30. nóvember 2007


Gott kaffi

Mér finnst kaffi venjulega ekki gott. Fæ koffínið mitt annars staðar... En fékk Frappochino hjá ÞogT um daginn og það var rooooooosalega gott. Fór svo í matarboð til Marinos og nöfnu minnar og þar útbjó M handa mér hrikalega gott kaffi. Held það hafi verið kaffi latte en ég hef nú fengið svoleiðis áður.. held ég. Þetta var í glasi og mig grunar að einhvers konar síróp hafi við bætt út í. Ekkert venjulegt kaffi getur verið svona gott. Síðan þá (vika síðan) hefur mig dreymt um svona dekurkaffi. Er að spá í að senda G til M og fá heimsent. Hann gæti stoppað í sjoppu og keypt nammi líka.. og svo er það Tekinn og Stelpurnar. Fullkomið kvöld :-)
Fótboltahornið í Hagkaup

Er ég eina konan sem heimta svona horn fyrir mig og börnin (samt aðallega mig)? Þoli ekki að versla og hver væri ekki til í að setjast aðeins niður í milljón fermetra búð og jafna sig á kaupæðinu? Ég ætla að setjast þarna í einhvern leðurstólinn og skipta svo um rás. Hvaða bull er að ætla bara að sýna fótbolta. Afturhvarf til fortíðar og þó ég ætli ekki að vera sammála Sóleyju T. þá fíla ég þetta ekki. Vil líka skemmtilegt hangsi horn!
Einstæð móðir í einn dag

Það hefur gengið afskaplega vel að vera einstæð móðir í einn dag.
Kemur mér á óvart hvað ég sjálf er öflug - enda búin að skila verkefni, frekar vel sofin og hress. Munar öllu! En það verður alveg fínt að fá kallinn heim. Hef verið svo pirruð undanfarið að það kæmi mér ekkert á óvart ef hann yrði bara áfram í útilegukofanum.....

29. nóvember 2007

Ekki blogg eða blogg

Ég er eins og margir að leika mér í Facebook. Elska öll svona persónuleikapróf og spurningaleikina og Hangman (takk sá sem sendi mér það - snilld).
Oft spái ég þessa bloggþörf mína. Skrifaði nett össurarblogg í vikunni sem ég tók svo út en það var svoldið vælulegt en ég var samt aðallega að reyna að gera grín að sjáfri mér - var ekki alveg að takast. Allavegannnna. Bloggið er mér mikilvægt. Ekki útaf kommentum, tenglunum, útlitinu, lestrartölum (veit ekkert um þær samt), þó mér finnist æði að sjá hverjir eruð að lesa og hvað fólki finnst um hitt og þetta, heldur er þetta dagbókin mín. Ég skoða ekki mikið gamlar færslur en það var nokkuð skemmtilegt að lesa bloggið frá því fyrir 4 árum og sjá hvað ég var að spá þá, hvernig KS var að sofa og hvað ég var að gera og ekki gera, sjá hér: http://gudrunbirna.blogspot.com/search?updated-min=2003-01-01T00%3A00%3A00Z&updated-max=2004-01-01T00%3A00%3A00Z&max-results=50

Þar eru líka myndir af KS og mér finnst bræðurnir alveg nokkuð líkir. Krúttin mín.

Ég held áfram að blogga og er stolt af því - svona langoftast :-)
Síðasti kennsludagur

Við vorum að prenta út síðasta hópverkefni vetrarins. Gekk held ég mjög vel en það er erfitt að segja til um það þegar maður hefur ekki önnur verkefni til að miða við. Verkefnið var MJÖG kennaramiðað og þess vegna frábært að vera með 2 kennurum í hóp, Fríðu og Halldóru. Við Adda komum svo sterkar inn þegar ekki-kennaramiðaða efnið var, t.d. litaði ég töflurnar okkar á mjög skemmtilegan hátt, ég notaði uppsetningarreynsluna af Mogganum (smámunarsemi dauðans) og Adda græjaði heimildaskránna! ;-) Jei jei bara próflestur framundan. Einhvern tímann hefði maður nú skálað en núna er svefn það sem rokkar.

Bjarki er sofandi. Hann er með lungnabólgu. Hefur verið heima þessa viku og hálfa síðustu viku. Elsku litla bollan mín er að hverfa.. lærin sem voru svo klípuleg og krúttleg eru að verða venjuleg. Ég þarf þá ekki að kvíða jólaboðunum í ár... En hann er hressari í dag en í gær og það er gott. Ætla að slaka á seinni partinn með strákunum mínum og hafa það kósý.

Um helgina er svo jólaball og próflestrar/lokaverkefnis undirbúningur.

Talandi um það. Á að taka viðtal við einhvern í Viðtalstækni námskeiðinu og var búin að plana við hvern EN svo segir kennarinn að það sé best að það sé ekki einhver of nákomin mér. Er einhver sem les þetta blogg sem á í einhverju námsörðugleikum sem fléttast nett inn í persónuleg vandamál og kannski eitthvað meira með - og vill opna sig fyrir mér? Og getur talað um sig í ca 30 mín og má taka upp á video? Ef svo er má hinn sami senda mér línu á gmailið.. eða hringja í mig. Ég efast um að fá svör.. en you never know. Veraldarvefurinn er stórkostlegur. Bíð spennt!

26. nóvember 2007

Home again...

með Bjarka. Hann er með massívan astma og ósofinn eftir margra daga svefnleysi og óróleika. Finnst hann aðeins hressari eftir daglúrinn sem ég ákvað að taka með honum. Við erum hress jamm og nokkuð úthvíld. Sem er skemmtileg tilbreyting :-)

24. nóvember 2007

Hefur einhver fundið 27 staka sokka?

Skrítið hvernig sokkarnir hverfa á heimilinu. Er að spá hvort að einhver alræmdur sokkaþjófur sé á reiki hér í hverfinu eða kannski einhver af vinum/ættingjum eigi við alvarlegt sokkasafnaravandamál að stríða.

Einhvers staðar hljóta 27 stakir sokkar að vera. Einnig vantar skeiðar og nokkra vettlinga.

19. nóvember 2007

Dagurinn í dag

Var mun betri en dagurinn í gær og síðustu dagar. Ég fór aðeins út til að fara með og ná í yngri drenginn í leikskólann. Kjartan Sveinn var með mér enda þúsundasti starfsdagur þessa árs í dag.
Var það ekki bara fyrir örfáum vikum síðan að hann var heima í 2 daga og svo fyrir nokkrum vikum var BF heima. Ég skil ekki hvernig vinnandi fólk á að fara að. En reyndar fíla ég mjög þessa daga og finnst æði að fá einn auka dag til að dúllast með drenginn. Í dag lék hann sér í Lego á meðan ég lærði og svo fékk hann félaga sína 2 í heimsókn. Þeir léku sér í riddaró, playmó, legó og sjóræningjó og ég verð að viðurkenna að það var ekki mikill friður - en það var fjör-ó.

Ég veit að ég skrifa mikið um barnið og börnin enda fátt annað sem kemst að þessa dagana. Nema jú lærdómur. Allavega engar skammarlegar, skemmtilegar eða hressilegar djammsögur. Ekki einu sinni bíó-bóka-kaffihúsa sögur. Ekki verslunar-gönguferða-sumarbústaða-vina sögur. Einfaldlega af því að ég fer ekkert út. Ahhhh og það er ansi notalegt :-) En líka nauðsynlegt!

Þá enda ég þetta blogg með kommenti dagsins....
GB: Heldurðu að BF fái í skóinn?
KS: Hvað meinarðu?
GB: Nú heldurðu þú veist að hann sé nógu gamall?
KS: Jaaaaa, ég veit það ekki. Kannski heldur hann að mömmurnar og pabbarnir setji í skóinn!
GB: Hmmmmmm hver segir það?
KS: Enginn. Ég er ekki að segja að ég haldi það. Ég held að hann haldi það.
GB: Ja, ég veit að ég fékk allavega í skóinn þegar ég var lítil. Hvernig dettur þér þetta í hug?

Svo fórum við í smá spjall um þetta en eins og svo oft nennir hann ekki að spá of djúpt í hlutina þegar mamman er að taka viðtalstæknina á hann... eða reyni að fá hann til að útskýra betur. Bottom line er að barnið er alveg að fatta.. en þykist ekki fatta því hann vill auðvitað fá í skóinn. Nú veit ég ekki hvenær hann fattaði þetta eða hver kom þessu að í hausnum á honum. Líklegast enginn. Þetta er búið! :-)

18. nóvember 2007

Smá púst
Núna ætla ég að leyfa mér að pústa aðeins. Þannig að þeir sem ekki nenna að lesa væl og kvart hættið að lesa NÚNA!

Síðustu dagar hafa verið svoldið erfiðir. Nei ok mjög erfiðir. Fékk einkunn í tveimur verkefnum og var ánægð með aðra en hundfúl með hina. Hvora einkunnina haldiði að ég hugsi meira um? That´s right!

Ég fékk slæmar fréttir sem breyttust blessunarlega í betri fréttir þegar á leið. Í kjölfarið á slæmu/góðu fréttunum varð ég voða tilfinningarík og grét meira að segja fyrir framan hópavinnuvinkonur mínar. Það gerist ekki oft að ég græt en ég á það til. Eftir lítinn svefn og mikið drama þarf mjög lítið til að græta mig. Ég get verið þakklát fyrir að hafa bara ekki verið grenjandi síðustu 2 mánuði og líklegast hópvinnuvinkonur mínar, fjölskylda og vinir líka. Síðustu 2 nætur hafa verið mun betri en nætur síðustu vikna og það er ein útskýring - Bjarka líður betur og er að verða alveg hress. 7-9-13 að þetta haldi áfram svona langt fram á næsta ár!

Það bætti svo ekki ástandið þegar ég náði í BF á fös og fékk mánaðarlega rukkun um 59.860 kr. fyrir plássið hans og þegar ég kom heim kom í ljós að það var búið að stela vetrardekkjunum úr dekkjageymslunni í húsinu okkar = annar 60 þús kall. Svo er auðvitað 22 þús. fyrir KS. Jamm þetta er ekkert sérstaklega ódýrt!

Eftir þessa daga og alltaf eftir erfiða daga og erfiðar stundir þakka ég Guði fyrir allt sem ég á því ég er nefnilega brjálæðislega rík. Verst að KS er pottþétt að hafa þetta eftir okkur pabba sínum á leikskólanum og allir halda að við séum öfga rík.. smá mis þar en mér er alveg sama.

Helgin fór 90% í lærdóm eða að hugsa um lærdóm. Þannig verða næstu vikur og það er fínt. Auðvitað verður enn betra þegar allt er búið... 19. des vei vei vei. Þá koma líka Anna og co og það verður æði að hitta þau öll fjögur. Nú er bara að hugsa jákvætt og vera dugleg og skipulögð... og slaka á þegar það er hægt. Eins og akkúrat núna.

Pústi lokið. Held að þetta sé komið. Takk fyrir og góða vinnuviku.

16. nóvember 2007

Ég get hlegið endalaust af Stelpunum.

Við hjónin erum líka að fíla Næturvaktina.

Bara svona leyfa fólki að fylgjast með...

14. nóvember 2007

K-ið á köku, S-ið á sælgæti, súkkulaði og sleikjó

Kjartan Sveinn hefur lítinn áhuga á stöfunum og við foreldrar hans höfum að sumra mati - gjörsamlega klikkað - í að mennta drenginn. Hann kann varla stafina, er ekki góður í halda á penna og skærum og neitar að teikna annað en hermenn. Við höfum ákveðið að pressa ekki á hann varðandi lestur og annað - enda er það ekki séns þar sem hann hefur engann áhuga. Það er helst að hann langi stundum að geta lesið textann í sjónvarpinu eða lesið sjálfur Andrés en þörfin er ekki knýjandi þar sem hann á mjög viljuga foreldra sem eru til í að lesa og lesa fyrir hann næstum því endalaust. Hann segir bara gerðu það elsku mamma please please.


En í gær var hann svoldið að leika sér með hljóð og stafi. Og við vorum í leik að finna hver ætti hvaða staf og hvaða land og hvað dýr... mamman voða glöð að fá að kenna drengnum jei jei. Svo sagði ég - og hvaða dýr á AAaaaaa. Beið spennt eftir Api eða Asni eða einhverju þannig. Hann hugsaði sig um og sagði svo: AFRÍSKUR FÍLL. Einmitt!

Hann bað mig um daginn að taka Bjarka því að hann og afi hans voru að leika inni í herbergi. Ég var eitthvað að malda í móinn.. sagði æiii má hann ekki aðeins vera með. KS leit á mig með alveg biðjandi augum, brosti til mín og sagði: Gerðu það, elsku besta mamma mín, please, PLEASE! og brosti svo ógó krúttlega. Ég lúffaði og tók litla greyið og lokaði hurðinni. Frétti síðar að hann hefði snúið sér að afa sínum og sagt í samsæristón: Þetta virkar ALLTAF.... og bætti við... hún bráðnar alveg. Afinn bætti þá við: já eins og smjör? KS svaraði sáttur: já eins og SMJÖR!

Hvað á maður að gera við þessi börn? Hilfe!
Er hægt að vera með vöðva öðru megin?

GB: Gummi nennirðu að koma við handlegginn á mér, hérna (bendi á upphandlegg)?
Gummi: Já (hugsar sig um) gæti verið gott að vera rakakrem á hendina.
GB: nei finndu VÖÐVANN?
Gummi: Hmmmm (lengi að þreifa) jaaaa já
GB: Og þá hinum megin!
Gummi: Já ok.
GB: Er þetta ekki skrítið?
Gummi: Að vera ekki með vöðva þá?
GB: Já eða sko að vera MEÐ vöðva bara öðru megin. Þetta getur EKKI verið eðlilegt.
Gummi: Nei það er ekki eðlilegt að vera ekki með vöðva. (horfir á eiginkonuna eins og hún sé nett klikk)
GB: Það er ekki það sem ég er að tala um! En þetta hlýtur að vera þá bara æxli. Getur manneskja verið með vöðva öðru megin?
Gummi: Ég myndi hafa meiri áhyggjur af þessu vöðvaleysi - hinum megin.
GB: Ohhhh karlmenn..

Það er langt síðan að ég lærði að maður ætti alls ekki að ofæfa - viljum ekki vera massaðar og með massaðar hendur. Veit það er langt í land hjá mér. Plús ég er ekki að æfa. En í alvöru talað - er hægt að vera með vöðva bara öðru megin? Ætti ég að fara til læknis og láta athuga þetta. Læknar og læknanemar, fólk með heilbrigðismenntun og nemar í heilbrigðisstéttum - svarið mér!
Dr. Gummi sagði að að þetta gæti verið af því ég held að 12 kg gleðiboltanum meira með annarri en hinni. Is he right???

9. nóvember 2007

Við Kjartan Sveinn vorum að klára HP og viskusteininn.
Þá eru bara nokkur þúsund blaðsíður og 6 bækur eftir. Gef okkur nokkur ár í þetta.

Bjarki Freyr er kominn með hlaupabóluna. Við sváfum lítið í nótt og hann átti erfiðan dag elskulegi drengurinn okkar.
Ég fór og keypti fullt af einhverju til að láta honum líða betur EN stúlkan sagði mér að það væri margir sem segðu að þetta virkaði ekki.. Fannst þetta alveg virka á KS en kannski er þetta eins og svo margt - fyrir foreldrana - svo að okkur líði betur og að við getum verið að GERA eitthvað.

BF var vakandi í gær frá 22-24 og var ELDhress og skildi ekkert í okkur þegar við reyndum að slökkva ljósin og fara að kúra okkur. Hann fór þá beinustu leið og kveikti á lampanum. Hann hossaði sér á okkur, hló og skríkti. Hann labbaði fram á gang og gerði ýmislegt til að fá okkur með sér - þegar hann sá myrkrið heyrðist mjög viðeigandi Oh-o. Gotta love the teletubbies.

Annars er það lærdómur sem bíður og bíður enn. Oh-o.

8. nóvember 2007

Bráðum koma blessuð jólin...

og foreldrarnir fara að stressa sig.

Nei nei ég hlakka ofboðslega til jólanna. Kjartan Sveinn elskar jólin og allt sem þeim fylgir og ég held hann stefni í að vera algjört jólabarn. Við fylgjum með og eigum eftir að tapa okkur með honum í öllu þessu skemmtilega.

Ég hef lengi pirrað mig á auglýsingunum hjá Leikbæ - og núna er ég komin með algjörlega nóg. Sérstaklega pirraði það mig þegar þeir auglýstu að krakkarnir yrðu að DRÍFA sig áður en allt kláraðist. Ömurleg búð þar sem allt klárast - dót handa krökkum sem er selt á ofurverði - verður maður í þokkabót að stressa sig á að NÁ ekki að kaupa dótið. Mikið var ég glöð þegar það kom samkeppni á þennan markað - ég og þúsundir foreldra glöddumst innilega og mér finnst ekkert skrítið að fólk hafi tapað sér svoldið. Loksins úrval sem vit er í, verð sem er fólki bjóðandi og auglýsingar sem byggja ekki á hræðsluáróðri.
Nýjasta útspil hjá Leikbæjar-liðinu er að auglýsa eigin verðkönnun þar sem kemur í ljós að vörurnar eru JAFNdýrar og hjá samkeppnis aðilanum. Rúsínan hjá þeim var eitthvað í sambandi við að það væri hægt að pakka inn hjá þeim og að búðin væri íslensk.. og???? Hvar er gulrótin? Lækkið verðið og það strax! Það er rugl hvað leikföng eru dýr hérna. Garg.

Vildi að ég væri að fara til USA en kannski nægir bara að fara í Toys R Us - hef ekki kynnt mér stöðuna alveg nógu vel en nú er ég hætt að versla í Leikbæ. Allavega svona eins og mögulegt er!

6. nóvember 2007

Dagurinn

Lærði og lærði. Talaði aðeins við Önnu (ok aðeins meira en aðeins eins og svo oft) og fór svo með strákana í eina búð. Á leiðinni heim var KS að segja bróður sínum að hann væri alveg til í að þjálfa hann (í hernum) og ef hann hefði einhverjar spurningar mætti hann alltaf leita til hans. Míns var öfga spennt að vita við hvern ég ætti að tala við í þjálfuninni og spurði pent hvert mitt hlutverk yrði. Hann svaraði án þess að hugsa sig um. Þú ert þjónninn okkar og gerir alls konar fyrir okkur, hugsar um okkar, eldar og svoleiðis. Ég svaraði ekki og hann sá að ég var ekki alveg sátt - þá bætti hann við öfga hress: Þú færð alveg stundum frí :-) Jamm.

Fékk símtal áðan frá tónleikum MIKA - var það Anna? Var samt að tala við þið í dag og hvað gleymdirðu að segja mér að þú værir að fara? Ohhhh vildi að ég hefði komið og farið á Mika - ég hefði sungið og dansað með. Truflar mig ekkert að við Una höldum báðar upp á hann. Bara alls ekki neitt rosalega mikið hehe. Takk Anna eða hver það var sem hringdi. Knús.

GGirls voru æði as always og nú er að fara í háttinn. Bit tired. As always kl. 22.
Eilífðarverkefnið

Uppeldið... manni finnst maður vera komin í nokkuð góð mál þegar þau eru hætt með bleyju, snuddu og farin að sofa á nóttinni.

En nei nei það tekur eitt við af öðru. Núna eru það önnur mál sem taka mikinn tíma og orku - en það kemur í tímabilum. Stundum fer ég að efast um allt og alla og get alveg tapað mér í neikvæðum hugsunum. Það hjálpaði mér mjög að vera búin að lesa um hugræna atferlismeðferð í gær. Jamm við erum að gera okkar besta - sem er ekki alltaf það besta en er samt alveg nógu gott!

5. nóvember 2007

Í skólanum

Ég er að gera ritgerð - og held fyrirlestur um kenningar Albert Ellis. Hann þróaði REBT kenningu sem örugglega einhverjir kannast við - hugræn atferlismeðferð. Mér finnst margt til í þessu og ákvað að birta hérna svoldið sem ég fann.

Mér finnst svo frábært að sjá leiðir þar sem við getum kennt okkur sjálfum að hugsa öðruvísi og þetta er svo rökrétt og skynsamlegt. Minna verið að tala um æsku og hvað gerðist í fortíðinni og einblínt frekar á framtíðina. Í dag held ég að ungt fólk og fólk á mínum aldri hafi margir mjög óraunhæfar væntingar - bæði til sjálfs síns og annara. Við ætlum öll að vera fullkomin, frábærir makar, hrikalega góðir námsmenn, æðislega góðir starfsmenn, með risa hús, bíl, snillinga sem börn... og svo framvegis. Held það væri mörgum hollt að staldra aðeins við og skoða þessi mál og horfa raunsæjum augum á sjálfan sig og lífið.

Hér er góð útskýring á kenningu Ellis: http://www.rebt.ws/REBT%20explained.htm
og þaðan tók ég þetta: (fyrst eru algengar niðurrifshugsanir og svo kemur raunhæfar hugsanir á eftir.


12 Self-defeating Beliefs

12 Rational Beliefs

1. I need love and approval from those
significant to me - and I must avoid
disapproval from any source.


1. Love and approval are good things to
have, and I'll seek them when I can. But
they are not necessities - I can survive
(even though uncomfortably)
without them.


2. To be worthwhile as a person I must
achieve, succeed at what ever I do, and
make no mistakes.


2. I'll always seek to achieve as much as I
can - but unfailing success and
ompetence is unrealistic. Better I just
accept myself as a person, separate to my
performance.


3. People should always do the right thing.
When they behave obnoxiously, unfairly
or selfishly, they must be blamed and
punished.

3. It's unfortunate that people sometimes do
bad things. But humans are not yet
perfect - and upsetting myself won't
change that reality.


4. Things must be the way I want them to
be - otherwise life will be intolerable.

4. There is no law which says that things
have to be the way I want. It's
disappointing, but I can stand it -
especially if I avoid catastrophising.


5. My unhappiness is caused by things
outside my control - so there is little I can
do to feel any better.


5. Many external factors are outside my
control. But it is my thoughts (not the
externals) which cause my feelings. And I
can learn to control my thoughts.


6. I must worry about things that could be
dangerous, unpleasant or frightening -
otherwise they might happen.

6. Worrying about things that might go
wrong won't stop them happening. It will,
though, ensure I get upset and disturbed
right now!


7. I can be happier by avoiding life's
difficulties, unpleasantness, and
responsibilities.

7. Avoiding problems is only easier in the
short term - putting things off can make
them worse later on. It also gives me more
time to worry about them!


8. Everyone needs to depend on someone
stronger than themselves.

8. Relying on someone else can lead to
dependent behaviour. It is OK to seek
help - as long as I learn to trust myself and
my own judgement.


9. Events in my past are the cause of my
problems - and they continue to influence
my feelings and behaviours now.

9. The past can't influence me now. My
current beliefs cause my reactions. I may
have learned these beliefs in the past,
but can choose to analyse and change
them in the present.


10. I should become upset when other people
have problems and feel unhappy when
they're sad.

10. I can't change other people's problems
and bad feelings by getting myself upset.


11. I should not have to feel discomfort and
pain - I can't stand them and must avoid
them at all costs.

11. Why should I in particular not feel
discomfort and pain? I don't like them,
but I can stand it. Also, my life would be
very restricted if I always avoided
discomfort.

12. Every problem should have an ideal
solution, and it is intolerable when one
can't be found.

12. Problems usually have many possible
solutions. It is better to stop waiting for
the perfect one and get on with the best
available. I can live with less than the
ideal.

3. nóvember 2007

Skátarnir eru málið

Fyrir gaurana mína... Bæði stóra og minni. Kíktum í dag í Fífuna á 100 ára afmæli skátanna og það var rosalega gaman. KS fékk að klifra, Gummi fékk að hlaupa um og Bjarki hoppaði og skoðaði heiminn. Ég tók myndir og fór að hlakka til næstu ára - útilegur og brjáluð ævintýri - og ég verð heima að kúra mig með bók. Svona stundum allavega og stundum fer ég nú með ;-)

video

1. nóvember 2007

Ástin í Vikunni

Gummi keypti Vikuna í gær - hann langaði að lesa forsíðuviðtalið en hann þekkir til stráksins sem segir frá netást í blaðinu. Svoldið sætt.

Ég las þá grein og fletti áfram og sá að það var opna með viðtölum við fólkið "á götunni" og þau voru að svara spurningum um ástina, fyrstu deit og svo framvegis. Allt mjög settlegt og eðlilegt, skemmtilegt og krúttlegt. Fólk á öllum aldri, strákar og stelpur. Ein af viðmælendunum var öðruvísi. Eldri kona, nafna mín Jacobsen. Ég var spennt að sjá hvað hún hefði að segja um ástina enda oft þannig að eldra, reyndara fólk hittir naglann á höfuðið. Ég veit ekki hvað ég get sagt. Verð bara að fá að leyfa ykkur að lesa gullkornin hennar Guðrúnar. (svigar eru mínar pælingar um svörin)

Um það sem berist að forðast á fyrsta deiti: Fólk á að gæta þess að vera siðfágað og forðast áfengi. (já góður punktur). Í gamla daga þurftum við ekki á brennivíni að halda þegar við fórum á stefnumót, við drukkum bara appelsín (snilld).

Um aðferðir við daður segir Guðrún að hún að kona á hennar aldri daðri ekki og að hún hafi aldrei gert það. En hún segir: Ég var tilfinningarík ung kona, að deyja úr ást en ég veit ekki hvað daður er. (daður nútímabull?)

Guðrúnu finnst ekki í lagi að "deita" marga á sama tíma og segir það fjarri lagi. Hún talar svo um sorann sem er í gangi í ljósvakamiðlunum og notar orð til að lýsa honum nánar sem ég tel varla bloggi mínu hæf (áhugasamir geta sent mér meil eða kíkt í blaðið bls. 36 - þetta er magnað)

Varðandi spurningu um það hvort að fyrsta ástin sé sú eina sanna er Guðrún ákveðin í svari og segir það svo sannarlega ekki vera. Svo segir hún: Ég vona bara að guð gefi að ég hitti ekki fyrstu kærastana mína. Þá yrði mér allri lokið. Þetta er orðið eldgamalt fólk (þarna bryjaði ég að hlæja... krúttlegt og satt).

Guðrún hefur nokkuð óhefðbundnar skoðanir á framhjáhaldi. Miðað við hvað henni er illa við að fólk "deiti" marga á sama tíma (held reyndar að G hafi ekki skilið orðið deit rétt - held hún hafi haldið að það væri meira en stefnumót). Hún viðurkennir að hafa haldið framhjá sjálf (ótrúlega hugrökk að gera það svona fyrir alþjóð en hún hefur líklegast ekki miklu að tapa) og hún segir að það haldi allir meira og minna framhjá. Hún segir að það sé bara gert til að krydda sambandið og telur það kannski hafa bjargað mörgum hjónaböndum. Hún segir að framhjáhaldið geti líka verið andlegt og segir að það sé allt í lagi að leita annað þegar makinn getur ekki veitt andlega fróun lengur (orðrétt vitnað í gömlu) Að lokum segir Guðrún: Ég myndi ganga út og hengja mig ef ég þyrfti að sofa hjá sama karlinum í 30 eða 40 ár. (JA HÉRNA HÉR)

Guðrún er eins og sést með sterkar skoðanir á ástinni og samböndum. Kannski er hún að segja eitthvað sem allir vita en enginn þorir að segja eða kannski voru hlutirnir allt öðruvísi í "gamla daga". En hún er sönn íslensk valkyrja og það sést enn frekar þegar svarið við síðustu spurningunni er lesið. Þá er spurt um það hvort konur eigi að taka fyrsta skrefið þegar stofnað er til nýrra kynna: (ætla að leyfa mér að vitna orðrétt í lokasvarið - enjoy):
Almáttugur, já, ég gerði það í það minnsta oft. Ég ætlaði nú til dæmis að gleypa manninn minn með húð og hári þegar ég sá hann fyrst. Hann var með eindæmum fallegur, allt öðruvísi en langflestir íslenskir karlmenn á þessum árum sem voru bólugrafnir og með skemmdar tennur. Hann var með skjannahvítar tennur, kolsvart hár og dökkur í framan. Ég varð skotin í honum útlitsins vegna en það gekk! Við vorum gift í 16 ár.

Any thoughts?

Blog Archive

Um mig