27. apríl 2008

Ok nú skil ég..

Er að læra undir próf - áfanginn heitir: Persónulegir og félagslegir erfiðleikar.
Lýsing á MÓTÞRÓARÖSKUN:

Tíð eða alvarlega skapofsaköst
Rífst við fullorðna
Óhlýðnast - fylgja ekki fyrirmælum
Angrar aðra viljandi
Kennir öðrum um eigin mistök eða slæma hegðun
Fjót að láta aðra fara í taugarnar á sér
Reið eða fyrtin
Illkvitin eða hefnigjörn

Réttlæta hegðun sína með vísun í ósanngjarnar kröfur.

Var að lesa þetta og ég gat ekki annað en hugsað til vörubílstjórana. Það þyrfti kannski að senda sálfræðing á svæðið næst en ekki lögreglu.

26. apríl 2008

Passa sig!

Ég stökk út í morgun eiturhress og úthvíld til að ná mér í morgunmat og með því. Labbaði upp í Okurtún og fékk þar það sem ég vildi og meira til. Ásta sagði mér frá æðislega fínu andlitskremi sem gefur lit og ég ákvað að splæsa á mig þar sem ég er í próflestri og hræðilega illa útlítandi. Allaveganna... með þessu tók ég 2-5 aðrar lúxusvörur, melónu og jarðarber. Já ég er ein heima í próflestri og langar að geta tekið mér pásur og nært mig með hollustu.

Þegar ég svo ætlaði að borga fékk ég alveg kast enda SVIMANDI há upphæð miðað við að ég ætlaði BARA að ná í morgunmat.

Þar sem ég var úthvíld og heilinn stilltur á overdrive í próflestri sá ég að eitthvað var bogið við strimilinn. Ég skoða ALDREI strimilinn -(eða mjög sjaldan og oft man ég hvorteðer ekkert hvað hlutirnir áttu að kosta) ég sá á einhverju bloggi um daginn að það væri alveg möst. Það kom svo í ljós að ein varan var 120 kr. dýrari en stóð í hillunni, önnur var 40 kr. dýrari og ein önnur 150 kr. dýrari. Viljið þið spá - 300 kr. - 3 vörur. Hvað ef þetta hefði verið 10 vörur - þá væri ég að borga 1000 krónum meira.

Ég labbaði hring með strimilinn og skoðaði verð aftur en þetta stóð eftir og fannst mér meira en nóg og eiginlega bara hneyksli. Flestir viðskiptavinir þessarar okurbúllu eru gamlar konur sem eru ekki með gleraugun sín...

Næst labba ég lengra eða fer annað - Nóatún Okurtún sökkar as always.

Lexia dagsins... skoða strimilinn og fara úthvíld í búðir. Margborgar sig.

23. apríl 2008

Markmiðinu náð
Jamm Páll Óskar veit svo sannarlega ýmislegt um markaðssetningu og hverjum er ekki sama um Júróvision - heimsfrægð og heimsyfirráð hjá hommum heimsins er málið! This is my Life fær góða umfjöllun hjá Perez..sjá hér.

Mjög töff.

22. apríl 2008

Mynd dagsins

Hér eru faðir minn og bræður hans Björn og Gunnar Rafn. Pabbi minn er litla bollan með fýlusvipinn... ógó fyndið.

20. apríl 2008

Geðveiki

Eins og áður hefur komið fram þá verða næstu 10 daga hell.. eða kannski ekki hell en svona allavega svoldið brjálæðislegir námslega séð. Það er allt í rusli og drasli í kringum mig og ég sjálf er ruslaleg í joggaranum ómáluð og ekki fersk. En svo verður major makeover eftir 30. apríl og ég mun aftur verða félagslega hæf og húsum hæf. Þá mun ég taka aftur þátt í daglegum verkefnum á heimilinu og uppeldinu. Kannski hitti ég skemmtilegt fólk og verð skemmtileg sjálf. Gummi bíður spenntur. Hann er einstæður faðir þessa dagana og stendur sig að sjálfsögðu rosalega vel. En ég skil hann vel að vera þreyttur. Ég er þreytt á sjálfri mér. Damn hvað ég ætla að vera mjó í maí.

Þó verð ég að nefna að þetta er ekkert hell nema að pressan er gríðarleg og ég set hana á mig sjálf. Get því lítið kvartað.. bara smá. Próf á morgun... starfsþjálfun eftir hádegi.

Annars er ég líka að massa þetta núna til að geta verið í fríi á föstudaginn en þá er skipulagsdagur hjá KS. Hann er búinn að plana daginn okkar og hefur lagt áherslu á að við verðum bara tvö í þessu geimi. Það er Þjóðminjasafnið fyrir hádegi og Pizza Hut í hádeginu. Hann hefur mestar áhyggjur af því að þetta verði of dýrt... hann hefur hlustað á foreldra sína ræða efnahagsástandið þungbúin á svip. Svo höfum við átt það til að dissa PHut fyrir okur og löbbuðum meira að segja einu sinni þaðan út!! Jamm við látum ekki bjóða okkur hvað sem er.. nema á föstudaginn. Þetta verður lúxus dagur með drengnum :-)

14. apríl 2008

Skemmtilegar barnabækur

Obba vinkona var að tala um barnabækur sem væri í uppáhaldi heima hjá henni. Þar eru Lína og Ronja alls ráðandi og sænskar eðalbókmenntir. Þær voru í uppáhaldi hjá mér líka en KS er ekki alveg eins heillaður.

Hér hjá okkur er smá Andrésar Andar hlé en hann var búinn að tróna á toppnum í ca þrjú ár!!! Verð að viðurkenna að það var almenn ánægja hjá foreldrunum þegar hann fór í pásu en hann mun örugglega eiga gott comeback áður en við vitum af... Bjarki Freyr á eftir sinn þriggja ára Andrésar skammt.

Við lásum fyrstu Harry Potter bókina okkar fyrir jól en núna eftir jól höfum við lesið Pál Vilhjálmsson og erum á þriðju bókinni um Jón Odd og Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur. Á milli bóka hefur KS heimtað að við lesum ævintýri úr blaðaflokknum Sígildar Sögur sem foreldrar okkar kannast við en þetta eru ágætis blöð þar sem hetjur og skúrkar, skrímsli og forynjur berjast um völd og viðurkenningu. Svoldið eins og pólitíkin á góðum degi... En allavega þetta eru ljúfustu stundir dagsins og ég á stundum erfitt með að hætta. Snilld þegar börnin eru orðin svona gömul og hægt er að fá sinn bókaskammt gegnum þau og hafa ánægju af. Sérstaklega þegar maður hefur ekki tíma til að lesa annað en skólabækur og 3000 glærur...


En það er efni í annað og ekki eins hressandi blogg.
Bróðir minn skrifar hér um Ólympíuleikana í Kína og eins og oft finnst mér hann hitta naglann á höfuðið.

13. apríl 2008

Þrítugsafmæli
Við erum allar að verða þrítugar á þessu ári. Vinkonur mínar sem mér finnst svo ungar og hressar og ég kalla girls og skvísur og stelpur en eru í raun ungar konur (og hitt líka sko).

Ein þeirra á afmæli í dag og ég verð að senda henni innilegar hamingjuóskir og knús og kossa og high five. Hún ber aldurinn vel og ef eitthvað er þá er hún flottari með hverju árinu sem líður. Anna Kr. er í Köben og ég get ekki knúsað hana eða skálað en það verður skálað og það verður hlegið og dansað og sungið. Við erum bara svo ótrúlega hressar á stundum.

Congrats kæra vinkona og mundu... thirty is the new twenty five



12. apríl 2008

Verkefnin

16. apríl - hópkynning á greindarprófi
17. apríl - skil á verkefnabók
18. apríl - heimapróf
21. apríl - sjúkrapróf
23. apríl - skil á ritgerð - greining á starfsferli og skil á dagbók
30. apríl - 50% próf í pers og félagsl.
9. maí - raunfærnimat - skil.
15. maí - skil á skýrslu og lokaviðtal vegna starfsþjálfunar.

Á eftir að mæta 2 daga í skólann og á líka eftir 47 tíma í starfsþjálfun. Svo er það heimilið, starfsdagur á leikskólanum og allt hitt.

Mjög mikið að gera hjá mér og þá er líklegt að ég bloggi mikið eða lítið. Fer eftir hversu dugleg/kærulaus ég er.
Good times.

8. apríl 2008

Ísland best í heimi

Þó ég sé enn í námi og verði líklegast næsta ár líka skoða ég fasteignaauglýsingar og fæ í magann af spenningi þegar ég sé eitthvað spennó. Það er þó ekkert of oft... og eiginlega alltaf of dýrt. Ég læt mig þó dreyma og ímynda mér mig í nýju eldhúsi með opið út á pall þar sem strákarnir leika sér - frjálsir eins og í sveitinni.

Þar sem þetta er fjarlægur draumur hef ég fengið nýjan draum og það er sumarbústaður nálægt borginni. Þar er ég í gamla eða nýja eldhúsinu í gamla eða nýlega bústaðnum okkar með opið út á pall þar sem strákarnir leika sér frjálsir í náttúrunni.

Í þessum draumum er ekki gert ráð fyrir mánaðarmótum með tilheyrandi leiðindum og alls ekki gert ráð fyrir íslenskri veðráttu.
Svo langar mig alltaf að flytja til Köben eftir að hafa talað við Önnu mína. Allt getur gerst en svoldið ólíklegt þegar við bæði erum búin með masterinn... hins vegar hef ég ímyndað mér skiptiprógrömm og jafnvel bara ársfrí - þegar við vinnum þann stóra!

En ég var að koma inn eftir að hafa farið góða ferð í Hamraborg, keypti sushi, fór á pósthúsið, í Nóatún og Apótek. Brilliant að búa í göngufjarlægð frá þessum lúxusbúðum... en svoldið dýrt.

Ísland - dýrast í heimi!

7. apríl 2008

Mótmæli mótmælum

Mér finnst nóg komið af mótmælum vörubílstjóra. Ég skil ekki einu sinni lengur hverju þeir eru að mótmæla. Finnst þetta orðið hálfvandræðalegt... Þeir eru að tala um reglur um hvíldartíma og vilja breytingar og umsókn um undanþágu er í skoðun og bíður afgreiðslu. Þannig að mótmælin eru ekki að flýta fyrir umsókn sem er í farvegi og verður líklegast úrskurðað um í Brussel... (ekki alveg viss hvernig þetta fer nákvæmlega fram).

Ef það er bensínverð þá held ég að það séu margir þættir sem hafa þarna áhrif og ég get ekki ímyndað mér að það sé hægt að afgreiða skattalækkun og tollalækkun með einu pennastriki. Þetta hefur áhrif á svo margt. Hvað er það sem við viljum? Auðvitað er bensínverð mjög hátt og of hátt en mótmælendur hafa komið sínum sjónarmiðum á framfæri og mér hefur fundist mikill skilningur og stuðningur í samfélaginu.

Mótmælum frekar mannréttindabrotum í Tíbet, ástandinu í Darfur, stríðinu í Írak.
Ef við viljum mótmæla aðstæðum á Íslandi mótmælum okurvöxtum, svimandi háu matvælaverði og misrétti í samfélaginu,

Minnkum bílanotkun, kaupum umhverfisvæna bíla, tökum strætó, hjólum, löbbum... finnum sparnaðarleiðir og vinnum með umhverfinu. Ég flauta ekki með bílstjórum á bílskrímslunum sem menga og menga (hljóðmengun) til að allir geti mengað meira. Vonandi eru þeir hættir að teppa umferðina og þá er ég mest að hugsa um öryggi og að halda leiðum opnum fyrir lögreglu og sjúkrabíla.

Það eru pottþétt margir ósammála mér en í alvöru talað - nú er nóg komið af mótmælum vörubílstjóra.

5. apríl 2008

Skemmtilegheit

Ég hef lengi ætlað að skrifa það hér inn en alltaf gleymt. Það skemmtilegasta við að vakna snemma á laugardögum er að hlusta á Simma og Jóa á Bylgjunni. Reyndar er ég svo heilluð að ég er áskrifandi af Podcastinu þeirra.
Það kom sér vel í fluginu til Dene því þá hlustaði ég á gamlan þátt og hló svo mikið að ég grét! Sem betur fer var þetta alveg í lendingu en konan við hliðina á mér hafði miklar áhyggjur af mér þar sem ég hristist öll og hikstaði niður hlátrinum. Spurði mig hvort það væri ekki allt í lagi hjá mér og ég baulaði svona grenju hlátur svari - éeeeeeg eeeer að hlæææææææja!
Smá neyðarlegt.

Hægt að nálgast hljóðvarpið á bylgjan.is.

3. apríl 2008

Af börnunum og foreldrum þeirra

Það er líflegt hérna á morgnana. Mamman reynir hvað hún gerir að vera mætt sirka á réttum tíma í skólann. Pabbinn gerir sitt besta til að skilja við fjölskylduna í þokkalegu ástandi, klædd og komin svona eitthvað á ról. Bjarki sem er 20 mánaða er dásamlega hress og skemmtilegur á morgnana. Hann gargar og hendir sér í gólfið ef hann fær ekki að horfa á telly (like mother like son - sbr. sjónvarpsleysið um daginn) og við skiljum hann en látum ekki undan. Hann vill alls ekki Cheerios í morgunmat og gargar og ýtir reiðilega disknum frá sér (hann vill rjóma) og hendir skeiðinni í bróður sinn sem situr á móti honum og reynir að skoða Sígildar sögur: Ódyseifskviða - í friði. Bjarki segir ekki margt en hann segir NEI og það hátt. Svo gargar hann meira.


Eftir að hafa reynt þokkalega við að gefa barninu að borða býður samviskusöm mamman börnunum Lýsi og þeir slást um að fá sér sjúss. Helst vilja þeir drekka úr flöskunni en oj ekki að ræða það. Bjarki gargar og vill fá MEIRA LÝSI. Eftir þessa skemmtilegu törn við morgunverðarborðið er Bjarki ekki búin að borða nóg en Kjartan Sveinn ekki nógu hratt (enda að skoða blað...) en þegar hann svo borðar gerir hann það á ákjósanlegum hraða. Mamman tautar um skólann og um að hún verði of sein - svona til að bæta á stressfaktorinn. KS er samvinnuþýður og drífur sig eins og hann getur að klæða sig en hjálpi mér hvað hann er samt lengi! Bjarki hleypur flissandi um alla íbúð og þegar mamman reynir að lokka hann til sín hlær hann og segir NEINEINEINEI...


Hann er yndislegur þegar hann er klæddur og eldri bróðir hans alveg fáránlega þolinmóður þegar mamman gerir örvæntingarfulla tilraun til að gera sig "fína" - rétt nær að maskara og púðra og off we go. Þörf væri á meiru en þessu og það vita þær sem sitja við hliðina á mér í skólanum. Púðrið er löngu farið eftir að svitinn hefur skolað litla meik öppinu í burtu. Það er ekkert grín að bera litla boltann milli staða. Hann er eins og ljós í bílnum. Hann má eiga það. Hummar með lögum og syngur á sinn hátt. Hann er alltaf brosandi glaður þegar hann hleypur inn á leikskólann að hitta Krissu, Ingimar, Guðrúnu og Daliu.

Einn daginn þegar ég var að reyna að selja BF á að koma í skóna af því að hann væri svo að fara á leikskólann. Taldi upp hverja hann myndi hitta og hvað færi að gera. Syngja og spila á gítar, fara út að leika með Krissu og krökkunum, fara í listaskálann með Daliu (kona af erlendu bergi brotinn).. KS bætir þá inn mjög jákvæður: OG LÆRA NÝTT TUNGUMÁL! Kjartan hefur smá áhyggjur af litla og hversu lítið blessaður drengurinn talar og hefur áður sagt að það gæti verið erfitt fyrir hann að skilja Daliu. En BF er ekkert að spá í þetta. Dýrkar þau öll og gargar bara heima!

1. apríl 2008

Gabb eða?

Var í alvöru verið að sparka Eurobandsdönsurunum?
Verða í alvörunni alvöru mótmæli í dag fyrir framan Alþingishúsið?
Er hægt að sjá nýjar bíómyndir á mbl.is?
Er Úrvalsvísitalan að lækka í dag?
Er hægt að fylla á rafmagnsbílinn niður í bæ ókeypis?

Erfiður dagur til að fylgjast með fréttum. Enda hef ég engan tíma til þess. En endilega segið mér hvað er satt og hvað er logið. Hef miklar áhyggjur af dönsurunum.

Blog Archive

Um mig