4. desember 2008

Lengi getur vont versnað

Mikið er þessi: I told you so.. tugga DO orðin leiðinleg. Maðurinn var við völd þegar einkavæðing bankanna fór í gegn. Hann ber jafn mikla ábyrgð og hinir ráðamennirnir. Hann var við stjórn Seðlabankans þegar bankarnir hrundu. Skiptir það ekki máli? Gæti verið ef hans persónulega óvild í garð "götustrákana" hefði ekki verið svona mikið issue að eitthvað hefði verið hægt að gera? Ég er þó ekki að segja að bankarnir beri ekki ábyrgð. God knows... þeir bera allir ábyrgð. Ef þeir gætu bara viðurkennt það.

Ef DO fer aftur í pólitík mun ég taka þátt í prófkjöri og kjósa hann ekki. Ef hann nær einhverjum árangri þá flyt ég. Þetta er óþolandi ástand og hann er BULLY - ekki gott íslenskt orð sem hægt er að lýsa því hvernig hann er. Getur hann ekki sest í helgan stein og skrifað bækur eða samið ljóð? Skilur hann ekki að hans tími er liðinn? Sama hvað hann segir og gerir? Það er nóg komið! Miklu meira en nóg. Ég er BRJÁLUÐ. Og verst er að heyra í já kórnum sem rís nú upp frá dauðum og fagnar endurkomunni.

Þetta er eins og þegar - sá sem ekki má nefna - sneri aftur í HP. Nú vantar okkur Harry Potter og Obama týpuna. Ég er enn að bíða og vona.

0 comments:

Blog Archive

Um mig