30. desember 2007

Gríðarlega góð jól

Mikið er gott að vera fríi. Jólin eru yndislegur tími - sérsaklega er ég hrifin af tímanum eftir aðfangadagsgeðveikina. Krakkarnir hafa fullt af nýju dóti að skoða, foreldrarnir hafa nóg að setja saman og inn á milli fá sumir meira að segja að kíkja í bók. Allir sáttir :-) Ég er búin að lesa 2 bækur, fyrst var einhver froða Three Day Rule sem fjallaði einmitt um jólin og fjölskyldufílinginn sem þeim fylgir - allt í lagi afþreying. Þá tók ég upp jólabókina - Ösku eftur Yrsu Sigurðardóttur, spennusaga sem gerist að mestu í Eyjum. Fín bók og lipurlega skrifuð. Varð svoldið pirr um miðbik bókarinnar vegna þess hversu hluti af plottinu var fyrirsjáanlegur en well var að öðru leyti nokk sátt. Ég fékk 2 eintök af þessari bók og þarf því að skila og fá mér eitthvað annað að lesa sem er sko ekki leiðinlegt. Fjölskyldan mín er ekki stór og því skrítið að fá tvö eintök af sömu bók... segir mikið um fjölskylduna, talar ekki mikið saman (sérstaklega ekki um gjafir) en hugsar greinilega eins!

Nú veit ekki hvað ég á að gera næst. Lesa meira eða glápa eitthvað? Ótrúlega skemmtilegt að hafa úr þessu að velja.

Í fyrramálið erum við fjölskyldan að fara í áramótakaffi og þar verða allavega 11 börn - 5 ára og yngri... HILFE.

Annað kvöld verðum við í góðum fjölskyldugír með sömu vinum en aðeins færri börnum og líka aðeins færri fullorðnum. En það verður mikið stuð :-)

Gleðilegt ár og gangi ykkur vel á því næsta.

27. desember 2007

Nýjar myndir á síðu þeirra bræðra

26. desember 2007

Britney og jólasveinarnir


Britney Spears hefur átt erfitt ár. Hennar dyggustu vinir og stuðningsmenn, jólasveinarnir sem elta hana eru þeir einu sem enn hafa trú á prinsessunni. Eða þá að þeir vita að hún er alltaf að rugla og hægt er að græða á henni. Einstaka sinnum í vetur hef ég horft á vídeó af henni - á bensínstöð eða á leið á hótel - og ég finn til með henni þegar ég sé glampana og köll jólasveinanna sem dúndra á henni 24/7. Ég er alltaf jafnhissa á að hún nenni þessu. Hún getur sent fólk út í búð fyrir sig. Hún þarf pottþétt ekki að keyra um borgina sjálf og hún á heimili og þarf ekki að gista á hótelum. Hvað er málið? Um daginn sá ég brot úr heimildarmynd um Michael Jackson og þar sást hvernig hann lék sér með frægð sína og gerði út á geðveikina. Núna er nokkuð ljóst að Brit Brit gerir slíkt hið sama. Munurinn er að fréttirnar koma út á sama klukkutíma og þær gerast gegnum netið. Það er ekki erfitt að vita hvar Unfitney er og hvað hún er að gera. Og hvað var hún að gera korter í jól, þegar venjulegt fólk undirbjó jólin og var með fjölskyldum sínum og fræga fólkið flúði stjörnuborgina og fór á skíði? Hún ákvað að fara á 3 bensínstöðvar og endaði svo á hóteli með einum jólasveininum. Er hún algjörlega kolklikkuð? Jaaaaaa. Ef maður spáir í það þá á hún í eldheitur ástar/haturs sambandi við papparassana og ekkert skrítið að hún skuli pikka einn upp. Eða hvað? Nei það er skrítið og hún er gersamlega geðveik greyið.

Enn einu sinni óska ég henni góðs bata og vona að hún finni leiðina heim til sín aftur, burt frá hótelinu og frá bensínstöðvunum. KFed er í alvöru ekki eins slæmur þegar maður hugsar málið. Klikk klikk.

23. desember 2007

Gleðileg jól!


19. desember 2007

Frelsi!

Jei jei jei. Búin í síðasta prófinu og það gekk ágætlega miðað við aðstæður. Held nú alveg að ég nái en fæ kannski ekki þá einkunn sem mig langaði að fá. Kemur í ljós í jan.

Það er svoldið erfitt að bíða svona eftir einkunnum. Finnst prófin ekki búin fyrr en einkunn er komin í hús..
Ég er rosalega ánægð með veturinn og finnst námið ótrúlega skemmtilegt en krefjandi. Þessi vetur hefur ekki verið alveg venjulegur og ekki auðveldur. Bjarki komst ekki á leikskóla fyrr en í lok sept og var veikur í hverri einustu viku í okt., nóv. og tala ekki um des. Fór ekki í 3 vikur á leikskólann. Núna er hann á sterkum pensilín kúr en fyrir helgi var enn vottur af lungnabólgu, hann með eyrunum, líklegast sýkingum í kinnholunum og astma. Hann var fljótur að hressast eftir að hann fékk lyfin en núna er hann ekki beint lasinn en hann er þreyttur og pirraður og já svoldið ofbeldishneigður... Þess á milli hleypur hann um íbúðina og snýr sér í hringi alsæll.

Kúrsarnir sem ég er búin með eru Náms og starfsfræðsla, Skipulögð vinnubrögð í námi og starfi, Inngangur að námsráðgjöf og Viðtalstækni. Var líka í Starfsþjálfun sem er kúrs sem tekur allt árið. Eftir áramót fer ég í starfsþjálfun í skóla - sótti um að vera í framhaldsskóla 2 daga í viku. Mjög spennt fyrir því :-)
Mér finnst ég mjög heppin að hafa komist í þetta nám og hef gríðarlegan áhuga á því og ekki skemmir áherslan sem lögð er á náms- og starfsráðgjöf í nýju frumvarpi fyrir leikskóla, grunn- og framhaldsskóla. Ef til vill geri ég smá útdrátt úr því sem ég hef verið að læra og það sem mér hefur þótt áhugaverðast og skemmtilegast. Núna þegar ég hef allan tímann í heiminum! Á bara eftir að kaupa nokkuð marga pakka, pakka pökkum, fara í klipp/stríp, kaupa mér ný föt, kaupa á strákana smá meiri jólaföt, klára jólakort og senda, setja upp fullt meira jólaskraut og taka til í nokkrum skápum. Plús þetta venjulega versla, þrífa, þvo og hugsa um drengina og sjálfa mig og sofaaaaa.

Að öðrum skemmtilegum málum. Er að fara að hitta vinkonur mínar á fös. og ég hlakka gríðarlega mikið til. Hef ekki farið út á meðal fólks (nema í skólann) síðan í september. Nema jú reyndar hefur vinur Gumma boðið okkur í mat og það hefur líklegast bjargað geðheilsunni í haust. Gott að eiga góða vini! Ómetanlegt jamm.

Þá er það lokaþáttur ANTM - hef ekki fylgst vel með í vetur en ég stalst í Grey sem er núna og mig langar að njóta þess að slaka á með þvílíkt góða samvisku.
Jóla jóla jól jól.

18. desember 2007

Jóla jóla

Á morgun verð ég frjáls undan endalausum fræðilegum pælingum. Frjáls til að sökkva mér í jólaundirbúning og jólastemningu.
Ég er að reyna að segja sjálfri mér að á morgun verður stressið liðið hjá en... ég á eftir að gera ansi mikið. Ég hugsa betur um það á morgun. Kjartan Sveinn spyr mig á hverjum degi hvenær ég fari í jólafrí. Mikið verður gaman að hitta hann á eftir og segja honum að á morgun verð ég komin í jólafrí :-)

Bjarki fór í leikskólann í dag og í gær. Í dag - daginn fyrir mjög umfangsmikið próf er jólakaffi hjá honum og einnig tími hjá lækni. Svona er þetta bara og ég get þó þakkað fyrir að krílið mitt svaf ágætlega í nótt og er að strykjast á hverjum degi.

Jóla jóla jólafrí.

13. desember 2007

Ekki allir í stuði?

Próf á morgun og hvað er betra en smá Spice. Veit um eina sem er að fara á tónleika og úfffff hvað ég er jealous.. Ekki út í það einu sinni. Allavega fékk gæsahúð og meira að segja smá tár í augun. Kannski er það þreytan, stress og álag eða kannski er Spice bara svona magnaðar!

Deili hér með lesendum broti af englasöng sonar míns.
Hann er auðvitað ekkert rosalega einbeittur, líka svoldið að skoða altarið og svona... en syngur inn á milli með mikilli innlifun.
Ég þori varla að segja það - en þetta var á vegum leikskólans - og mikið svakalega var gaman og dásamlegt að sjá krílin og heyra í þeim!

12. desember 2007

Ljótur bloggheimur

Ég man rosalega vel eftir því þegar við vinkonurnar fórum til NY í verslunarferð 2005 - hvað við vorum skíthræddar við tollverðina. Alsaklausar og settlegar húsmæður frá Íslandi á leið í verslunarferð. Við höfum 2 verið au-pair og ég veit að ég passaði mig nú að vera ekki lengur en 90 daga en það gerðu ekki allir og vá þessi umfjöllun grey stelpunnar: http://www.erla1001.blog.is - 12 ár síðan - hefur farið til US í millitíðinni og við erum að tala um 21 dag framyfir leyfilegan tíma. Ok ef henni hefði verið snúið við og ef hún hefði fengið viðvörun eða tilkall en þetta er HRIKALEGT. Og kommentin eru mörg ógeðsleg og ótrúlegt hvað það eru margir hálfvitar sem þykjast vita allt um allt en vita ekki neitt um mannlegan kærleik. Þetta fólk þyrfti á smá tiltali að halda og jafnvel viðvörun! Svo er rosalegt hvað bróðir hennar er að verja hana og svara þessum hálfvitum. Skil hann mjög vel og finnst hann fyrirmyndar góður bróðir, en það er ekki hægt að tala við svona fólk... myndi bara deleta þessum ömurlegu kommentum. You have been warned!

11. desember 2007

Allt í einu fór sonur minn að tala annað hvort mjög hátt eða í vælutón.

Fattaði að þetta er auðvitað hinn frábæri tími fyrir jólin þar sem krílin verða kreisí og foreldrarnir meira kreisí.

Hann talaði með skrækum tón og ég er nokkið vissum að einhvers konar hátíðnihljóð hafi fylgt með þegar hann talaði um að hann langaði í gæludýr í dag. Svo kom vælutónn: Mig langar í gæluuuuuudýr.

Ég svaraði auðvitað ekki enda bara klikk og kreisí bull. Nema jú sagði að auðvitað mætti hann fá gæludýr - árið 2025.

Hann leit á mig og sagði svo, með ótrúlega eðlilegri röddu: Ok - það er líka miklu skemmtilegra að eiga lítinn bróður en gæludýr!

Sammála er ég - nema að ég skil ekki alveg hvernig hann fær þetta út. Bróðir hans búinn að vera veikur í 3 vikur og ég pirr í próflestri og allir hanga inni allan daginn alla daga (fyrir utan leikskólann og vinnu Gumma). Samt er hann skemmtilegur og betri en gæludýr! Kannski hefur einhver gleði og góðmennsku boðskapur náð eyrum hans - vildi óska að sá boðskapur næði munninum lika og hann gæti aðeins LÆKKAÐ í sér. Good times.

7. desember 2007

Þá vil ég nú frekar lesa um Unfintey Brit Brit og uppátæki hennar - heldur en þetta: http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1307577

Maður á bara ekki ORÐ!

5. desember 2007

3. desember 2007

Flashback dauðans

Upp stigann, framhjá kaffistofunni, toga eða ýta þungu dyrunum, finna borð, setjast niður. Einu sinni tók þetta ferli allt heljarinnar langan tíma. Félagarnir voru hér og þar á leiðinni. Oft var stoppað á kaffistofunni á leiðinni upp.. fáir farsímar, fáar tölvur, truflunin var að mestu hugsanir og dagdraumar. Mikið gat ég hangsað og hangið á hlöðunni í den. Ég byrjaði meira að segja að fara á bókhlöðuna í 10. bekk. Mér fannst ég mjög töff þegar ég var að læra undir samræmdu prófin en þóttist vera í MR. Hversu oft laug maður ekki til um það - bygones. Ég man eftir óteljandi hlátursköstum þar sem einhver endaði á að hlaupa út. Stress og hormónin. Reyndar gerðist þetta líka í HÍ en var algengara í MR. Oft var hrúga fyrir utan á morgnana, tekin frá sæti, hlaupið inn og fólk slegið niður á leiðinni. Ég var ekki oft mætt svo snemma en ég heyrði um þetta. Var meira fyrir að láta taka frá sæti fyrir mig eða treysta á heppni og verri sæti enda mikilvægast að mæta á staðinn ekki hvenær eða til hvers.

Í dag var hvorki horft til hægri eða vinstri. Stanslaust pípp í gsm símum truflaði mig ekkert mjög, ekki heldur úlpur á víð og dreif, ekki pískur og hvísl. Notaleg nostalgía sem fylgir þessu flestu. Ég hef ekki tíma til að stoppa og hlusta. Bara tími til að setjast niður og lesa og hugsa. Núna hugsaði ég um námsefnið og las kaflann af áhuga og með einbeittum vilja. Mjög mikil og kærkomin breyting. Börnin og ég vorum heima í dag og ég gat aðeins kíkt í bækur og undirbúið bókhlöðuferðina miklu sem ég fór í um leið og Gummi kom heim. Var ekki lengi en náði að fá skrifkrampa og vöðvabólgu. Þetta er eins og harðsperrur íþróttamanna - slæmir en samt góðir verkir. Svona er þetta rétt í byrjun próftarnar. Stoppaði svo í sjoppu á leiðinni heim, keypti mér pylsu og Sport Lunch :-) gooooood times!

Blog Archive

Um mig