Morgungleði
Það er alltaf skemmtilegt að vakna á morgnana. Ok - kannski ekki alveg alltaf en langoftast. Bjarki byrjaði á því að hlæja að bumbunni á pabba sínum og þar með var búið að stilla stemninguna.
Ég kveikti á útvarpinu í eldhúsinu og á öllum jólaljósunum. Ristaði brauð handa strákunum og gaf þeim appelsínusafa að drekka með. Útbjó heilsusamlegt nesti handa KS og hlustaði á meðan á Grétu vinkonu mína tala um náms-og starfsráðgjöf í HR. Hún er snillingur hún Gréta - ótrúlega jákvæð og full af lífsorku. Hef eiginlega sjaldan kynnst öðru eins... enda verð ég að viðurkenna að ég sæki í að vera nálægt henni í skólanum. Það er bara svo hressandi og notalegt. Þetta var því óvænt ánægja. Best fannst mér þegar Gréta sagði að hugurinn þyrfti ekki að vera í kreppu. Í viðtalinu komu fram margir góða punktar og frábært að heyra í náms- og starfsráðgjöfum. Það er víst nóg að gera hjá þeim þessa dagana. Ræði það kannski betur seinna.
Á leiðinni í skólann var ég með kveikt á útvarpinu. Alltaf tilbúin að slökkva ef einhver leiðindi byrja. Þá heyrðum við í Láru Ómarsdóttur en hún kom með sparnaðarráð fyrir jólin. Ég elska svona sparnaðarráð. Þau virka nefnilega mjög oft. Við GFS höfum ekki verið á blússandi ferð í góðærinu - alltaf annað okkar í námi þannig að við höfum tileinkað okkur nokkuð mikla nægjusemi. Lára sagði að fólk ætti að ákveða hversu miklu það ætlar að eyða og standa svo við það. Þetta á við um fleiri tíma ársins en þó sérstaklega núna.
Annað sem hún sagði og ég vil endilega koma á framfæri. Það MARGborgar sig að kaupa gjafir tímanlega. Búðirnar eiga það til að hækka markvisst eftir 15. des og ekki gaman að lenda í því. Svo er æðislegt að vera búin að kaupa eða búa til gjafir tímanlega og geta svo dúllað sér á aðventunni- tja til dæmis við lærdóm... hehe.
Þegar ég kom heim kveikti ég enn og aftur á útvarpinu. Alls ekki búin að fá nóg af jákvæðu umræðunni sem virðist vera í gangi. Þá var Hafliði Kristinsson fjölskylduráðgjafi að hvetja fólk til að endurskoða gildi sín. Síðustu ár hefur ekki endilega verið góðæristími hjá mörgum fjölskyldum þó þær hafi átt fullt af peningum. Góðærið gerði kröfur á fólk á að vinna mikið og gera mikið. Nú er kannski tími til að vinna minna eða fara í skóla og gera allt til þess að njóta lífsins.
Það er sko eitthvað sem er ómetanlegt!
Gangi ykkur öllum vel í dag á afmælisdegi aðalskvísanna en Hjördís vinkona og Britney vinkona eiga afmæli í dag!! Jeijei.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(32)
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
september
(6)
-
▼
2008
(174)
-
▼
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
- Dagurinn Gleymdi lyklum heima Gleymdi síma heima...
- Einn í jakkafötum. Hinn í náttfátum og Bubba stí...
- Doldið sætur...
- Lærilíf Var að læra í dag og fer að læra á morgun...
- Lengi getur vont versnað Mikið er þessi: I told y...
- Morgungleði Það er alltaf skemmtilegt að vakna á ...
-
▼
desember
(14)
2 comments:
Jeij, afmæliskveðja á sjálfu blogginu. Vúhúhú hvað ég er fræg. Næstum því jafn fræg og Britney sálufélagi minn.
Jamm enjoy it!! hehe.
Hafðu það yndislegt og gott í jólafríinu kæra vinkona!
Sendu inn athugasemd