31. desember 2008

Árið

Topp 10 komment hjá KS

1. Mamma (eftir að ég sagði að gömul kona væri svo myndarleg og falleg) ekki segja mér að þú sért að íhuga að byrja að verða lesbía.
2. Fj.. Fjjj.. ffff. ó mamma ég var næstum búin að segja F orðið. (hvaða orð?). Æi þú veist þarna fffffff nei ég get ekki sagt það - það er svo hræðilega ljótt. (nú jæja ok). Æi þarna þú veist maðurinn sem stjórnar undirheimunum.... FJANDINN.
3. Mikið rosalega er hann Bjarki illa upp alinn. Það þarf að fara að aga hann svoldið til.
4. Ég vildi að börn fæddust bara svona 3ja ára.
5. GFS og GBK voru að horfa út um bílrúðuna og sáu manneskju og voru að spá hvort hún væri karl eða kona.. stelpa eða strákur. Þá sagði KS: Kannski er hann KYN-VILLTUR.
6. Við aðstoðarskólastjórann í skólanum um óþekkan dreng. Veistu, ég vil ekki segja þér þetta - en ég bara VERÐ..... Ég held að uppeldið á honum XXX hafi bara GJÖRSAMLEGA misheppnast!
7. Ég er að teikna úúú á Davíð.
8. Það bera allir ábyrgð á kreppunni. ALLIR. Líka forsetinn! Líka þú og ég mamma! Allir hafa eytt of miklum peningum.
9. Mamma - Þú sagðir að þú værir búin að ljúka verkefnum þínum í skólanum. Hvað ertu þá að gera í tölvunni? (mamman í tölvunni og vanalega var það lrædómur sem var afsökunin en greinilega ekki meir.)
10. KS að skipuleggja konungsríkið okkar.
Mamman er auðvitað drottningin, hann prinsinn, Sigga frænka þjónustustúlkan og Þórlindur frændi hershöfðinginn!

0 comments:

Blog Archive

Um mig