muninn á dönsku og íslensku barnaefni.
Og ekkert svona.. hvað börnin eiga bara að vera að leika sér... þau leika sér alveg plenty en eiga líka skilið að ríkisrekinn fjölmiðill hafi meiri metnað fyrir þeirra hönd. Barnaefni getur verið hvetjandi fyrir leik og hreyfingu. Ég er allavega mjög pirruð og fúl yfir þessu. En hvað er hægt að gera? Fá sér stöð2? Nei það er ekkert betra þar nema jú nýir þættir af Latabæ - húrra fyrir því.

26. september 2008
90210 - nýi þátturinn
Verður sýndur á skjáeinum held ég en hér er smá bútur fyrir áhugasama - Brenda og Kelly!
Kynning á nýja þættinum og tengsl við þann gamla góða
En ég verð að viðurkenna að ég myndi fríka út ef Dylan kæmi aftur... ég meina ég átti DYLAN DÚKKU.... Já og á enn :-) Hehe.

Moli dagsins
"Það er ekki hægt að hugsa sér neitt betra umræðuefni en spurninguna hvernig maður eigi að vera, hvað maður eigi að starfa og að hvaða marki, bæði á yngri og efri árum."
Úr Gorgías eftir Platón

25. september 2008
emiliana torrini
Er greinilega að slá í gegn... allavega var hún með lag í nýjasta þættinum af 90210. Töff! Alltaf gaman að heyra flotta íslenska tónlist í sjónvarpsþáttum. Lagið heitir birds.
En ekki spyrja hvernig ég veit það. Og 90210 eru glataðir þættir - nema bara Kelly og Brenda eru þarna og það er skemmtó.

24. september 2008
Uppáhalds í ritgerðarsmíð
og bara alveg uppáhalds þessa dagana...
Jason Mraz og Colbie Caillat - Lucky. Love it!!!

Skólastress
Nú fer fjörið að byrja.
Kennarinn minn var að vitna í raunveruleikaþátt sem ég hef ekki fylgst með. Kitchen Nightmares - þar sjáum við dæmi um hvernig þarfagreining fer fram. Sko - segið ekki að sjónvarpið og meira að segja ruslraunveruleikaþættir geti ekki verið gagnlegir.
Þá er bara að komast að einhverju gáfulegu um GG og OTH...

22. september 2008
Spjall
Mér finnst ég voða þroskuð og gömul þegar ég ræði við vinkonur mínar um gengisfall krónunnar og vexti og verðbólgu og finnst það sjálfsagt. Oft er þetta rætt af mikilli innlifun og ástríðu... hvað er eiginlega málið með það?? Damn!
En mér fannst líka spes að rifja upp síðasta samtalið sem ég átti við vinkonu mína á leiðinni í leigubíl aðfaranótt laugardags. Hún var að reyna að sannfæra mig um að ég þyrfti að sjá lambi slátrað. Þetta var svona hresst semsagt og klukkan orðin svoldið margt en ég sver að þetta var málið.
Hún sagði: Veistu GB þú bara VERÐUR að koma með upp í sveit næstu helgi.
GB: já vá gaman
Vinkonan öll að hressast: Og sjá lambi slátrað!
GB; HA? Neiiiii.
Vinkonan: Jú jú þú bara VERÐUR. Held það væri rosa gott fyrir þig.
Og þá fór ég inn í leigubílinn - alveg hissa.
Já og nú hef ég velt fyrir mér hvað væri gott fyrir mig að sjá lambi slátrað? Ná sambandi við sveitina? Komast nær lífi og dauða? Veit ekki. Hringi í hana og fæ þetta á hreint.

Gleymnasta barn í heimi?
Elskulegur sonur minn veit ekki hvar regnbuxurnar, vettlingarnir og húfan eru. Hvarf í dag. Það kemur ekki á óvart en hann gleymir allaveganna einum hlut á dag. Regnbuxurnar eru yfirleitt einhvers staðar annars staðar en utan yfir buxurnar. Þá verður hann blautur og kaldur (og ég slæm móðir.... hehe).
Hann er samt ekki slæmur sonur. Hann er alltaf jafn hissa og leiður þegar hann fattar að hann gleymdi einhverju. Verst að það er á hverjum degi. En svo verður hann voða glaður þegar hann veit hvar þetta er. Oftast hjá stofunni. Hann segist bara þurfa að muna svo ofboðslega margt í skólanum og að hann sé alveg að gera sitt besta. Fyrir helgi hughreysti hann mig með því að segja að allt yrði betra í 2. bekk.
Hvað er hægt að gera til að hjálpa honum að muna? Kann ekki einhver góð trix?
19. september 2008
Snillingurinn ég
Fátt gleður meira en á vindasömum og gráum föstudegi heldur en skemmtilegir tölvupóstar. Er að vinna í heimildaöflun og stundum sendi ég mér áhugaverðar greinar. Ég á það svo til að kíkja í pósthólfið mitt og er þá voða glöð þegar ég sé að kannski þrjú ný meil bíða mín. Nema hvað - meilin eru frá mér sjálfri - greinar sem ég var að senda mér - og ég varð alltaf jafn hissa og vonsvikin. Alltaf.

Jæja
Er ekki ekki komið gott af gengisfalli og roki og vibbaveðri?
Hef velt því alvarlega fyrir mér undanfarna daga að hunsa fréttir...

15. september 2008
Jabba
Sonur minn er hættur að segja já. Segir oft nei og mjög oft JABBA. Ekki jebbs heldur jabba með mikilli áherslu á bb-in. Bjarki Freyr lætur ekki segja sér fyrir verkum en við hlæjum bara og segjum jabba.

12. september 2008
Í Unuhúsi er yndislega skemmtilegt lag sem kemur mér alltaf í gott skap. Sjá heimasíður Múgsefjunar: http://www.myspace.com/mugsefjun.
Þetta eru ágæt skilaboð og þess verð að taka til greina:
Fiskar: Naflaskoðun er leiðinleg til lengdar. Þú ert til í að beina athyglinni að einhverju verkefni. Þú hættir ekki að læra um sjálfan þig, en skemmtir þér betur.
Annars er dagurinn góður so far. Sakna eiginmannsins töluvert og það verður gaman að fá hann heim á sunnudaginn. Við strákarnir erum svo heppin að eiga góða að sem vilja endilega gefa okkur að borða og hugsa til okkar. Finnst eins og ég sé einstæður faðir.. þið vitið þegar þeim var alltaf boðið hingað og þangað í mat þegar konan brá sér af bæ.
Hef svoldið verið að fylgjast með bandarísku forsetakosningunum. Mér finnst áhugavert að skoða konurnar og sá til dæmis um daginn á youtube þegar Michelle Obamam var í þættinum hjá Ellen. Hún kom ágætlega fyrir en það olli mér vonbrigðum þegar hún var beðin um lýsa sjálfri sér í þremur orðum og þau voru: Mom, down-to earth, wife. Fannst hún hefði getað unnið betur úr þessu! Sá í dag brot úr viðtali við Söruh Palin þar sem hún var í vandræðum í viðtali og það var óheppilegt og vandræðalegt. Ég er að sjálfsögðu heitust fyrir Obama. Hitt liðið kemur bara alls ekki til greina.
Jæja best að sigla inn í helgina, ná í drengina og fara á bókasafnið.

8. september 2008
Star Wars
Við eldri sonur minn erum tilfinningaverur. Sumt vekur upp hjá okkur meiri tilfinningar en myndi gera hjá öðrum.. samanber gæsahúðin yfir að sjá Brit Brit heilbrigða og fleira í þeim dúr. Við bæði erum viðkvæm fyrir því sem er fallegt og gott = væmin! KS grét yfir Bangsimon þegar hann var ca 3ja því það var svo fallegt þegar Gúri fann mömmu sína. Allt sem viðkemur mömmum lætur hann auðveldlega sýna tilfinningar. Hann hleypur iðulega til mín og segist elska mig - sama hvort það er í Kringlunni eða á skólalóðinni. Það þarf kannski aðeins að hemja hann í þessu. Bara svo að hann verði ekki lagður í einelti blessað barnið. En þetta er dæmigert fyrir hann þegar hann er vel stemmdur.
Í gær vorum við í IKEA og hann fór ekki í boltaland heldur dröslaðist með okkur hringinn. Nú skil ég betur hugmyndina á bakvið boltaland. Hann var ómögulegur í lokin, sár og svekktur með þessa GLÖTUÐU Ikea ferð. Ég ákvað að gleðja hann og breyta um umræðuefni og sagði honum að þegar við kæmum heim færi BF að sofa og við gætum þá horft á Star Wars sem Þóra og T lánuðu okkur (en hann vissi ekki að ég var með það í láni) og barnið GRÉT af gleði! Tárin láku og það voru ekkahljóð og alles.
Við horfðum á SW og skemmtum okkur vel eftir að KS var búinn að ná sér niður. Svo vaknaði BF hress og sagði skýrt: Star Wars... skjóta.. starwars.. skjóta púff púff. Þetta er svoldið merkilegt í ljósi þess að barnið TALAR varla stakt skiljanlegt orð!
Jamm svona er þetta skemmtilegt stundum.

5. september 2008
Vikan
Í þessari viku hafa drengirnir verið í skólanum og líkað vel. Góða veðrið spilar líklegast þar inni í en þeir virðast voðalega hamingjusamir í nýju skólunum sínum.
Ég byrjaði í mínum skóla og verð að viðurkenna að ég er með smá kvíðahnút yfir öllum verkefnunum... En ég veit að það þýðir ekki að hugsa of mikið um það - betra að taka bara einn dag í einu - og eitt verkefni í einu. Í dag kortlagði ég verkefnin og setti upp í calenderinn minn þannig að núna hef ég betri heildarsýn. Þá líður mér mun betur. Verðlaunaði mig með löngum lunch í Hámu. Veit ekki hvað það er við Hámu en ég hef hangið þar og spjallað við vinkonur mínar um allt milli himins og jarðar 2x á einni viku og í mjög langan tíma í einu. Allt nema að læra hehe.. God er ég ekki orðin 30 ára skynsöm og komin yfir þetta - vilekkilæra... Jú ég er það. Bara svo gaman að spjalla stundum líka!
Hef verið að fylgjast með kosningabaráttunni í USA og baráttu ljósmæðra. Þar finnst mér sameiginlegur tónn vera að þeir sem okkur finnst eigi að VINNA - gera það ekki. Það er grautfúlt.
Hvað eru ljósmæður með í grunnlaun? Hvað ættu þær að vera með? Er hægt að líkja einni stétt saman við aðra? Hvernig á að ákvarða laun? Hvað á að gera við þessari verðbólgu? Ertu ekki að djóka með að dollarinn sé 88? Af hverju keypti ég ekki dollara um daginn?
Þetta og margt annað er að brjótast um í hausnum á mér! Hehe ;-) Hefur einhver svör?

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
▼
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
▼
september
(17)
- Jæja góður dagur framundan? Jebbs.
- Lag með Emiliönu í Greys Greys hafa nú áður spila...
- Fréttir, Kastljós, Spaugstofan og Leiðarljós endur...
- 90210 - nýi þátturinn Verður sýndur á skjáeinum h...
- Moli dagsins "Það er ekki hægt að hugsa sér neitt...
- emiliana torrini Er greinilega að slá í gegn... a...
- Uppáhalds í ritgerðarsmíð og bara alveg uppáhald...
- Skólastress Nú fer fjörið að byrja. Kennarinn m...
- Spjall Mér finnst ég voða þroskuð og gömul þegar ...
- Gleymnasta barn í heimi? Elskulegur sonur minn v...
- Snillingurinn ég Fátt gleður meira en á vindasömu...
- Jæja Er ekki ekki komið gott af gengisfalli og ro...
- Jabba Sonur minn er hættur að segja já. Segir oft...
- Í Unuhúsi er yndislega skemmtilegt lag sem kemur m...
- Star Wars Við eldri sonur minn erum tilfinningave...
- Brit is back Ég fékk gæsahúð þegar hún labbaði ...
- Vikan Í þessari viku hafa drengirnir verið í skól...
-
►
desember
(14)