28. september 2007

Þjónusta á Íslandi

Mér finnst ömurlegt þegar ég fæ lélega þjónustu eða er hunsuð í búðum. Ég verð líka hissa og glöð þegar ég fæ góða þjónustu. Versta viðmót sem ég hef fengið í búð síðustu daga er í Apple búðinni á Laugavegi - nema ljóshærða stúlkan. Svo var ég mjög pirr út í Glitni um daginn en því var svo bjargað fyrir horn. Þori samt ekki að kíkja inn á netbankann því ég er svo hrædd um að það sé klúður og þá verð alveg kreisí brjál.

Annars hef ég verið óvenju mikið í búðum undanfarið og það hefur sannfært mig enn frekar um kosti þess að versla á netinu. Kannski er vandinn líka minn en án gríns þá er eitthvað að fyrirtækjum sem hafa ekki metnað eða getu til að veita góða þjónustu. Eitt enn dæmi um fáránlegt viðmót sem ég hef fengið á síðustu vikum var hjá Hans Petersen.

Hunsun, hroki, leiðinlegt viðmót, áhugaleysi afgreiðslufólks, skilningsleysi, lélegar upplýsingar og slæm þjónusta er meginstefið hjá þessum fyrirtækjum - eins og ég upplifði það. Nema bankinn sem var fljótur að bæta sig þegar ég hótaði að hætta með honum. Ég er aumingjagóð goddamitt.
Núna er ég alveg eins og alvöru karlmaður!

KS - að taka innkaupakörfu í Nóatúni. Þessa litlu sem er fyrir börn. Veit ekki hvaðan hann hefur þessa hugmynd um alvöru karlmenn. En jú vissulega versla alvöru karlmenn í matinn hér á okkar heimili. Frekar kúl stereótýpa.

27. september 2007

Smá update..

Aðlögunin gengur vel. Ég er í ágætu jafnvægi og hef ekkert grátið. Auðvitað tekur þetta á en ég hef góðan stuðning. Já og Bjarki er líka hress með þetta og hefur bara rétt sýnt mömmu sinni smá skeifu þegar ég hef sótt hann.

Námið gengur vel. Hef ekki mikið get lært en núna er BF búinn að sofa í næstum 3 tíma og ég hef náð að gera slatta. En það er svoldið áhugavert að sjá hvað skólinn hefur breyst frá því að ég var síðast í námi. Mér finnst nú ekki það langt síðan en strax núna finnst mér móttökurnar vera betri og samkeppnin pottþétt að gera skólanum gott. Það rignir inn alls konar tölvupóstum frá hinum og þessum og maður þarf að hafa sig allan við - við að halda póstinum í nokkuð góðu lagi. Einnig þarf ég að vera virk í að skoða tölvupóstinn og sendingar frá kennurum. Þær eru duglegar að setja inn alls konar upplýsingar, glærur og tengla og það er alveg slatti vinna við að halda öllu til haga. Netið tekur mikinn tíma og t.d. síður í náminu sem tengjast - námsstíl og námstækni gæti tekið marga klukkutíma að skoða og það er alveg hluti af náminu. Maður verður að þekkja það sem maður er svo að benda ráðþegum sínum á. Svo eru til fullt af skemmtilegum síðum varðandi nám og störf eftir nám, áhugasviðskannanir og fleira og fleira. Þannig að þó ég sé að hanga á netinu er ég oft að læra líka! Jamm.

Mikið er veðrið annars vont! BF sefur eins og engill.. veðrið, aðlögunin eða svefnves í nótt? Ég reyni allavega að nýta tímann. Over and out.

25. september 2007



Klikkaðasta mamman

er ekki ég... heldur ekki lengur vinkona mín hún Britney. Ég held áfram að fylgjast með falli dívunnar og þó að ég sé ekki að fíla hana þá vorkenni ég henni. Hef líka lengi verið aumingjagóð - það vita þeir sem þekkja mig best. En hvað er málið núna? Nýjasta eru orð lífvarðarins sem talar um ofneyslu lyfja og drykkju og dóp fyrir framan börnin. Ég trúi öllu þessu upp á hana og vá hvað heimurinn er orðinn klikk þegar maður heldur með KFed í forræðisdeilu. Best væri ef Brangelina tækju börnin til sín. Og þeir eru alveg krúttlegir litlu krúttin. Vonandi er ekki orðið of seint að bjarga þeim.

Ég hef mun meiri trú á Lady Lopez og veit að hún verður góð mamma. Núna er talað um tvíbbamömmu. Æi það er æði að allir hennar draumar séu að rætast en ég veit ekki með Marc A. Hann minnir mig ansi mikið á Skeletor í He-Man. Creepy!
Snilld -eða ekki snilld

Það er alveg nauðsynlegt að taka sér smá pásur þegar maður er að læra. Þetta heitir einbeiting/slökunar aðferð og felst í því að læra stíft og hugsa svo um eitthvað allt annað í nokkrar mín, fara í göngutúr, hlusta á tónlist eða vafra á netinu. Á meðan kúturinn sefur verður - vafrað á netinu - oftast fyrir valinu hjá mér. Og maður finnur ýmislegt gagnlegt - t.d. datt ég inn á www.hm.com og ég get ekki betur séð en að loksins sé komin netverslun fyrir okkur sveitalingana. Jei jei.

Nú er að snúa sér að raunveruleikanum - fátækur námsmaður - á hann að kaupa föt á börnin á www.hm.com - sparar tíma og fyrirhöfn eða sleppa því og vona það besta? Þetta reddast alltaf en jiii hvað ég sá töff strákaboli og fínan útigalla og og og....

23. september 2007


Haustið

Þó að það sé vindur og svoldið kalt þá fíla ég þetta veður og ég fíla haustið. Við keyrðum á Þingvöll í gær en móðir mín hélt þar upp á stórafmæli sitt. Það var mjög við hæfi að við héldum upp á daginn þar enda haustið hvergi eins fallegt, litríkt og heillandi eins og á Þingvöllum. Mamma er líka mikil hausttýpa, í klæðnaði og öllu sem hægt er að nefna. Einu sinni fannst mér frekar skrítið að vera alltaf að safna haustblöðum og stráum en í dag sé ég hvað það er töff. Haustið er töff árstími.

Hvet fólk til að taka sunnudagsrúnt á Þingvöll, týna lauf og safna stráum.

21. september 2007

Var að horfa á nýjan grínþátt á S1 í gær með öðru en tók eftir senu þar sem kona er að drekka stíft og er mjög drukkin og í næsta skoti er hún að keyra bíl - mjög drukkin. Mér finnst ég sjá þetta allt of oft.
EFTIR EINN EI AKI NEINN - after one you don´t drive home... eða eitthvað.

Nú byrjar það...

Í næstu viku byrjar samviskubitið að herja á mig. Vonda mamman, versta mamman, ömurlega eigingjarna mamman.... berst við góða mamman, þroskahvetjandi mamman, vel menntaða ánægða mamman. Þetta passar auðvitað ekkert saman og meikar engan sens en hver sagði að sjálfsásakanir og niðurrifs hugsanir mæðra meikuðu sens?
Litli engillinn minn byrjar á leikskóla á mán. Eða þá hefst 10 daga ógurleg aðlögun þar sem hver dagur hefur sinn tilgang og markmið. Mitt markmið er að bugast ekki of fljótt, gráta ekki OF mikið og styðja strákinn minn í ferlinu.

Við kíktum við í dag og hann var svo alvarlegur og eins og hann vissi alveg hvað var að gerast. Eftir 14 mánaða dekur, ró og næði á að henda honum í barnaólátagarðinn. Hann sá alveg í gegnum þetta allt. En ég hef mikla trú á að Krissa snillingur eigi eftir að brjóta niður varnirnar hans og ná í sólkinsbrosið. Ef hún getur það ekki þá getur það enginn! Eftir stutta heimsókn en góða fórum við í skóleiðangur og fengum dóm afgreiðslukonu að hann væri með mjög stóran en stuttan fót og gott ef hún stakk ekki upp á því að við kölluðum barnið BIG-FOOT... Mömmuhjartað þolir illa svona vægðarlaus komment en ég fattaði samt af hverju skórinn endaði í klósettinu í gær. Skórinn var orðinn allt of lítill og þröngur - Bjarki Freyr lætur verkin tala!

20. september 2007

Dagurinn byrjaði ekki eins og venjulega. Bjarki vaknaði eldhress, fór beint inn til KS og skreið upp í til hans og vakti hann eins og hann gerir flesta morgna. KS fór þá að pissa og mamman var eitthvað busy að blása á sér hárið á meðan. Allt í einu kallar KS hlæjandi á mig og ég hleyp inn á bað. Þar standa þeir bræður grallaralegir á svip - sérstaklega sá yngri - og ofan í klósettinu er skórinn hans Bjarka. Stuð. Bjarki var svo frekar fúll þegar hann mátti ekki henda öðru dóti ofan í klósettið.

17. september 2007

Lífsreynd/gömul?
Gummi var að tala við unglingana í skólanum um daginn og eitthvað barst talið að tónlist og þá kom í ljós að krakkarnir vissu ekki hvað SSSól var og ekki grænan grun hver Helgi Björns er. Ég glotti því aðeins út í annað um helgina þegar Todmobile spilaði á balli á Seyðisfirði því þar voru pottþétt margir sem ekki höfðu heyrt lög með todmobile. Ég dansaði þónokkuð um kvöldið og oft heyrði ég "unga fólkið" segja - ég veit ekki hvað lag þetta er og svo fussaði það og sveiaðu. Skil það mjög vel því ég var sjálf ekki alveg viss með allt prógrammið.. en það var stuð!

Stolt
Ég er ólýsanlega stolt af stóra bróður mínum sem var kosinn formaður SUS um helgina. Ég flaug austur til að sýna honum stuðning og sé ekki eftir því. Það var hrikalega gaman að vera vitni að þessu öllu saman og einnig var gaman að hitta alla gömlu félagana hans bróður míns sem ég var mikið með - í gamla daga :-)
Til hamingju elsku bróðir og gangi þér vel!

Þegar sonur minn frétti af sigrinum var hann rosalega glaður og þegar við reyndum að úrskýra hvað formaður SUS gerir.. þá sagði hann strax - ok frábært getur hann þá ekki leyft mér að vera forseti Íslands? Ég geri ráð fyrir að það verði ofarlega á to do lista bróður míns - en ekki hvað?

15. september 2007

Hverju á maður að trúa?

Eins og öðrum fannst mér afskaplega einkennilegt þegar foreldrar ungra barna sögðust hafa verið úti að borða um kvöld og skilið börnin eftir heima. En ég eins og margir hugsaði samt að þó að þau hefðu orðið sek að svona gáleysi þá ætti engin skilið að missa barn sitt. Fréttir síðustu viku hafa gert mig orðlausa, steinhissa, ringlaða og reiða. Eyjan.is hefur staðið sig vel í umfjölluninni og hér er enn ein tilgátan afhjúpuð. Elsku litla fallega stúlkan - hvað gerðist eiginlega þennan ömurlega dag?

14. september 2007

Ekki tími til að blogga

En mér datt í hug að skrifa svona í punktaformi hvað væri helst á dagskrá..
1. Kosning á morgun fyrir austan. Bróðir minn verður, ef allt gengur skv. áætlun, formaður SUS. Jei.
2. Hittingur í fyrramálið í hópverkefni.
3. Er að lesa Tími Nornarinnar eftir Árna Þórarinsson og er alveg að verða búin. Skemmtileg íslensk spennubók.
4. Dýrka enn Amy Wino og Reginu Spektor.
5. Horfði á GG og það er það eina sem ég gerði í vikunni sjónvarpslega séð.
6. Ofát í saumó ber að varast...
7. Ætla að læra í kvöld.
8. Frí hjá KS mán og þri.
9. Bjarki fer á leikskólann á fös eftir viku. Þá getur mamman loks einbeitt sér að náminu.
10. Ef pabbi væri ekki að aðstoða okkur þá væri ég farin á taugum og í þvílíkt vondum málum. Besti pabbi og afi í heimi.
11. Það er allt að gerast - í náms og starfsráðgjöf á Íslandi í dag . Er í skýjunum í skólanum!
12. Það er ömurlegt að vera pirr út í bankann sinn.
13. Hver getur lagað þvottavélina mína?
14. Af hverju er ég ekki með au-pair? (Pabbi kemur mjög nálægt því þó...)
15. Ætti ég að fá mér stöð 2 eða færi það endanlega með skipulagið á heimilinu?

9. september 2007

Svoldið þreytt
en alveg endurnærð eftir frábæra helgi í Eyjum. Mér líður alltaf svo vel í Eyjum!

Það er ansi langt síðan að við fjölskyldan fluttum til Reykjavíkur. Ég byrjaði í 8. bekk í Való en fór örugglega svona 20 sinnum á ári "heim" að hitta vinina mína sem ég saknaði sárt. Það var hrikalega gaman að hitta allt þetta frábæra fólk aftur og helgin var hrein og tær snilld.
Þegar ég fór í leigarann klukkan eitthvað svoldið mikið þá var mér heilsað vinalega og bílstjórinn spurði strax hvort ég væri ekki dóttir hans sr. Kjartans.. og ég gat ekki neitað því. Þegar ég tjekkaði mig inn í flugið í morgun - ekki minna hress en á fös. sagði ég bara nafnið mitt - Guðrún Birna og maðurinn kláraði.. KJARTANSDÓTTIR - og bætti svo vingjarnlega við - bið að heilsa heim. Yndislegt en samt svoldið óþægilegt eftir 2ja daga íþróttamót. Maður verður svoldið þreyttur á að hlaupa, dansa, hlæja og drekka svona mikið skal ég segja ykkur. Bara pínku smá þreytt en æðislega glöð og ánægð með frábæra helgi. Hlakka strax til næsta móts - og þá skal ég sko taka íþróttaskóna með! Eða ekki.. sumt breytist ekki svo mikið. Go Barnó!!!

6. september 2007

Fjölskyldubærinn Kópavogur
Við fengum ekki dagmömmu í Kópavogi og ekki leikskólapláss. Þegar við hringdum út voru svörin skýr - ekki séns.
Við sóttum um á leikskóla fyrir börn stúdenta sem rekinn er af Félagsstofnun Stúdenta. Við vorum afskaplega ánægð þegar við fengum jákvæð svör enda orðin örvæntingarfull. Nú þegar komin er dagsetning á fyrsta degi barnsins fórum við að skoða smáatriðin sem orðin eru stóratriði. Af því að við vorum svo glöð að fá plássið pældum við ekkert mjög í hvað það myndi kosta okkar en vissum að þetta yrði dýrt dæmi. Núna veit ég að við munum borga ca 59 þúsund á mán. Stúdentar sem búa í hinum megin við Fossvoginn borga 29 þús. En við huggum okkur við það að þegar og ef ég næ öllum prófum þá fáum við 1 mánuð endurgreiddan. Vúhúuu.

Smámálið er orðiðr stórkostlega mikið réttlætismál. Þetta er ósanngjarnt og óréttlátt. Stúdentar eiga að búa við sama borð - þetta er mismunum og það er ekki fjölskylduvænt að búa í Kópavogi!

Við ætlum að skoða málið og fá skýr svör frá yfirvöldum. Þetta hlýtur að vera misskilningur....

5. september 2007

Skemmtilegar mæðgur

Ég verð að lýsa ánægju minni með nýjustu Gilmore Girls þáttaröðina. Ég hef átt í ástar/haturs sambandi við þær mæðgur í nokkur ár en núna er komið annað hljóð í mig. Þættirnir eru komnir á ómissandi lista vikunnar. Var aldrei að kaupa þetta fullkomna samband þeirra mæðgna... ;-)

3. september 2007

Framundan eru spennandi tímar.
Mér sýnist námið ganga mikið út á verkefni og viðveru og virkni. Ég verð því að nýta tímann vel.
Opnaði eina bók í gær - Becoming a Master Student og hún er hrikalega skemmtilega uppsett og innihaldið ótrúlega spennandi. Sá eina síðuna þar sem er verið að kenna aðferð við að muna nöfn. Bókin býður upp á að lesendur rífi blaðsíður úr sem vekja áhuga þeirra. Ætla að byrja á þessari síðu. Ætti að gagnast mér vel næstu daga....

Blog Archive

Um mig