Greys í kvöld....
Bíð nokkuð spennt en ég var reyndar búin að kíkja aðeins á fyrsta þáttinn. Svona er ég. Get ekki að því gert.
31. október 2007
28. október 2007
Af veikindum og öðru
Kjartan Sveinn er rétt að jafna sig á hlaupabólunni. Hann var duglegur að dunda sér í veikindunum. Horfði fyrst ansi mikið á tv og talaði um sjálfan sig sem sjónvarpssjúklinginn en svo leið honum betur og á fimmt. ákvað hann að perla íslenska fánann. Rosalegur metnaður í gangi og hann gerði svaka flottan fána alveg sjálfur. Næsta dag ákvað hann að halda áfram og byrjaði á bandaríska fánanum. Ég skrapp aðeins frá (ekkert langt, bara að setja í þvottavél) og á meðan komst ein perlan í nefið á honum og festist þar. Hann skammaðist sín mjög og var líka hræddur enda líklegast mjög óþægilegt að vera með perlu fasta í nefinu. Ég fór með hann á heilsugæsluna og honum var sinnt þar strax. Hann sagði söguna þannig að hann hefði verið að perla, eins og vanalega (yeah right) og þá festist bara ein perlan í nefinu á honum. Það þurfti þrjá lækna til að ná perlunni og þetta var ekkert grín. KS stóð sig svakalega vel í öllum látunum. Það er alveg pottþétt að perlurnar fara ekki nefið á honum aftur! Mér leið frekar asnalega og var að afsaka mig við læknana - ja svona gerist þegar börnin eru heima veik - hahaha voða fyndið... damn it. Hann eins og pizzaface með perlu fasta í nefinu.
KS hefur ekki haldið áfram með perlu-seríuna sína.. en hann ætlaði að perla alla fána í heiminum. Kannski seinna.

Mér leið illa í nótt og gat ekki sofið. Hrikalega óglatt og það endaði með að ég fór inn í stofu að sofa. Svaf ekkert, gubbaði, og var með hita og beinverki í allan dag. Sjáum hvað gerist á morgun en ég er ekki að gúddera að vera veik núna. Vibba ógeð gubbupest!
Bjarki hóstar, er með bólginn góm, svoldið vælinn en ekki með hita. Hann á eftir að fá hlaupabóluna. Við bíðum spennt.

25. október 2007
Meira um leikskólamál og annað bögg
Ég beið spennt eftir "aðgerðum" fyrrv. minnihlutans nú þegar þau fengu tækifæri til að láta verkin tala. Frábært fyrir leikskólakennara að fá frítt í Fjölsk. og húsdýragarðinn... Eruð þið að grínast? Hvað með að gera það sem þarf? Hækka LAUNIN!
Góður pistill hjá Kolbrúnu B í 24 stundum í dag. Algjörlega sammála henni.
Með blöðum dagsins kom BT bæklingur - stútfullur af stafsetningarvillum. Bláar blöðrur skreyta bæklinginn: 1. stk á mann.
Sama rugl er í auglýsingunni fyrir nýja Bubba þáttinn en sigurvegarinn fær 3. milljónir. Úff púff.
KS útsteyptur af hlaupabólum en BF eldhress. Sem þýðir - ekki 10 dagar með veikt barn/börn heldur meira svona 20+ dagar. Lovely....
Já maður er þokkalega jákvæður í dag í góða veðrinu.

23. október 2007
Til mömmu,
það er eins gott að þú hættir að vinna og fórst í skóla. Við strákarnir þínir viljum vera sem mest með þér. Við viljum vera sem minnst á leikskóla því BF er vanur að vera heim í rólegheitunum og KS þarf að gera allt sjálfur á leikskólanum og honum finnst það hundleiðinlegt. Okkur finnst miklu betra að vera heima í dekri hjá þér elsku mamma. Hættu bara í vinnunni en borgaðu 80 þúsund á mán. í leikskólagjöld því kannski langar okkur stundum að fara. Svona þegar við erum ekki veikir eða í aðlögun eða leiðir á skólanum. Please viltu alltaf sækja okkur snemma og læra svo bara þegar þú nauðsynlega þarft, á kvöldin eða rétt á morgnana. Um helgar viljum við hafa þig og pabba með okkur allan daginn og á kvöldin líka því það er svo fínt kæra mamma. En auðvitað áttu líka að standa þig vel í skólanum, hugsa um heimilið, hugsa um pabba og já stundum líka þig sjálfa. Ef þú þarft endilega að hitta vinkonur þá væri það best ef það væri á kvöldin og ekki of lengi því þú veist mamma mín að við sofum nú ekki svo vel á nóttinni. Ef Bjarki er ekki vælandi allavegaa 2x yfir nóttina þá er Kjartan Sveinn með blóðnasir eða martraðir. Það er alveg nauðsynlegt að þið farið snemma að sofa svo þið getið nú hugsað um okkur á nóttinni og vaknað eldsnemma hress og kát - eins og við.
Við lofum að hlaupabólan verður okkur auðveld og þið pabbi þurfið ekkert að þakka okkur fyrir að velja bestu tímasetninguna. Við hugsuðum að það væri upplagt að Kjartan Sveinn byrjaði veikindin þegar mamma er í heimaprófi - þá getur hún lært OG hugsað um okkur... svo fær Bjarki veikindin akkúrat þegar þið eruð í vetrarfríi í skólanum og þá getið þið einbeitt ykkur 100% að okkur kæra mamma og kæri pabbi. Þið getið bara farið á kaffihús og haft það kósý seinna, segjum eftir ca 10 ár þegar við getum hugsað alveg um okkur sjálfir. Við vitum að þið hlökkuðuð til að fara í hádegismat í vetrarfríinu og kíkja í búðir en núna getum við öll fengið okkur ristað brauð og mjólk í hádeginu og sparað fullt af peningum. Öll saman heima í 10 daga. Og í næstu viku þegar þú átt að vera í starfsþjálfuninni þá verðum við enn veikir en þá verður pabbi að semja við skólann sinn og kannski geta fleiri hjálpað okkur. Vonandi nærðu prófunum um jólin því annars færðu ekki námslánin og ekki endurgreitt frá Kópó. Vertu nú dugleg mamma og ekki gefast upp.
Elsku mamma, ertu ekki fegin að gamli góði Gylfi yfirmaðurinn þinn þarf ekki að reka þig fyrir lélega mætingu? Alltaf að líta á björtu hliðarnar :-)
Þínir elskandi synir.

Flokkar:
Bjarki Freyr,
Drama,
Fjölskyldan,
Kjartan Sveinn,
Lífið,
Nám og starf,
Skólinn
18. október 2007
Samtal um lífið
Ég: Já það er svoldið mikið að gera núna
Mamma: Já það er bara ágætt að hafa nóg að gera.
Ég: Jú jú alveg fínt sko.
Mamma: Betra en að sitja einn örkumla úti í horni og geta ekkert gert!
Hvað getur maður sagt við þessu?
Ég: Ég er mjög þakklát fyrir það.
Það sem mömmu dettur í hug. Magnað. Greinilega ekki málið að kveinka sér...

16. október 2007
Góð helgi
Ég er að upplifa það að geta lært og einbeitt mér í fyrsta skipti frá því ég byrjaði í náminu. Eða allavega á virkum degi um miðjan dag. Bjarki Freyr og Kjartan Sveinn í leikskólunum sínum og þetta er auðvitað allt annað líf.
Helgin var nokkuð góð. Eftir helgina leið mér eins og að þungu fargi hefði verið af mér létt. Mál sem var búið að íþyngja mér mjög í langan tíma fékk tímabæran endi eða closure sem skýrir málið mun betur. Ég held að "málið" hafi þurft þennan tíma en ok hefði reyndar alveg getað klárast mun fyrr en aðstæður voru ekki fyrir hendi. Sem betur fer náði skynsemin og tilfinningar á borð við söknuð og umhyggjusemi að kaffæra þrjósku, biturleika og reiði. Ég kann ekkert á svona öfgafullar tilfinningar en það er nauðsynlegt að horfast í augu við þær annað slagið - feisa þær, sætta sig við þær og halda áfram með lífið, finna aðrar nytsamlegri tilfinningar og nota orkuna í jákvæðan hátt. Sem betur fer gengur það oftar þannig.
Það skilja fáir þessi ofurtilfinningalegu skrif. En það er allt í lagi hehe.
Ætla að halda í jákvæðu orkuna og klára eitt lítið verkefni áður en ég sæki strákana. Man hvað það er kalt úti... brrrrrr.

10. október 2007
Facebook er víst málið. Er búin að skrá mig en ég á bara 6 vini (samt alveg eðalvini sko). Ingrid vinkona mín á t.d. 156 vini og ég veit ekki - mér finnst ég hálfglötuð og hér er ekki málið að það sé fámennt en góðmennt. Sé ekki annað en að það sé algjörlega markmið að eiga FULLT af vinum. Þannig að vinsamlegast allir að skrá sig á Facebook og verða svo endilega vinir mínir! Takk fyrir það.
Góður dagur
Ég er ekki mikið í trúboði en þetta var í einni skólabókinni minni og má segja að hafi haft áhrif á mig í dag. Þetta er bæn Francis frá Assisi og það er hægt að finna íslenska þýðingu á bæninni e-s staðar.
Lord, make me an instrument of your peace,
Where there is hatred, let me sow love;
where there is injury, pardon;
where there is doubt, faith;
where there is despair, hope;
where there is darkness, light;
where there is sadness, joy;
O Divine Master, grant that I may not so much seek to be consoled as to console;
to be understood as to understand;
to be loved as to love.
For it is in giving that we receive;
it is in pardoning that we are pardoned;
and it is in dying that we are born to eternal life.

9. október 2007
Heima á laugardagskvöldum í vetur
Eftir að ég ákvað að fjölskyldan yrði áskrifandi að stöð2 í vetur þá stórbatnaði dagskráin á RÚV um helgar. Ekki svo mikið samt að áskriftin verði ekki þess virði en þetta er athyglisvert. Laugardagslögin slógu í gegn á þessu heimili. Bjarki dillaði sér á meðan KS reyndi að læra textann við öll lög og foreldrarnir klöppuðu með. Kjartan Sveinn er mikill aðdáandi Spaugstofunnar eins og pabbi hans og afi. Ég get horft á þáttinn með þeim en ég er enginn áðdáandi. Svo kemur eitthvað virkilega nasty og þá hlæ ég. Hef komist að því að ég með rosalega nasty húmor. Gubbaði næstum því úr hlátri þegar Jogvan var tekinn í þættinum hans Audda. Ekki að ýkja neitt. Gubbaði næstum því! Svo fílum við öll umferðarEINAR og það er KK og SS og allt það.. gegt fyndið :-)

5. október 2007
Neytendur á Íslandi
Ég hef lengi velt fyrir mér hvað málið sé eiginlega með íslenska neytendur. Ég fæ alltaf meira og meira áfall þegar ég fer inn í búðir á Íslandi. Hef til dæmis átt mjög erfitt með mig í leit minni af kuldagalla á litla gaur. Ég fussa og sveia - fer svo á netið og geri verðsamanburð og skoða galla en ætli ég endi svo ekki á að kaupa 1 stk. galla á okurverði í næstu verslun í Kringlunni.
Ég gerði góð kaup á myndavélinni minni gegnum Shopusa en þegar ég fór að setja inn föt og dót í reiknivélina þá varð verðmunurinn ekki eins gígantískur og þegar ég var að kaupa myndvélina mína. Þá munaði rosalega miklu...
Annað sem tengist þessari neytendapælingu eru leikskólamál. Af hverju er ekki allt BRJÁLAÐ? Undirskriftarlistar á netinu, átak og kröfugöngur? Eiga börnin okkar ekki skilið að við BERJUMST fyrir hag þeirra? Þau eiga svo miklu betra skilið en óvissuástand, stanslaus starfsmannavelta sem flótti fagfólks og góðra starfsmanna í önnur störf skapar, skert þjónusta, þreytt og orkulaust starfsfólk... og þegar maður skoðar málin vel þá er greinilegt að þetta bitnar verst á þeim - já og á okkur foreldrunum, nánustu ættingjum barnanna, fyrirtækjum og auðvitað bitnar þetta mjög á starfsfólkinu sjálfu. Hvar eru foreldrafélögin á leikskólunum? Ég hef heyrt og haft á tilfinningunni að þau félög eru hrædd við að láta í sér heyra - kunna ekki við að trufla og eru oft meira upptekin af því að skipuleggja jólaskemmtanir og vorhátíðir heldur en að garga og góla og láta í sér heyra. En þetta er alls ekki svona alls staðar. Ég mundi vilja sjá greinar daglega í blöðunum, bréf og tölvupósta með reynslusögum, hugmyndum af úrlausnum og kröfum foreldra og barna um bætt ástand.
Við höfum sloppið ótrúlega vel. Reyndar þurftum við að redda september vegna manneklu á leikskólum í Rey þar sem börn útskrifuðust ekki af Sólgarði. Ég er til í að skrifa undir undirskriftarlista, gera kröfur um að betur sé hugsað um okkar dýrmætustu auðlind. Getum við ekki fjárfest í börnunum okkar? Sett nokkra milljarða í þau og borgað þeim feita bónusa, sem vinna þetta mikilvæga starf? Er að spá í að hringja í Gamla Góða Villa og jú Gamla Góða Gunna B og fá þá til að sjá arðsemina í því að hafa þessa hluti í lagi. Kópavogur skilaði tugum milljarða í tekjuafgang og Villi er til í að taka þátt í áhættufjárfestingum og borga fólki vel sem hugsar um peninga. Af hverju ekki að borga þeim sem hugsa um börnin okkar sómasamlega... og já ekki ÚTÍ KENNARALAUNIN OG ÞAÐ ALLT. Þá gjörsamlega fýkur í mig... skammarlegt hvernig sumar stéttir hafa setið eftir í launaþróun. Heilbrigðisstéttin og umönnunarstéttir sameinist og krefjist leiðréttingar á þessu skilningsleysi og hroka! Ekki seinna en núna!
Og svo ég endi á alvarlegum nótum með gamansömu í vafi.. þessi síða er skyldulesning fyrir alla sem hugsa um krónur og aura - t.d. kennara, leikskólakennara, starfsfólk á spítölum og allt þar á milli: http://this.is/drgunni/okur

4. október 2007
Vá ég hef bara aldrei séð þig vaka svona lengi á virku kvöldi!
Ég skilaði verkefni í morgun, skilaði hópverkefni og tók þátt í fyrirlestri í gær og á morgun er heimapróf. Þessi vika er búin að vera strembin en það var alveg vitað fyrir - að svo yrði. Hins vegar gerði ég ekki ráð fyrir að Bjarki yrði veikur um helgina, Gummi slappur, Bjarki ólíkur sér og hálfveikur enn þá og Gummi mjög upptekinn. Ég hef því þurft að taka á mínum málum - halda ró minni - díla við eitt í einu og láta hlutina ganga upp. Sem þeir gera. Ég vann verkefnið í gær á mettíma og ég var nokkuð sátt við útkomuna. Kannski er pressan málið? Nei nei ég á ekki að skrifa svona né segja upphátt.
Stúlkan fædd
Forgangsröðun er mikilvæg og í gær fannst mér algjört möst að kíkja á litluna þeirra Þóru og Tjörva. Fékk að koma með smá vistir á sjúkrahúsið og halda á 14 tíma gömlu barni. Það var yndislegt. Þóra og T eru komin heim og ég veit að allt gengur vel því þau eru svo ótrúlega með allt sitt á hreinu. Þrjú börn á 5 árum er pakki - og ef einhver nær að díla við pakkann þá eru það þau - Þóra með óslökkvandi og smitandi jákvæðni og orku og Tjörvi með áhugasemina og dugnaðinn. Þau eru ótrúleg! Lillan fæddist 2. okt. og var búin að láta bíða ansi lengi eftir sér. Eitt sem þau hafa líka með sér er unglingurinn á heimilinu en hann er sko stórkostlega mikill plús fyrir þau. Systur hans dýrka hann og hann er algjör fyrirmyndar bróðir.
Sonur minn var mjög stoltur af Þ+T í gær og sagði fóstrunum frá því að nú ætti Þóra ÞRJÁR stelpur og fannst mikið til þess koma. Hann spyr mig oft þegar við erum að ræða um þær systur hvenær þeir Bjarki fá þriðja bróðurinn - svona til að vera í stíl við skvísurnar í Hafnó. Ég eyði þeirri umræðu en hugsa samt - þegar ég er búinn að sannfæra pabba þinn....hehe. En það er eins gott að við fáum bara jákvæðar fréttir úr Hafnó svo að ég geti haldið í við Þóru mína og reyndar vantar okkur eitt stykki barngóðan ungling!

2. október 2007
1. október 2007
Mikið svakalega er ég orðin leið á sjálfri mér. Það gerist aldrei neitt fyndið - allavega ekkert sem ég get skráð hér. Og þar með er lítið sem ég get með góðri samvisku skrifað hérna inn. Mér finnst ég alveg dead boring og verð að minna mig á að bloggið er fyrir mig i framtíðinni af því að ég er minnislaus - ekki til að skemmta öðrum. En það skemmir ekki að vera svoldið skemmtilegur stundum.
Bjarki Freyr er lasinn - eða var lasinn um helgina en er að jafna sig núna - vona ég. Hann er ekki með hita í dag.
Þetta er hápunktur dagsins hjá mér. Og hvað það er leiðinlegt veður. Og hvað það er mikið að gera í skólanum. Og hvað það er alltaf leiðinlegt í sjónvarpinu. Og Þóra er ekki búin að eiga en Guffa eignaðist strák 29. sept. Ok það er allavega skemmtilegt.
Lífið snýst líka ekki um litlu mig. Þó mér finnist það bara stundum. Sakna vinkvenna minna sem búa í útlöndum alveg hrikalega mikið. Eiginlega verð ég þunglynd að hugsa um það og eftir áramót fer Ásta líka. Get huggað mig við að þá get ég einbeitt mér að náminu... eða eitthvað álíka ekki gáfulegt (ekki eins og Ásta sé að trufla mig í náminu núna. Reyni bara að vera jákvæð). Damn. Sko leiðinlegt blogg blogg blogg.
Tími á bloggpásu!

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
►
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
►
desember
(14)
-
▼
2007
(80)
-
▼
október
(13)
- Greys í kvöld.... Bíð nokkuð spennt en ég var rey...
- Af veikindum og öðru Kjartan Sveinn er rétt að ja...
- Meira um leikskólamál og annað bögg Ég beið spenn...
- Til mömmu, það er eins gott að þú hættir að vinna...
- Samtal um lífið Ég: Já það er svoldið mikið að ge...
- Góð helgi Ég er að upplifa það að geta lært og ei...
- Facebook er víst málið. Er búin að skrá mig en ég ...
- Góður dagur Ég er ekki mikið í trúboði en þetta v...
- Heima á laugardagskvöldum í vetur Eftir að ég ákv...
- Neytendur á Íslandi Ég hef lengi velt fyrir mér h...
- Vá ég hef bara aldrei séð þig vaka svona lengi á v...
- Bloggpásan? Ok ég get ekkert farið í neina pásu. Æ...
- Mikið svakalega er ég orðin leið á sjálfri mér. Þa...
-
▼
október
(13)