Punktablogg* Fridays í Kringlunni er ekki fólki bjóðandi. Vibbaógeð - kalt mat.
* Sushismiðjan í Hamraborg er fólki bjóðandi - nema ekki fátæku fólki. Lokar innan árs?
* Fátæktartal stressar mig. Vil fá jákvæðni, milljónatal og græna öfund aftur.
* Að vera einn er ofmetið. Sakna boys.
* Bókasöfn eru best fyrir börnin - nema að börnin mega ekki tala saman þar. Óréttlátt!
* Dagurinn getur ekki versnað þegar: netið er hægt (ekkert hægt að downloada), afruglarinn ruglar allt og ekkert er til að horfa á.
* Flakkarinn er fullur en kann ekki að tengja (framhald - ÆTLA ekki að gefast upp)
* Þarf að kaupa skó á strákana. 5.000 kall. Vongóð.
* Langar í skó 14.000. Vonlítil.
* Skrítið að vera þreytt en fara ekki að sofa. Klassískt en þreytt.
* Langar að brjóta niður veggi. Of mikil vinna.
* Langar í nýtt parket, nýtt eldhús og bað og brjóta niður vegg. Of dýrt og of mikil vinna.
* Langar að flytja. Ekki séns.
* Kláraði próf áðan. Nice.
* Þarf að vinna í ritgerð á morgun.
* Boys á Ak. Kósý dagur á morgun, ferð í jólahús og dótabúð. (ég kann nefnilega að plata ömmu og afa!)
* Nýja OTH serían rokkar!
* WHY WHY WHY? Skil ekki enn að það sé hætt að framleiða Veronicu Mars.
* Heimildir út um eyrun á mér. Damn. Damn.
* Tina Dickow, Kate Voegele, Feist og Adele og Amy og Dolly.
* Live - jeminn good old.
* Vegamót er snilldarstaður. Besti staðurinn í bænum.
* Fór á Juno í bíó og varð ekki fyrir vonbrigðum.
* Næst er það svo Horton... stemningin er rafmögnuð.