22. júní 2008






Afmælisgaur


IH vinkona okkar sem er listamaður í New York
(svona kynnum við hana - ógó stoltar vinkonur!)

Inga Huld er með sýningu í sal hafnarmegin í Hafnarhúsinu og hægt er að skoða næstu tvær helgar. Hrikalega flottar myndir og bara æðisleg sýning. Til hamingju little Inga :-)
Frændi fæddur

Ég eignaðist yndislegan lítinn frænda í nótt! Við erum í skýjunum hérna á heimilinu og erum svo stolt og ánægð að fá einn gaur í viðbót til að leika við og knúsa. Það verður sko stuð hjá afa og ömmu eftir nokkur ár :-)

18. júní 2008

Viðburðarrík helgi

Var að spá í að setja inn stikkorðablogg um helgina... en ætli ég reyni ekki bara að vera stuttorð. Á laugardaginn komum við norður eftir frekar erfiða bílferð. Við settum einhvers konar met í að vera lengi á leiðinni og stemningin var eftir því. Fórum út að borða á fína staðinn hans Kidda RUB 23 og svo í bekkjarpartý. Ég var eina viðhengið en mér var rosalega vel tekið enda svoddan snillingar sem voru með GFS í bekk og árgangi.

Komum aðeins of seint heim en tókum engan þátt í óeirðunum í miðbænum.

Uppeldið hefur verið í anda Brangelina en þau hjónin hallast að frjálsri aðferð þar sem börnin ráða sér sjálf. Afleiðinarnar voru að sjálfsögðu skelfilegar þar sem sykursjokk og svefnleysi gerði líf þreyttra foreldrana erfiðara en ella. Beiluðum því á óvissuferð og partýi á sunnudagskvöldi. Næst verðum við að vera búin að undirbúa okkur aðeins betur... sofa meira kannski.

Í staðinn fyrir fjörið fórum við í fína ferð til Húsavíkur og það var margfaldlega þess virði.

Við gefumst ekki svona auðveldlega upp samt og vorum nokkuð hress 16. júní. Drengirnir farnir að venjast skipulagsleysinu og óreglunni (á rútínuninni en ekki foreldrunum of course).

Kvöldið var frábært og við hjónin í góðum gír með vinum okkar. Pabbi var 40 ára stúdent og við kíktum aðeins á þau gömlu sem virtust skemmta sér næstum jafn vel og við. Þau voru hins vegar skynsöm og það er ágætt að vita að eftir 30 ár gætum við GFS öðlast sömu visku og þau - fóru heim á miðnætti og voru komin heim um hádegi næsta dag. Við dönsuðum trylltan dans og fórum heim með dyravörðunum og róturunum - aðeins of seint - eins og stundum.

Bílferðin heim var ágæt en við ákváðum að sleppa 17. júní þetta árið. Því miður þurftum við að bruna í bæinn og þó að það hafi gengið aðeins betur þá var ekkert okkar í partýstuði. Getum - eins og sagan sýnir - bara verið í partýjum og veislum annan hvern dag!

Okkur finnst við sjaldan upplifa eins mikið frelsi og á Ak. Stanslaus pössun og frábær þjónusta hjá tengdó gera það að verkum að við fórum í einhvern menntaskólagír en það var hrikalega gaman og MA er alveg pottþétt næstbesti skólinn! Get eiginlega ekki beðið efir næsta MA-reunioni. En ég er samt komin með nóg af reunionum í bili... þetta var þriðji svoleiðis pakkinn á innan við ári.

Jæja afmælisbarnið kallar.
RUB 23 umi restaurant

Við fögnuðum útskriftinni minni með að fara út að borða og fyrir valinu var glænýr staður á Akureyri RUB 23. Ég er engin matargagnrýnandi en staðurinn lúkkar vel og maturinn var hrikalega góður. Förum pottþétt þangað aftur við gott tækifæri.
Afmm íiiii dag...


Svona einhvern veginn syngur Bjarki fyrir bróðir sinn. Drengurinn sex ára í dag!

13. júní 2008

Kynjakvótinn...

Er að ELSKA þetta lag - júróvisjón framlag Frakka verður bara betra og betra. Fínt föstudagslag :-)

Þetta er svoldið töff...

Sá umfjöllun um þessa (Lykke Li frá Svíþjóð) í Fréttablaðinu í dag. Hvað er málið með ungar konur og snilldar tónlist?
Anna - ertu ekki að vinna í þessum málum? ;-)

11. júní 2008

Ég get í alvöru ekki skoðað blöðin eða hlustað á fréttir lengur.
Er allt að fara til andskotans í heiminum og sérstaklega á Íslandi? Heyrði (óvart) í morgun að allur gróði frá 2005 i bönkum og á markaðnum væri búinn að núllast út. Allir búnir að tapa því sem þeir voru búnir að græða. En er það þannig að ríku verða bara jafnríkir og þeir voru áður og fátæka fólkið verður fátækara? Mér finnst það svo ógeðslega dæmigert. Oj þetta er ljótt ástand.

Ég ætla að labba að ná í KS í dag... svo eru það afgangar í matinn og heima er best. Að eilífu!

10. júní 2008

Sem heimavinnandi húsmóðir

Það er fínt að vera sjálfs síns herra. Það er frábært að geta verið með börnunum og sinnt heimilinu af ástúð og áhuga. Hins vegar grunar mig að nútíma heimavinnandi húsmæður hafi það best. Börnin í leikskólanum og þegar þær ljúka við einhver létt heimilisverk bruna þær í ræktina og svo á snyrtistofuna. Ég er svona second class útgáfa af þessu. Eldra barnið á leikjanámskeiði og sem rækt labbaði ég á róló með yngra barnið. Hékk þar í ágætan tíma og fékk útivistarheilsulúkk og labbaði til baka. En ó gleymdi að ég vaknaði líka eldsnemma og klæddi og fæddi börnin og fór svo með bílinn á verkstæði.... Eftir hádegi á ég svo pantað í klipp/stríp.

Á morgun er meira ves með bílinn (er að græja hann fyrir sumarfríið) og svo plokk/lit á fimmt. Ég væri ekki að shæna mig svona nema ég vil vera í nokkuð góðu útlitsformi á reunioninu hans Gumma þannig að ALLAR gömlu kærusturnar hætti að láta sig dreyma... hehe.

Annars flokks húsmóðirin ætlar að ganga frá þvotti núna. (Nútímaheimavinnandi húsmóðir er þokkalega með fólk í vinnu við svona smáverk). Leiðinlegasta húsverkið: Þvotturinn. Hate it.
Skemmtilegasta húsverkið: Elda og ganga frá í eldhúsinu. Semi-hate it. Jeminn ég veit ekki hvort ég endist mánuðinn í þessu starfi!

6. júní 2008

Þrítug

Var að klára bók eftir Mike Gayle en ég hef lesið bækur eftir hann áður. Hann er svoldið stráka chick lit útgáfa og bækurnar alveg ágætar. Þessa: http://www.mikegayle.co.uk/turning_30.html - Turning Thirty - sá ég á bókó og varð að grípa hana með og las hana í gær og dag. Veit ekki alveg hvernig ég hafði tíma en ég les hratt og stundum á meðan ég er að gera aðra hluti.

Allavega er Gummi núna í þrítugsafmæli sem ég ætlaði sko algjörlega að mæta í en svona er þetta bara. Innilega til hamingju með afmælið um daginn Marinó og vonandi ertu búin að ná þér eftir óvæntu - eða ekki svo óvæntu sjóferðina. (honum var hent í sjóinn og hann fékk kind í afmælisgjöf - já og hann og Gummi eru að fara á EM á sunnudaginn.) Skemmtilegt!

Mike Gayle segir að það sem við verðum að vita um þrítugsaldurinn er að - fara bara á skemmtistaði þar sem hægt er að setjast niður. So true...
Spurningar kvöldsins

Var Sesar fyrsti keisarinn? (eða ekki fyrsti keisarinn og hver var þá fyrsti keisarinn?)
- þurftum að hringja í afa Kjartan og gúggla þetta allt saman og svörin samt ekki alveg á hreinu - úff.

Hver bjó til Guð? - Engin svör heldur.

Ég er oft að hugsa um að við sjáum aðra og aðrir sjá aðra og aðrir sjá okkur og við sjáum þá?

Hefurðu einhvern tímann hugsað um það hvernig það er að vera til? Eins og ég er að hreyfa hendurnar (hreyfir hendurnar og er djúpt hugsi)
Hver skapaði jörðina og hvernig gat hann látið okkur breytast í menn?

Hvernig urðum við til og hvernig verður rigning? Kannski eru englarnir með vatnsglös og hella á okkur... - og já nei engin svör heldur.

5. júní 2008

Ahhh ok

Bjarki vaknaði fyrir kl. 7 í morgun og núna er ég að skilja. Hann var að reyna að færa okkur yfir á austfjarðatíma. Vakna fyrr og fá meiri sól. Verst að það er engin sól en hann er bara svo langt á undan okkur krílusinn. Við verðum mjög vel undirbúin þegar góða veðrið kemur.
Jeiiii

svoldið spennt fyrir kvöldinu... SATC movie night með girls!



Belti eru víst málið. En Anna Kr. vissi það fyrir löngu. Hún sagði okkur skvísunum það í Köben í mars.

4. júní 2008

Veðrið kl. 6 skv. mbl.is - sól og sól og hlýtt.

Veit allt um það þar sem barnið (Bjarki) vaknaði við sólarupprás - um 5 sirka. Það verður stemning hér í dag. Fátt skemmtilegra en nokkur þreytureiðiköst yfir daginn. Svona henda sér í gólf og öskra af því að það er ekki til meiri rjómi. The drama. Mamman líka alveg í toppstandi til að þola þetta en það er stutt í að hún sjálf hendi sér í gólfið í þreytureiðikasti. En auðvitað gerist það ekki.. ekki fyrr en kannski þegar pabbinn kemur heim. Just for fun! Klukkan fimm gott fólk - klukkan FIMM!

Blog Archive

Um mig