30. júlí 2008


Jesús minn!!!!

Svona var stemningin í dag. Það er of heitt til að blogga.... Later.

Af hverju að skipta um mynd?

Þessi mynd - hvað er hægt að segja. Mér finnst hún segja allt sem segja þarf. HILFE!

29. júlí 2008

Jæja jæja

Maður fer í nokkra daga í frí og hvað gerist á meðan? Allt kreisí í borginni... það ætti ekki að koma á óvart. Mig grunar að Sjálfstæðismenn telji niður.

Annars er ég hress. Hrikalega heitt eftir frábæra daga á AK. Hitti Öddu vinkonu mína úr náminu og fékk að sjá fína nýja heimilið hennar. Skáluðum fyrir því... og öllu öðru sem okkur datt í hug. Æði að eiga svona góða vinkonu á Akureyri.. jei jei.


Vikan var þó helguð skátunum og hápunkturinn var án efa kvöldvaka á laugardaginn þar sem við skemmtum okkur konunglega saman fjölskyldan með fullt af hressu og skemmtilegu fólki. Þetta var smá Þjóðhátíðarstemning. Hrikalega gaman!



Veðrið var geðveikt. Fórum í sund á Akureyri, í Eyjafirði og í Borgarnesi.

Jamm. Komin heim í bili.

20. júlí 2008

Í kreppunni

Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta krepputal. Hins vegar hika ég ekki við að segja mér og manninum að við getum ekki gert þetta og hitt af því að það er kreppa. Ég hugsa til fólks sem upplifði kreppu og þurfti í alvöru að berjast við að ná endum saman hver mánaðarmót. Þá var engin yfirdráttur...

Það er mottó mitt í lífinu að vera ekki með yfirdrátt. Það hefur gengið ágætlega hingað til. Held að það sé ágætt sparnaðarráð.

Annað sem ég mæli með á þessum síðustu og hmmmm verstu: árskort í húsdýragarðinn, árskort í sund/Nautilus, hjólaferðir, strætóferðir, bókasafnið (hægt að leigja bækur, blöð, DVD og hljóðbækur), 2/1 úti að borða (kommon ég er fátækur námsmaður), 2/1 bíó, flakkari (sem ég get by the way enn ekkert notfært mér). Einnig bíð ég spennt eftir að fá sendar uppskriftir þar sem hráefnið er ódýrt, einfalt, gott, hollt og hægt að nota afganga allavega í eina máltíð.

Ég legg til að við sem erum í námi og þeir sem vilja spara sér almennt en vilja gera sér glaðan dag endrum og eins útbúi einhvers konar barnapíuþjónustu. Ég passa fyrir þig í kvöld og þú fyrir mig næsta kvöld. Foreldrarnir geta þá farið út í sparnaðar-og heilsubótargöngutúr eða heimsótt vini. Við erum líka búin að fara oft á róló/gæsluvöll en þar kostar skiptið 100 kr. Mæli með því fyrir fólk í fríi með börn sem þurfa útrás og félagsskap.

Hættum að væla og finnum betri lausnir. Reyndar finnst mér alveg glatað að þó við neitum okkur um ýmislegt þessa dagana þá hækkar matarkarfan í hvert einasta skipti sem henni er rúllað að kassanum. Einnig er magnað að fylgjast með hversu dýrt það er að vera heima í sumarfríi. En ég er ekki að kvarta.... þetta er bara áskorun og kannski ágætis megrun og lífsstíls-tjekk.
Brjálað að gera í fríinu

Í gær fór ég í göngutúr niður á tjörn hér í Kóp., í sund og á landsleikinn. Afmælishelgin kallar á mikið stuð.

Bjarki fattaði um kl. 16 að hann ætti afmæli. Tók á móti gestunum með klappi og hoppi og sagði takk þegar hann reif pakkana úr höndum gestanna. Svo hljóp hann inn og reyndi að opna og kallaði upp vá vá af mikilli innlifun. Hann talar ekki mikið þessi elska og þegar við segjum - segðu PENNNNIIIIII... þá horfi hann á okkur og oftast endurtekur hann ekki en ef hann gerir það þá er það alltaf eitthvað svona dadda - ekki einu sinni nálægt upprunalega orðinu. Við GFS gerðum það til gaman að rifja upp afmæli sem við fórum í fyrir ca 2 árum síðan hjá 2ja ára dóttur vinafólks okkar. Kristrún tók á móti okkur og bauð okkur inn og svo taldi hún upp á tíu á ENSKU. Hún talaði við gesti um það sem helst var að frétta í USA (var nýkomin þaðan) og sagði okkur skemmtilegar sögur.

Ég er ekki að segja að það sé eitthvað að honum elskulega Bjarka mínum... hann er yndislegur og skemmtilegur og hress. Mikið verður gaman þegar hann fer að tala meira. Og telja upp á tíu á ensku ;-)

18. júlí 2008






Bjarki Freyr 2ja ára í dag

Ætlaði að setja inn myndir frá því að BF fæddist en er ekki að ganga. Þeir sem eru æstir í að rifja upp fyrstu dagana og vikurnar verða að kíkja á barnalandssíðuna þeirra bræðra.

En dagurinn er fallegur eins og þegar hann fæddist litli gleðigjafinn okkar. Bróðir hans óskaði honum til hamingju með daginn og hann sagði NEI.

15. júlí 2008

Samtal hjóna

Kvk: jæja þá er ég búin að setja í þvottavélin, uppvöskunarvélina, taka til í eldhúsinu og búa um og taka til í barnaherb.
KK: Frábært - takk fyrir hjálpina.

Hmmmmmmmmmmmmmmmmm.
Keppnin er æsispennandi

Everwood leiðir með 5 atkvæði. Það kemur mér skemmtilega á óvart. Það er einmitt Everwood kvöld í kvöld. Gleði gleði.

14. júlí 2008

Fyndni

Nú erum við synir mínir búin að vera heima í örugglega 6 vikur. Það er komin ágæt rútína hjá okkur þegar við erum heima við en þegar við erum i útilegu og að ferðast fara hlutirnir aðeins úr skorðum. Ekkert mjög alvarlegt en ég viðurkenni að það var keypt Kókópuffs og Pikknikk og einn daginn var ekki kvöldmatur heldur bara eitthvað rugl...

En að fyndninni. Þegar við erum svona mikið heima saman reynir svoldið á. Fólk sem hefur verið lengi í fríi saman veit þetta. Það er gaman og mikil gleði en að vera með 2 börn sem þurfa slatta af athygli og umönnun gerir þetta allt minna eins og frí og meira eins og rekstur.

Við foreldrarnir ákváðum eftir nokkra kreisí morgna að best væri að splitta bræðrunum og foreldrunum aðeins upp hluta úr degi. Þá fá strákarnir sitt hvort foreldrið og hugað er að þeirra þörfum. Við KS förum t.d. á bókasafnið en Gummi og BF fara á róló. Í morgun vorum við KS heima og lásum HP og höfðum það svaka nice.

Og þá að fyndninni. BF er að verða 2ja núna í vikunni og er að mannast mikið. Hann hermir allt eftir bróa sínum og er með alls konar skemmtiatriði - eins og þegar hann er að skamma bróður sinn - sem var að skamma hann sjálfan fyrir að lemja hann með skóflu. Þá tekur Bjarki um hökuna á KS og segir eitthvað eins og blablablaaaaa. Úff og við getum ekki annað en hlegið inni í okkur og það er svo margt fyndið sem hann gerir. Bara eins og labba með bumbuna út í loftið og fleira sem er svona náttúrulega fyndið. KS var að sjálfsögðu svona líka en núna er þetta erfiðara. Hann segir sama brandarann eða heldur langa ræðu úr einhverri mynd og spyr svo - var þetta ekki fyndið og finnst þér ég ekki fyndinn? Og þetta er svona 10x í einu samtali. Gummi segir að þetta sé þroskaskeið og taki ca 2 ár að ganga yfir. Stundum er hann líka alveg voðalega fyndinn og þegar hann fattar það kemur svona OVERKILL og það er hrikalegt fyrir grey kallinn og okkur foreldrana. Þannig að þetta er svoldið strembið en á móti kemur að við gætum verið hlæjandi allan daginn þökk sé húmoristunum (viljandi og óviljandi) okkar.

Hér er smá brot af dæmigerðu BF mómenti. Hann dró bangsann og sængina og koddann og var að gera kósý fyrir hann.

Feisið

Eftir að Gummi las pistilinn hennar Obbu í Fréttablaðinu í gær vildi hann endilega skoða Facebook-ið betur. Við áttum því notalega stund saman fyrir framan tölvuskjáinn þar sem ég gerði mitt besta til að útskýra fyrir honum hvernig þetta virkar. Hann var alveg - EN til hvers er þetta? Og hvað gerir maður svo? Hvernig veit maður hverjir eru vinir manns? Á maður ekki að fylla ALLT út? Bíddu hvaðan kom allt þetta fólk? Ég þekki þetta fólk!!!
Og ég var alveg: Nei ekki gera neitt meir. Þú gætir endað í tómu tjóni. Sko, þetta er svona tenglanet skiluru? Úfffffff. Þetta er ekki eins og msn - og nei ekki beint tölvupóstur en það er hægt að senda póst. Svo er alls konar svona persónuleikapróf og svona síður til að styðja hitt og þetta og svo eru myndir. Já ég skil þetta varla sjálf!

En það sem mestu skiptir er að vera þarna. Nýjasta nýtt er að ef maður er ekki á Facebook þá er maður ekki til!
Skoðanakönnunin

Það er gríðarlega hörð keppni milli húsmæðranna í Despó og dramatíkurinnar í Everwood en hákarlalögfræðingurinn er á hælum þeirra. Nú er að sjá hvernig spilast úr þessu næstu þrjá daga!

Ég vil ekki gefa upp strax mitt uppáhald enda erfitt að gera upp á milli uppáhalds...

10. júlí 2008

Skoðunarkönnun

Já það er greinilegt að lesendur mínir - allir NÍU - talsins eru ekki vanir útilegum. Sá sem heldur að nammi sé mikilvægara en stígvél (Anna??) er að blekkja sig. Bækur eru ómissandi og nammið er gott að það er vonlaust að vera ekki með stígvél og nú tala ég af reynslu (biturri viðurkenni það).

En ok ok ég viðurkenni að nammið er ómissandi og getur alveg bjargað þeim sem ekki eru með stígvél en eru í rigningu og útilegu. Það gleður sálina og yljar manni um kroppinn að geta kafað ofan í nammipokann og maulað á góðu sælgæti.

Nú vona ég að lesendur taki virkan þátt í nýjustu könnuninni en þar spyr ég um uppáhaldssjónvarpsþætti sumarsins. Ekki að ég geti, hafi tíma eða áhuga á að horfa á telly- en það kemur fyrir að ég er heima og GFS er úti og þá á ég það til að detta inn í alls konar drasl. Annars er ég á leið á bókasafnið eftir að hafa eytt morgninum í hinni mjög svo menningarlegu Kringlu þar sem ég gerði ágæt kaup - ágæt en kannski ekki nauðsynleg. Má deila um það. Þetta kemur skoðunarkönnunninn ekkert við. Og auðvitað gef ég mér tíma og hef alltaf ALLTAF áhuga á góðu sjónvarpsefni.. Það er ekki eins og ég geti - hafi efni á eða hafi tíma til að gera eitthvað annað. Múahhahaha.

En bottom-line er að nammið og góð bók er málið í útilegu!
Þá er maður komin heim aftur veðurbarinn og fínn

Fórum í útilegu í Stykkishólm þar sem ég var fárveik og ómöguleg. En það var samt gaman og við ferðin endaði vel með bátsferð þar sem við sáum haförn og fengum að borða hörpuskel beint úr sjónum. Við Gummi erum með ákveðna sýn á ferðalög á Íslandi og okkur finnst gaman að vera túristar í eigin landi - þó það sé vibba dýrt. En til dæmis fórum við í þessa siglingu og á tvö söfn og í sund. Það er kannski ekkert túristalegra en annað.... en þetta var stemning.


4. júlí 2008

Rauða paprikan

Það getur verið erfitt að vera móðir í nútímasamfélagi. Þá er ég ekki að tala um mig með mína stubba heldur móður mína með öll sín ráð og heilræði. Hún hringir í mig og segir mér að nú verði ég að borða meira grænt grænmeti. Næsta dag hringir hún og segir mér að þau pabbi borði ekkert nema fisk og hvítt kjöt. Hinn daginn er tekin góð ræða um brauðmeti og sykur en arsenik og rottueitur er eins og hollustufæða við hliðina á þessum hættulegustu eiturefnum nútímans.

Ég segi bara já og uhummm og einmitt og þetta fer allt inn. Grefur sig inn í undirmeðvitundina og næst þegar ég fæ mér brauð með osti og kakó þá dey ég úr samviskubiti án þess að gera mér nákvæmlega grein fyrir af hverju. Ég veit að þetta er ekki hollustufæði en hvað varð um að mega stundum leyfa sér eitthvað? Þetta er of flókið fyrir mig en ég er svo heppin að eiga mömmu sem gefst ekki upp og heldur áfram að hringja og segja mér hvað ég má og má ekki borða þennan og hinn daginn.


Stóra paprikumálið truflaði mig svoldið.
Mamma: Jæja eskan - hvað eruð þið að gera?
GB: Uhhh vorum að borða hádegismat.
Ma: og hvað voruð þið að borða gott?
GB: Ekkert sérstakt svo sem, núðlur og grænmeti.
Ma: Ertu ekki dugleg að borða papriku? (smá svo mömmusásökunartónn)
GB: Jú ég er það reyndar - mjög dugleg. (hrikalega gott að geta sagt þetta með hreina samvisku og alles).
Ma: Hvernig á litinn? (heyri að hún er að komast í gírinn)
GB: Tja, bara græna held ég oftast
Ma: nú græna (andvarpar þungt). Nei þú átt að borða RAUÐA.
GB: Jeminn eini ertu að grínast. Hvað er málið núna? (smá pirr pirr)
Ma: Já Guðrún mín. Rauð paprika er hollust! Það er jafnmikið c-vítamín í einni RAUÐRI papriku og í þremur appelsínum.
GB: En er græn ekki svo góð gegn krabbameini og svoleiðs (rámar í svipað samtal um einmitt GRÆNT grænmeti..)
Ma: Nei Guðrún veistu - það er bara engin næring í grænni papriku (smá meðaumkun - aumingja þú greyið með því). Eða ekki eins og í RAUÐRI.
GB: Ég hélt að það væri bara gott að borða allt grænmeti. Þetta er aðeins of flókið.
Ma: Núna veistu það - RAUÐ paprika.
GB: Ok skil þig. Rauð it is.

Síðan þetta skemmtilega samtal um dásemdir paprikunnar fór fram hef ég keypt bæði og rauða og græna. Bíð spennt eftir símtalinu þar sem rautt og grænt verður out og gult verður inn. Þetta er einhvern veginn svo vonlaust ég sver það!

2. júlí 2008

Tíu dagar og tíu nætur

Þegar ég hef EKKERT að gera en gæti verið að gera svo margt.

Blog Archive

Um mig