Að ná jarðtengingu
Síðustu vikur hef ég verið að hugsa um lífið og tilveruna. Voða djúp eitthvað... tengist líklegast ýmsu og eitt er að ég er að verða 30 ára og finnst það merkilegt. Ég er á ótrúlega skemmtilegum stað í lífinu þar sem ég er að læra eitthvað sem ég hef brennandi áhuga á og fer að vinna við að hlusta á og aðstoða fólk við að finna það sem það hefur brennandi áhuga á. Finnst eins og ég hafi dottið í lukkupott í lífinu og fundið það sem ég get hugsað mér að vinna við næstu árin.
Eitt sem ég hef lært í náminu í gegnum kenningar, kennara, samnemendur og bækur er að mestu skiptir er að þekkja sjálfan sig, viðmið og gildi. Það er ekkert í dag sem heitir "öruggt" starf og við erum að læra allt okkar líf. Lífs og starfsferill okkar er alltaf að þróast og breytast. Þess vegna skiptir máli að gefa sér tíma til að hugsa - hugsa um sjálfan sig, þarfir, væntingar og vonir. Við gefum okkur allt of sjaldan tíma til að íhuga okkar eigin mál.
Fólk á mínum aldri gefur sér sjaldan tíma til að hugsa um sjálfa sig enda erum við upptekin við að hugsa um fjölskyldu okkar og allt sem skiptir máli - þessa hversdagslegu hluti sem eiga það til að taka alla okkar athygli. Við erum reyndar oft að hugsa of mikið um okkur sjálf en þá kannski í öðrum tilgangi en að íhuga og meta og vega hvað skiptir okkur raunverulega máli í lífinu. Ég vil hvetja ykkur sem lesa þetta að taka annað slagið stund og huga að ykkur sjálfum. Kveikja á kertum og slökkva á öllum tækjum og tæma hugann í 10 mín. Eitt annað getur verið gott er að fara út að labba, fara í bíó, hitta vini, fara á rúntinn eða gera það sem áður þótti sjálfsagt (pre-babies). Vera með makanum eða vera ein. Finna hvað það er sem gefur okkur orku.
Ég ætla að hitta vinkonur mínar um helgina og veit að það veitir mér orku. Það gefur mér mest að vera með mínum nánustu og vinkonur mínar er stór hluti af lífinu. Þó ég þurfi að fljúga til Köben til að hitta þær.. ég myndi glöð fljúga til Kína!
28. febrúar 2008
26. febrúar 2008
Einbeitingarskortur á háu stigi
Gæti verið spenna af því að ég er að fara til KÖBEN baby...
Gæti verið af því að ég er enn að jafna mig eftir veikindin (hvernig losnar maður við hauskvef?).
Áhugaleysi á námsefninu?
Get ekki sagt að ég sé enn að koma mér í gang eftir jólin nú þegar mars nálgast óðum.
Annars er mars frábær mánuður.
Kannski er ég bara svo upptekina af þremur og núllinu stóra í mars, tónleikunum með Sálinni, árshátíðinni hans Gumma, páskunum, verkefnunum og prófinu stóra. Jiii stundum er fínt að hætta bara að hugsa í smá stund.
Ég tel niður í föstudaginn en þá flýg ég nánast áhyggjulaus til að hitta yndislegar vinkonur mínar :-) Svo verður smá shopping, öl og kokteilar og aðeins meira shopping. Nú vona ég að þetta verði ekki svona dæmigerð verlsunarferð fyrir mig - þegar ég má og á að versla mér eitthvað og finn ekkert? Það er ekki að fara að gerast - er það nokkuð?
Elska enn Lost. Veit ég er ein í heiminum en ég bara geri það.
Vá sko ég sagði að ég ætti við einbeitingarskort að stríða!

23. febrúar 2008
Óþarfa mórall
Ég veit ekki hvort ég hafi verið að gera rétt með að kjósa hana Guffu mína til lands sem er allt kreisí brjál í. Svo sá ég nú eftir atkvæðinu enn meir þegar Friðrik Ómar tjáði sig mjög svo ódrengilega um andstæðinga sína - Oft glymur hátt í tómri tunnu - og svo þegar ég hugsa um það sem vinkona hans Guðrún Gunnars (sem ég fíla annars vel) sagði í síðasta þætti. Það er hægt að segja alls konar um atriðið en Barði er nú alveg þokkalega virtur og talinn alvörutónlistarmaður... og meira en það.. snillingur já og pródúseraði einmitt diskinn hennar Regínu jamm.
Júróbandið var kreisí sjúkt í að vinna og hefði átt að taka sigrinum af miklu meiri auðmýkt og gleði en ekki með skítkasti og hroka. Páll Óskar bjargaði laginu eins og hann gerði Júróvisjon svo eftirminnilega.
En whatever.... hlusta bara á Amy. Damn hvað KS verður fúll á morgun þegar hann fattar að hey hey komst ekki áfram.
Best að fara að sofa. Bjarki hóstar og sefur líklegast ekki vel og ekki lengi í nótt.
Mamman sem bloggar á nóttinni og á kvöldin og sefur..stundum.

Hver vill dansa?
Þetta er svo ótrúlega mikið uppáhaldslagið mitt í dag og á morgun og hinn...
Sorry að þetta er ekki myndband en það er hægt að sjá myndband hér: http://www.youtube.com/watch?v=RI_xYIxUTE0
Ekki hægt að vera í fúlu skapi með þetta lag á.. og bara hægt að dansa jei jei jei. Hresst fjölskyldukvöld framundan.

22. febrúar 2008
Veikindi
Við fjölskyldan lentum í flensunni í þessari viku. Fyrst Kjartan Sveinn og svo var Bjarki eitthvað með hita en ekki nærri eins veikur og KS. Svo ég og að lokum GUmmi. Nema Gummi eins og Bjarki virðist ætla að sleppa aðeins betur en ég og KS. Í dag hélt ég að þetta væri allt að koma en svo gat ég ekki annað en bara sofið og svitnað (ógeð ég veit) og farið í sturtu á 2ja tíma fresti. Ég pantaði mér tíma í plokk lit enda löngu hætt að sjá mig í speglum og þegar ég var að ræða við Gumma um að ég þyrfti að fresta þessu vegna þess að ég er enn svo ógó veik þá var hann alveg NEI - það er ekki hægt að bíða lengur!!! Ja hérna. Þannig að ég er að fara dead or alive til að gera mig sýnilegri og sætari. Leit áðan í spegil og þegar ég loks fann mig í speglinum sá ég að annað augað er líklegast eitthvað bólgið og hilfe hvað það verður ekki þægilegt að lita augnhárin svona bólgin og skrítin eins og ég er.
Annars vona ég að þetta sé yfirstaðið því ég þoli veikindi ekki vel. Verð svoldið leiðinleg - sérstaklega þegar ég get ekki verið ein veik. Fyrst var ég veik með þá báða veika og þá var ég alveg að bugast og svo veik með Gumma heima og já líka alveg að bugast enda er hann aðeins of hress týpa þó hann sé veikur. Á milli þess sem hann andvarpar MJÖG hátt og æjar og óar þá vill hann að ég sé alltaf að segja honum eitthvað skemmtilegt eða hann mér, og svo vill hann fá tölvuna þegar ég er í henni. Er ekki að meika það. En ég myndi örugglega sakna hans ef ég væri hérna ein í marga daga þannig að ég ætla núna að vera voða góð við hann - þegar mér er batnað.

16. febrúar 2008
Akkuru er Ellý í úlpu?
Skil ekki alveg þetta úlpudæmi....
Laugardagskvöld til að læra. En svaf lítið í nótt og get ekki einbeitt mér en ég fékk sushi. Again.
Ks lasinn - snemma í háttinn, hann og ég.
Boðin í partý en fór ekki af því að KS er lasinn og er ósofin og ætti að vera að læra en get það ekki.
Bjarki vaknaði klukkan 5 og svaf í hálftíma í dag. Var hressastur í dag - án gríns.
Gummi fór í partýið en kemur snemma heim því KS er svo lasinn og svoleiðis. Partý partý partý.

15. febrúar 2008
Vikan á enda.
Tíminn flýgur gjörsamlega enda um nóg að hugsa. Þessi vika gekk vel!
Bjarki Freyr er hæstánægður á leikskólanum - svo ánægður að ég er alveg næstum því hætt að pirra mig á 60 þús króna mánaðargreiðslum. Kjartan Sveinn var heima 2 daga í þessari viku, á miðv. var skipulagsdagur og í dag er hann veikur. Hann gaf vinkonu sinni hjarta í tilefni valentínusardagsins... frekar krúttlegur.
Hann hitti aðra vinkonu á bókasafninu og sagði við hana: Hvernig líður þér í dag? Hún svaraði að henni liði vel og hann sagði þá gott mér líka. Svo sagði hann að hann hefði því miður ekki tíma til að leika við hana af því að hann þurfti að fara að sækja Bjarka bróður sinn.
Alveg að fullorðnast á hverjum degi... og vá hvað það er stutt í grunnskólann. Veit ekki hvort það verður erfiðara fyrir mig eða hann???? Grunar mig ;-)

12. febrúar 2008
Pælingar um lífið og tilveruna
KS í bílnum - upp úr þurru: Þegar ég verð stór þá ætla ég að kaupa mér föt í Dressman.
GB: Hvernig föt þá?
KS: Svona fín spariföt, hatt, vesti og skyrtu
GB: Og hvenær ætlarðu að fara í þau?
KS (hneykslaður): Nú þegar ég fer að hitta kærustuna mína.
GB (spurningaóða mamman): Frábært og hvert færuð þið?
KS: Niður á tjörn auðvitað á rómantískan veitingastað!
Of course....
Við Gummi vorum að tala um tungumál (man ekki í hvaða samhengi) og ég taldi upp íslenska, enska..
og þá heyrðist í KS - I AM YOUR FATHER!!!
Og í morgun var KS að skipuleggja konungsríkið okkar.
Ég er auðvitað drottningin, hann prinsinn, Sigga frænka þjónustustúlkan og Þórlindur frændi hershöfðinginn!
Alltaf stemning :-)

9. febrúar 2008
Rífandi

Þeir dilluðu sér og hristu í takt við Wiggle Wiggle lagið hennar Svölu. Strákarnir mínir fíla svona stuð og stemningstónlist. Ekki sýndu þeir eins sterk viðbrögð við Ragnheiði Gröndal. Kjartan Sveinn kunni textann og söng með hohoho we say heyheyhey og það er hans uppáhaldslag. Hann var líka hrifinn af dr. Spock laginu síðast og þá voru bræðurnir duglegir að slá hausunum saman í takt við lagið. Rokkarar með danstakt.. góð blanda af foreldrunum.
Mér fannst vanta kraft í lagið hans Barða - eða flytjendurna og þá helst var eitthvað dauft yfir söngkonunni.
Lagið kemst örugglega áfram og ég vona að þau hressi sig fyrir lokaþáttinn.

5. febrúar 2008
Girl talk
Er ekki að tala um nýja þáttinn hennar Kolfinnu á ÍNN. Nei ég fann podcast þar sem konur á x-aldri (ca mínum aldri og já það eru konur ekki stelpur af því að ég ung kona.. enn þá en kona) tala saman (kvarta yfir) um kallana sína, uppeldi, togstreitu vinna/heima og um sjónvarpsþætti... þær tala um gossip girl og fleira skemmtó. Þetta er saumaklúbbur online og þær eru fyndnar og skemmtilegar - minna mig á vinkonur mínar og nokkur góð samtöl þar sem við kvörtum yfir köllunum/krökkunum/heimilisverkum, ranglæti heimsins eins og þegar skyndilega án aðvörunar hætt var að framleiða Veronica Mars og GG - . Það eru skemmtilega hressandi samtöl. Líka þegar við tökum uppeldisumræðuna og þá verða allar að vera sammála um að lífið er erfitt - smá sjálfsdiss og lýsum börnunum sem óalanadi og óferjandi - en hinar eru duglegar að peppa upp. Þetta þarf ákveðna tækni en það er ekki vel séð að mæta og segja að börnin séu fullkomin og að við séum fullkomnar mæður - sem við og þau auðvitað erum. En við verðum að ýkja það slæma og draga úr því góða. Það er skemmtilegt og fyndið og þá skiljum við hvor aðra og tengjumst í ófullkomleika okkar. Við styðjum hvor aðra og segjum oft oft oft að við séum að gera okkar besta og það sé ekki hægt að gera allt alls staðar af því að það er heilagur sannleikur.
Auðvitað tökum við líka hina umræðuna. Við tölum um það hvað við erum heppnar að eiga menn sem vilja eiga fjölskyldulíf og vilja taka þátt í lífi okkar og barnanna. Okkur finnst að það eigi að vera sjálfsagt en við vitum betur. Heimurinn er fullur af fótboltaelskandi gólfarabullum sem taka lélegan fótboltaleik framyfir fjölskylduleik í húsó. Skil ekki af hverju? Þannig eru mennirnir okkar alls ekki og það er gott. Börnin okkar eru frábær! :-) Við mæður/eiginkonur/vinkonur/ erum alltaf að læra nýja hluti í leik og starfi og við erum duglegar að fara í ræktina og rækta sál og líkama. Ansi hreint flottar mömmur á uppleið. Hvað svo sem það er??
Annars borðaði ég brauð í dag og súkkulaði. Það er ekki gott en afsökunin er Sprengidagur og önnur er að í hvert einasta skipti sem ég kveikti á útvarpinu í dag var nýja lagið hans Magna um hana Eyrúnu sem Heimir samdi. Af hverju veit ég þetta og af hverju samdi Heimir lag um MogE? Ég kann orðið textann - sem er ekki góður en ekki alslæmur. En þetta er of mikið af því góða.
Svo mátti ég líka borða af því að ég er að vinna eitthvað aðferðafræðiverkefni.
Einnig gaf ég mér nammileyfi af því að ég leyfði mér að taka Veronicu pásu og nammmi nammmmi.
Eitt enn- mikið sakna ég vinkvenna minna - greinilega hrikalega mikill söknuður í gangi þegar maður þarf að fara í saumó online. Goddammitt. ;-)

2. febrúar 2008
Finnst þetta æði....
Svona er laugardagskvöldið - heima að læra og hlusta á tónlist. Gæti alveg verið verra.... en líka betra hehe. Aðferðafræðin er moodkiller dauðans. Garg!
Þetta er Yael Naim - lagið er í nýrri MacAir auglýsingu og er að slá í gegn í USA.

1. febrúar 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
▼
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
▼
febrúar
(12)
- Að ná jarðtengingu Síðustu vikur hef ég verið að ...
- Einbeitingarskortur á háu stigi Gæti verið spenna...
- Óþarfa mórall Ég veit ekki hvort ég hafi verið að...
- Hver vill dansa? Þetta er svo ótrúlega mikið up...
- Veikindi Við fjölskyldan lentum í flensunni í þe...
- Akkuru er Ellý í úlpu? Skil ekki alveg þetta úlpu...
- Vikan á enda. Tíminn flýgur gjörsamlega enda um n...
- Pælingar um lífið og tilveruna KS í bílnum - upp ...
- Rífandi Þeir dilluðu sér og hristu í takt við Wig...
- Girl talk Er ekki að tala um nýja þáttinn hennar ...
- Finnst þetta æði.... Svona er laugardagskvöldið -...
- Egóið hans Bubba? Fínt að sungið er á íslensku. E...
-
►
desember
(14)