I choose me
annað klassískt móment í sjónvarpssögunni. Fór að hugsa um þetta þegar ég var að horfa á Ugly Betty um daginn. Stefnir allt í svona I choose me móment.
29. maí 2008
28. maí 2008
Afmælisbarn dagsins
Fyrir mér verður hún alltaf Charlene í Nágrönnum.
Datt í Nágranna minningar á Youtube...

26. maí 2008
Breytingar á Mogganum
Ég les það á bloggum að eitthvað verði um uppsagnir á ritstjórn þegar nýr ritstjóri tekur við.
Uppsagnir á Mogganum eru ekkert nýtt og ég þekki persónulega nokkrar góðar konur sem hafa lent í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu. Niðurskurður og uppstokkun er alltaf erfitt ferli og það þarf virkilega að vanda til verka. Yfirmenn verða að hafa í huga að þó að þetta sé nauðsynlegt þá eru þetta allt saman manneskjur og þess vegna verður að segja fólki upp á menneskjulegan hátt, þakka fyrir góð störf og styðja fólk í því sem fyrir höndum ber. Einnig þarf að huga að þeim sem halda störfum sínum, hvetja það fólk áfram og styðja. Uppsagnir valda oft óöryggi hjá þeim sem halda vinnunni og vantraust á yfirmenn og stjórnendur verður meira áberandi. Ég trúi því og treysti að Moggafólk vandi sig nú við þessar erfiðu en örugglega nauðsynlegu ákvarðanir.
Fréttir af því að Kolbrún Bergþórsdóttir fari yfir á Moggann gera það að verkum að nú íhuga ég alvarlega að verða áskrifandi aftur. Hún er algjörlega mitt uppáhald og ég les alltaf 24 stundir áður en ég gríp í Fréttablaðið.
Nú bíð ég eftir að einhver hringi og bjóði mér dúndrandi kynningartilboð á áskrift.

23. maí 2008
Hver er aðal?
Pabbinn: Hann vill bara vera hjá PABBA sínum.... ohhhhh (horfir montinn á mömmuna á meðan BF kúrir sig í hálsakotið á pabba sínum).
Mamman: Já þú ert heppinn! (smá pirringur en samt ekki því það er bara æði að pabbinn fái að vera aðal líka).
P: Ég var auðvitað svo mikið með hann þegar hann var lítill (ok einn voða góður með sig).
M: Hmmmm eh uhhh já já það er svo sem alveg rétt (leyfa honum að vera aðal - leyfa honum að vera aðal).
P: Þess vegna er hann svona mikill PABBA strákur og vill bara vera hjá pabba síiiiiinum. (já já við erum búin að ná því)
M: Ég var nú mikið með hann líka.
Alveg þangað til að hann var 9 mánaða og svo aftur í öllum veikindunum í haust. Tala nú ekki um níu mánuðina þegar hann var INNI í mér og já og þegar ég fæddi hann í þennan heim ÁN VERKJALYFJA. (anda inn - anda út)
P: Hann elskar þig alveg líka.
M: Já ég veit. Takk. (þurrka tár og herða upp hugann. Það er gott að vera ekki alltaf aðal svona stundum).

18. maí 2008
Klár vinkona
Obba skrifar SNILLDAR bakþanka í Fréttablaðið í dag. Lesið frá a til ö. Takk fyrir Obba :-)

17. maí 2008
Indælasta fólkið í blokkinni
Um daginn var næstum sprungið á einu hjólinu á vagninum okkar. Það fyrsta sem Gumma datt í hug var að fara með vagninn á Sorpu enda er það uppáhaldsskemmtistaðurinn hans. Einn daginn var búið að laga hjólið. Nágranni okkar fór í málið. Hann lagaði líka mitt hjól í leiðinni.
Fjölskyldan á neðstu hæðinni er flóttafólk. Þau tala fína íslensku. Börnin eru Íslendingar og þau hjónin fara á íslenskar leiksýningar og versla í Bónus. Þau heilsa alltaf vingjarnlega og eru til fyrirmyndar í einu og öllu. Þau hafa lýst því hvernig það var að koma til Íslands. Þeim fannst það svoldið skrítið - svona eins og að koma til tunglsins en þau hefðu lagt á sig hvaða ferðalag sem er til að geta gefið börnunum sínum betra líf og til að eiga tækifæri til þess að lifa sjálf sómasamlegu lífi í friði.
Við sem höfum allt til alls getum ekki sett okkur í þessi spor. En við getum hjálpað þeim sem virkilega þurfa á því að halda. Gefið fólki von og tækifæri til að lifa í friði.
Ég verð brjáluð þegar ég heyri Magnús Þór tala. Það er sama hvað hann segir - ég er alltaf ósammála. Mér finnst allt sem hann segir vera heimskulegt og ég skil ekki hvernig hann komst á þing. Hann er líka svo aggressívur og fordómafullur. Það er ömurlegt að lesa um það hvernig hann stærir sig af stuðningi við sinn málstað. Það er hörmulegt að heyra að hann hafi þó þennan stuðning sem hann montar sig af.
Er þetta stuðningsfólk hans fólk sem vill ekki að útlendingar komi og TAKI störfin sín? Er þetta fólk sem er hrætt við að útlendingar útrými íslenskum sérkennum (sem ég veit ekki hvort séu í alvörunni til...).
Því miður er það oft svo að krepputali og hræðslutímum fylgja fordómar gagnvart útlendingum. Ég sé ekki samhengið. Það er ekki útlendingunum að kenna að olíuverð og verð á hveiti hækkar í útlöndum. Það er ekki útlendingum að kenna að við eyddum um efni fram. Það er ekki þeim að kenna að bankarnir fóru óvarlega og að stýrivextir eru háir. Hvað er eiginlega málið?
Ég hef verið að hafa augun opin fyrir bloggum þar sem þetta er rætt og þar sem einhver lætur gaurinn heyra það.. t.d. er þetta hjá Höbbu Kriss á Eyjunni frekar töff. Me like :-) Kannski nennir fólk ekki að svara honum af því að þetta er eitthvað svo absúrd en það þarf að vera með læti.
Mér finnst nauðsynlegt að ræða mjög opinskátt við börn og unglina, aldraða og aðra og kannski sérstaklega við Magnús Þór um mannvirðingu og virðingu fyrir lífi og frelsi og ekki síst friði.
Kannski væri best að senda nágranna okkar til hans og biðja þau um að segja honum sögu sína. Það hefði ekki skipt þau máli hvar þau fengu að búa þegar þau komu hingað. Þau hafa unnið hörðum höndum fyrir öllu sínu og við erum heppin að hafa fengið þau hingað!

14. maí 2008
Nú hef ég tíma til að velta fyrir mér óþarfa
Eins og með hann Ívar Guðmundsson á Bylgjunni. Hann er svo HRESS og jákvæður að ég hef aldrei vitað annað eins. Auðvitað ætti maður að hressast með - sérstaklega í svona yndislegu veðri... en nei ég verð eiginlega bara ógó pirruð. Skipti samt ekki um stöð. Hlusta reyndar oftar á Rás 2 en stundum er maður í bylgjustuði.
Sólar og sólskinskveðjur.

13. maí 2008
Sex ár í dag
síðan ég byrjaði að blogga. Lífið hefur breyst ótrúlega mikið á 6 árum en enn blogga ég daginn út og inn. Eitthvað hafa áhugamálin breyst og ég blogga um annað en ég gerði áður. Mér finnst svoldið lúðalegt að vera "bloggari" en samt hætti ég ekki, tek mér stuttar pásur og fæ oft svona úff verð að blogga um þetta móment. Ég fer enn bloggrúnt en ekki hjá sama fólki og þá en sumir eru alltaf að blogga, eins og ég. Lúði sem bloggar og skrappar... hversu LAME er það eiginlega. Hilfe. En ég hef ástæður fyrir þessu. Mér finnst gaman að skrifa og ég hef frekar slæmt minni. Þetta er dagbókin mín sem mætti stundum vera persónulegri og skemmtilegri og hressari... þar sem ég þreyttur bloggari sem hef hamast á lyklaborðinu í SEX ár er erfitt að vera fyndin og hress á hverjum degi. Einu sinni var ég alltaf neikvæð og pirruð og það var skemmtilegt. Ég hef greinilega þroskast og ef til vill þýðir það ég er deadboring bloggari.
Þeir sem hafa haft úthald og áhuga í að fylgjast með frekar óspennandi lífi mínu í öll þessi ár (pabbi og Gummi hehe) þakka ég fyrir. Einnig þakka ég Kibbu bloggvinkonu, Hjördísi, Ace, Þóra, Áslaug, Þórey, Önnu, Ástu, Eddu, Ásu, Öddu, Grétu, Obbu, Guffu og Elsu fyrir kommentin - kannski fleiri sem kommenta og ég man ekki alveg en ég þakka þeim líka innilega. Alltaf gaman að vita hver er að lesa.
Jæja þá er það spennandi prógramm sem þolir enga bið. Grill, Veronica, svefn og sæla.

12. maí 2008
9. maí 2008
Samræður á leið heim úr leikskóla
Vinur KS: Elskar Bjarki bróðir þinn sjóræningja?
KS: Nei hann veit ekkert um þá.... (smá pása) En ég er að reyna að kenna honum allt um hvernig heimurinn byrjaði.
Þar hafið þið það!

8. maí 2008
Ég var að "díla" við yngri soninn og þá spurði eiginmaður minn hvað ég væri að gera..
ég sagðist vera að dreifa athygli hans (Bjarka). Þá sagði KS: Jáaaa ætlarðu þá að koma með smjörklípuna?

7. maí 2008
Bráðum búið...
Nú fer önninni alveg bráðum að ljúka.
Næsta haust held ég áfram í þessu frábæra námi, Kjartan Sveinn byrjar í skóla og Bjarki tekur við af bróður sínum á Kópasteini.
Sumarið er framundan og við verðum heima í ansi margar vikur. KS og BF hætt á sínum stöðum í lok maí og eftir það verð ég ekta heimavinnandi húsmóðir. Kjartan Sveinn ætlar á námskeið hjá KFUM og K og svo er hann alveg stjarnfræðilega spenntur fyrir TAEKWONDO námskeiði en þar mun hann læra að verja sig og lærir að losa sig úr hálstaki! Hann segir það geta hjálpað honum þegar hann byrjar í skólanum. Ég er ekki frá því að hann hafi rétt fyrir sér hehe. Þetta er harður heimur sem við búum í og eins gott að vera ekki með neitt væl.
Jæja er rokin út í bili. Styttist í 6 ára bloggafmæli mitt. Magnað.

5. maí 2008
Að ferðast í huganum....
Ég hlustaði á Rás 2 í morgun og það var mjög skemmtilegt spjall við stúlku sem er að ferðast um heiminn með vinkonu sinni. Mér finnst ég oft vera að heyra um ungt fólk sem ákveður að ferðast um heiminn eftir stúdentspróf. Hrikalega flott og örugglega ótrúleg lífsreynsla.

Það er ekkert nýtt að mig langi til útlanda. En ekki endilega í nám og ekki endilega til að vinna. Spes... veit. Ég væri til í að fara í hálft ár eða 1 ár og bara skoða Evrópu/eða Kanada eða Ástralíu eða..., keyra um og njóta lífsins. Þetta er ekki í takt við raunveruleikann og þegar ég byrja að væla um útlönd og hversu þroskandi og gott það yrði fyrir syni okkar þá pípir í Gumma. Hann segir mér þá frá því hvernig fólk í gamla daga fór aldrei neitt en lifði þó ágætu lífi. Svo bætir hann við og segir mér að Samúel Jónsson, listamaðurinn með barnshjartað, hefði ekki ferðast mikið - það var nóg fyrir hann að ferðast bara í huganum.

Þannig að í krepputíð er best að láta sig dreyma og ferðast bara í huganum
Þetta sparnaðarráð er í boði GogG.
P.s. ég nota þetta auðvitað alveg grimmt á hann til baka þegar hann talar um jeppa og vitleysu... hann getur því ferðast um Á JEPPA í huganum!

Vor í loftinu
Ég sver það - það var nokkuð hlýtt í dag þegar ég fór út.
Þetta er of gott til að vera satt!

1. maí 2008
Frí á fimmtudegi
Kláraði prófið í gær. Gekk ágætlega og ég vona það besta. Ég er aldrei almennilega hress eftir próf fyrr en einkunnir liggja fyrir. En ég fór samt og fagnaði í gær með hópavinnuvinkonuhópnum mínum. Við fórum fyrst í Laugar (geggjað!)... svo á Ban Thai (æði), og tókum góðan pöbbarúnt, Ölstofan, Apótekið, B5, Ólíver, Vegó og enduðum á uppáhaldsstaðnum mínum Q-bar. Þar er nefnilega hægt að dansa!
Við Adda misstum okkur á dansgólfinu.. jeminn hvað það var gaman!
Ég komst að ýmsu þetta kvöld um vinkonur mínar í náminu. Eðli málsins vegna tölum við MJÖG mikið um skóla og verkefni þegar við hittumst í skólanum. Það var því alveg hrikalega gaman að geta talað um ALLT annað en námið í nokkra klst. við þessar eðalskvísur. Þær eru svo klárar, skemmtilegar, hressar, fyndnar og góðar og ég er mjög heppin að hafa "náð" þeim.. hehe og kynnst þeim :-)
Þetta var alveg snilldarkvöld en ég er svoldið þreytt í dag. Þá er það bara að drífa sig niður í bæ og öskra á ráðamenn og komast í gott mótmæla action. Það vottar fyrir smá mótþróaröskun hjá mér sem fer ágætlega við athyglisbrests einkennin í dag.

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
▼
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
▼
maí
(16)
- I choose me annað klassískt móment í sjónvarpssög...
- Afmælisbarn dagsins Fyrir mér verður hún alltaf C...
- Breytingar á Mogganum Ég les það á bloggum að eit...
- Hver er aðal? Pabbinn: Hann vill bara vera hjá PA...
- Klár vinkona Obba skrifar SNILLDAR bakþanka í Fré...
- Indælasta fólkið í blokkinni Um daginn var næstum...
- Nú hef ég tíma til að velta fyrir mér óþarfa Eins...
- Sex ár í dag síðan ég byrjaði að blogga. Lífið he...
- Frumsamið lag...
- Bjarki að dansa og syngja með Mika... Hvaðan hefu...
- Samræður á leið heim úr leikskóla Vinur KS: Elska...
- Ég var að "díla" við yngri soninn og þá spurði eig...
- Bráðum búið... Nú fer önninni alveg bráðum að ljú...
- Að ferðast í huganum.... Ég hlustaði á Rás 2 í mo...
- Vor í loftinu Ég sver það - það var nokkuð hlýtt ...
- Frí á fimmtudegi Kláraði prófið í gær. Gekk ágætl...
-
►
desember
(14)