29. október 2008

Ósmekklegt

Mér finnst frekar glatað að eigandi Sterling sem nú er farið á hausinn grínist með það að hann geti ekki farið til Dene á næstunni og hann ætli þá bara til Alicante.

Ég fletti Nýju Lífi um daginn og gjörsamlega blöskraði þegar ég skoðaði fatahugmyndir ritstjóranna. Skósíðan var full af háum hælum þar sem parið kostaði 30 til 90 þúsund. Svo var opna með alls konar fatnaði fyrir konur. Peysa á 60 þúsund og kjóll á 80 þúsund. Fötin voru öll á svona rugl verði. Merkin voru fín og flott en fötin voru ekkert flottari en margt í Vero og Oasis. Hvaða snobb er þetta? Var þetta auglýsing eða hvað? Þetta var ekki sett upp sem auglýsing en fyrir minn smekk og örugglega fleiri er þetta gjörsamlega óviðeigandi á þessum tímum - tja og á öllum tímum. Meira að segja InStyle og fleiri tískublöð blanda saman ódýru og designer fötum. Gefa hugmyndir um hvernig hægt er að klæða sig smekklega án þess að það kosti of mikið. Mér ofbauð okrið.

Mér finnst frekar glatað hvernig staðið er að mótmælum. Komið kl. 15 eða 16 og mótmælið einhverju bara til þess að mótmæla en frekar með okkur en hinum. Þörf er á samstöðu og einingu ekki klofningi, ósamstöðu og heimsku.

Já ég er svoldið pirr í dag!

2 comments:

Sólin sagði...

#1 - Sammála. Algjörlega glatað.
#2 - Sammála. Er samt ekki verst. Verst er að ég þekki alveg fólk sem kaupir þessi föt og finnst bara EKKERT að því.
#3 - Æ já. Frekar fráhrindandi eitthvða að taka þátt í svona. Soldið týpískt íslenskt samt. Meira segja í mótmælaaðgerðum á svona tímum er fólk að ota sínum tota.

Guðrún Birna sagði...

Já varðandi #2 þá vissi ég ekki að það væri hægt að finna svona mikið af fáránlega dýrum fötum og ok kemur mér ekki við hvað fólk kaupir... EN þetta var nýjasta tölublaðið og það er það sem mér fannst svo hallærislegt og ósmekklegt ;-)

Blog Archive

Um mig