Loksins létu þau mig í friði
Í dag fór ég í skólann, Gummi í vinnuna og Kjartan Sveinn á leikskólann. Pabbi kom og passaði. Þegar við komum heim var Bjarki farinn að labba. Labbaði ekki bara 5 skref heldur 40 skref með hluta af pleymókastalanum í annarri og pleymófána í hinni. Við erum rosalega stolt af krúttinu okkar en hann virtist helst labba af stað þegar við hættum að halda í hann, hvetja hann áfram og trufla hann. Hann vildi greinilega fá frið og loks þegar við vorum upptekin við annað en að leiða hann áfram gekk hann af stað.
En í alvöru talað þá er fátt yndislegra og krúttlegra en lítil kríli sem labba með hendurnar upp í loft og dilla sér einhvern veginn áfram. Maður fær alveg sting í mömmuhjartað. Og nú er komið nóg af krílamömmumontbloggi!!!
29. ágúst 2007
28. ágúst 2007
27. ágúst 2007

Maður reynir
að gera móður sinni til geðs þegar maður er 5 ára.
Viðleitnin er vel þegin og þó að drengurinn gangi sjaldan frá eftir sig, nenni ekki að klæða sig í og úr og hafi oft allt aðra skoðun en mamman (eins og það að stofna skuli her á Íslandi) þá er hann mesta yndi þegar hann vill.
Um helgina var hann í frekar rólegum gír. Fór í afmæli hjá vini sínum á laugardaginn og það er alltaf mikið mál. Ég var að klæða hann í sparifötin (já hann nennir mjög sjaldan að klæða sig) og klæða hann úr sokkum í aðra (brjálað góð þjónusta þegar við erum á siðasta snúning) og hann er eitthvað að kvarta yfir því að þurfa að fara í AÐRA sokka en ég heimtaði þetta því ég vildi að hann væri í stíl. Sagði honum enn frekar að það væri mitt hjartans mál að þegar hann færi í afmæli þá væri hann fínn - og í stíl. Útskýrði nánar með því að segja að hann yrði að láta þetta eftir mér af því að hann ætti nú enga systur sem ég gæti klætt í kjóla og dúllerí í stíl. Sá að hann stoppaði aðeins við þegar ég sagði þetta. Seinna um daginn var hann að leika sér í hermannnó og líklegast að bjarga fólki úr háska - því það er það sem hermenn gera á okkar heimili - og kallaði á mig rosa stoltur: Mamma, sjáðu - hermannabrúsinn og hermannavasaljósið eru ALVEG Í STÍL!
Í morgun vildi hann ekki fara á leikskólann. Skiljanlega - hann hefur oft sagt að það sé miklu betra að vera heima því á leikskólanum þurfi hann að gera allt sjálfur. Ég minnti hann á að hann hafi nú skemmt sér mjög vel í síðustu viku í leikskólanum og þá sagði hann voða mjúkur.. mamma ég sagði það bara til að gleðja þig! Einmitt það já. Hann fór svo nokkuð sáttur og ætlar líklegast að leika í hermannó og Ofurmenni í allan dag.
Hann reynir að gera öðrum til geðs líka. Þegar hann talar við pabba minn þá reynir hann ýmis brögð til að fá hann til að leika við sig. Um daginn heyrði ég í honum þegar þeir voru að tala saman í síma og KS segir biðjandi: afi, þú mátt vera kóngurinn ef þú kemur að leika við mig og ég skal vera allir riddararnir þínir. Þetta var greinilega ekki að virka og þá sagði hann - ok afi minn - þú kemur bara þegar þú hefur tíma :-) Kurteis og góður drengur...
Hann á þó sín móment - hann getur verið aðeins OF opinn og segir bara það sem honum dettur í hug. Í húsdýragarðinum um helgina náðum við þegar verið var að gefa selunum og ung stúlka var að segja áhorfendum allt um sela og meira til og þá segir KS aðeins of hátt fyrir minn smekk: Hvenær hættir hún þessu blaðri?
Þessa dagana spáir hann nokkuð mikið í dauðann og alltaf þegar einhver á afmæli og talan er hærri en kannski 50 þá spyr KS: Er hann/hún þá alveg að fara að deyja? Skárra samt þegar hann spyr okkur heldur en fólkið sjálft. Úff.
Svona er sonur minn í hnotskurn. Algjör gaur og krútt í bland!
25. ágúst 2007
Hugmyndir
Við Gummi fáum oft brjálæðislega góðar hugmyndir rétt áður en við erum að fara að sofa og förum svo ekki að sofa fyrr en allt of seint. Pælum og plönum út í hið óendanlega og erumm ótrúlega spennt. Daginn eftir er uppeldið og heimilisrekstur sem tekur við og hugmyndirnar gleymast kannski ekki en þær hafa algjörlega tapað sínum upphaflega sjarma. Svoldið svona reality bites dæmi. Við gerum okkur grein fyrir að þó við getum gert allt sem okkur langar þá getum við ekki gert allt sem okkur langar. En samt skemmtileg móment - þessi brjálæðislegu hugmyndamóment!

24. ágúst 2007
Menn
Við vinkonurnar erum að horfa á Men in Trees þessa dagana. Veit ekki af hverju ég missti af þessum þáttum í vetur á Stöð 2 en þeir eru svo þokkalega að klikka á því að markaðssetja þessa skemmtilegu girly þætti sem er svona SATC, Everwood og hvað hétu aftur þættirnir um skrítna fólkið í Alaska? Er alveg að fíla þá og þakka vinkonum minum kærlega fyrir ábendinguna. Maður getur nefnilega orðið nett crazy að vera heima með snúllanum allan daginn. Hann kinkar reyndar kolli á réttum stöðum og hristir hausinn alvarlegur á svip þegar við á og hlær stundum líka þegar ég reyni að vera fyndin. Best er að hann fílar sömu tónlist og ég en Gummi segir að ég verði að passa mig á því... strákar eiga ekki að fíla stelpurokk! En við hlustum samt á Amy, Alanis, Mika og mixum það upp með RHCP og Nirvana - svona til að jafna áhrifin. Það er sko mikið stuð hérna stundum!
En ég verð samt nett klikk á að tala ekki við neinn. Svona flashback frá því að ég var heima með hann síðast og skrapp á kaffihús eftir nokkurra vikna einangrun, kallaði á þjóninn og það var held ég hið sívinsæla og klassíska gúggúuu sem ég reyndi að ná athygli hans með. A bit embarrassing indeed.

22. ágúst 2007
Ofnæmismál
Ein ástæða til að flytja í skólahverfið hans Gumma er ofnæmi KS. Hann byrjar í skóla næsta haust og Gummi var að heyra í dag af skólum sem taka mjög illa í svona "vesen". Sumir hafa engan skilning og álíta að foreldrar sé að kalla á meiri þjónustu og jafnvel athygli út á ofnæmið - sem er NB LÍFSHÆTTULEGT. Það voru ánægðir foreldrar barns með bráðaofnæmi fyrir hnetum sem kvöddu Gumma í dag. Við getum rétt ímyndað okkur hvað það skiptir miklu máli að skólinn taki vel á þessu og að barnið og foreldrar séu öruggir þegar barnið er annars staðar og á ábyrgð annara.
Í dag erum við mjög sátt og erum þakklát fyrir þann góða skilning sem starfsfólkið og foreldrar á Kópasteini sýnir Kjartani Sveini. En ég get ímyndað mér að maður yrði MJÖG súr ef skilningurinn væri ekki fyrir hendi. Í grunnskólum er annar áhættuþáttur en þá eru krakkarnir oft með nesti og líklegast ekki eins auðvelt að fylgjast með hvað börnin eru með í skólanum og á skólalóðinni. Þetta er samt seinni tíma vandamál og ef KS fer í Gummaskóla þá yrðum við eins örugg og hægt er að verða.
Ég ætla að reyna að hugsa ekki of mikið um þetta enda nóg að þurfa að hafa áhyggjur af leikskólaplássleysinu í RVK og af því hvort BF komist inn bráðum eða ekki.

21. ágúst 2007
Ekki bara Páll Óskar..
Ákvað að kíkja P og jú hann er með puttann á púlsinum. Ekki leiðinlegt að fá svona athygli. Kíkið hingað: http://perezhilton.com/?p=4159. Ohhhhh litli álfurinn.
Ég er með HH á ipodinum og ég er hrifnust af Tomoko eins og P vinur minn. En ég er ekki FAN og ég fór ekki í Salinn. Sé samt eftir því núna. Sucker for celebs - það er ég.

Ahhhhh eitt enn varðandi glápið.
Hef reyndar fylgst með nýjum þætti á Rúv sem var að byrja og heitir Brothers and Sisters - fjölsk.drama - lofar góðu. Gilmore Girls í kvöld... ok ok ég hef alveg verið að glápa smá síðustu vikur en þetta er upptalið núna. Sver það!

Afrek dagsins...
Framkallaði 200+ myndir og fékk þær í gær. Setti í albúm í dag. Þetta er mikið afrek.
Reyndar mínus út af skrappi en það er ekki fallegt þegar göt myndast í albúmum en ég finn einhverja leið og það er ekki eins og ég sé að skrappa mikið. Og verður lítið í vetur. Later samt.
Ég reyni að framkalla á 2-3 mán fresti - eða bara þegar tilboð er í gangi hjá HPetersen. Þar sem ég er myndasjúk er þetta ágæt regla. Jammmmm.

20. ágúst 2007
TV-kvöldið
Hlakka til að sjá nýjasta unglingadramað sem er frumsýnt á Skjáeinum í kvöld. Hef ekki horft á tv í mjög langan tíma og sakna þess að hafa eitthvað skemmtilegt til að hlakka til, eitthvað einfalt og með hæfilega miklu innihaldi. Það er nauðsynlegt að hafa a.m.k einn góðan þátt í dagskrá vikunnar. Í vetur verður líka Betty, Greys, Lost og DH á dagskrá hjá mér. Spurning hvort það bætist við nýir þættir. OC, OTH og Veronica Mars eru ekki lengur á dagskrá í USA. Ekki sátt með VM - en hitt mátti alveg fjúka. Er reyndar ekki viss með OTH en ég horfði á afskaplega dularfullan lokaþátt og ég vona að það hafi verið endalok að eilífu. Jamm.
Var ég búin að ítreka ást mína á nýja gerseminu.... Þetta er 100% ást.

19. ágúst 2007
Þakka gríðarlega góða þátttöku í tölvuákvörðunarferlinu, þeim sem gáfu góð ráð og þeir 3 sem tóku þátt í skoðanakönnuninni. Takk takk. Ákvörðun var tekin í gær og það var makkarinn sem varð fyrir valinu, skínandi hvítur, einfaldur, flottur og traustur. Nú kemur í ljós hvernig gengur en ég bind miklar vonir við nýja besta vin minn. Makkarahópurinn, Þóra og fjölsk., mamma og fjölsk. mín hennar megin hafði þónokkuð um þetta að segja. Þeirra vegna vona ég að allt gangi vel (nei auðvitað djók). So far so good. Gummi er búinn að sitja fyrir framan tölvuna og gretta sig og hlæja í aðeins of langan tíma... hann hefur mjög gaman af ibooth og nú skilja þeir sem eru svo töff og kúl að vera með Mac eins og ég múhaha.
Ég er dauð eftir daginn - fór í krílahitting, beint á eftir í krílabíó, í krílaKringluferð.. nei ok tölvuinnkaupaferð sem fór ekki vel í krílin og börnin voru sofnuð rétt rúmlega átta sem hefur ekki gerst í mjöööööög langan tíma. Þá fékk ég líka frið til að tala óáreitt við Önnu mína og núna er ég alvarlega að hugsa um að fara að sofa.
Hef samt ekkert að lesa. Undanfarið hef ég verið mjög dugleg að lesa uppi í rúmi. Las Morðið í Drekkingarhyl - ein af Stellu Blómkvist bókunum og hafði mjög gaman að. Var að klára The Thirteenth Tale sem mér fannst líka mjög góð og því dreg ég þá ályktun að slæmubókatímabilinu mínu sé að ljúka og nú taki við eintóm gleði - og góðar og skemmtilegar bækur. Góða tillögur vel þegnar!
Góða nótt.

18. ágúst 2007
Helgarblogg
Í gær fylgdist ég með tónleikum Kaupþings og Einars Bárða. Greinilega góð stemning og ég veit að strákarnir mínir skemmtu sér vel en þeir voru komnir heim frekar snemma. Við Gummi sátum svo saman og hneyksluðumst á Stuðmönnum en dáðumst að Bubba. Leiðinlegt að KS var sofnaður - Bubbi í herklæðnaði hefði sko fallið í kramið hjá syni mínum.
Er enn að spá í tölvur. Akkúrat núna er Makkarinn með forystu. Ef til vill verður hægt að ganga frá kaupum á morgun...
Pirringur dagsins: Þegar útvarpsmenn segja á morguM. Næstum jafn pirrandi og mig hlakkar.

15. ágúst 2007
Þreytt
Ég er þreytt eftir daginn sem var ekki sá besti. Nokkrar misgóðar ástæður en t.d. fór ég upp og niður stigann (3 og hálf hæð) 8 sinnum í dag - stundum með poka og alltaf með 11 kg gleðiboltann. Ég tók aðeins til, setti í þvottavél, fór í Strax, fór í Smáralind, sótti KS, fór með hann til vinar síns, heimsóttum skólann hans Gumma, eldaði, tók til, gekk frá og skipti á nokkrum bleyjum. Ætla að lesa aðeins í bók vikunnar - The Thirteenth Tale - og sofa svo vel í nótt. Morgundagurinn verður líklega svipaður en ég vona samt að hann verði betri. Eiginlega ekki annað hægt.
(þegar ég las þetta yfir aftur sá ég að ég tek fram að ég tók til 2x - þetta er næstum því rétt en eins og allar húsmæður/feður vita þá er ekkert til sem heitir að taka til 2x - maður er ALLTAF að taka til...en gott að taka það fram a.m.k tvisvar.)

14. ágúst 2007
Hvernig tölvu?
Það er að mörgu að huga fyrir skólann í haust. Ný föt, nýjar bækur, klipping/strípur, flott skipulagsdót og fartölva. Við höfum bara verið með borðtölvu síðustu ár en ég neita að fara tölvulaus í skólann. Finnst það vera ávísun á einelti og vanlíðan og það er ekki góð byrjun. Nú vandast málið því það er ekki nóg að vera með tölvu heldur vil ég auðvitað vera með FLOTTA tölvu. Makkarinn er alltaf flottur en ég er alveg með í maganum af spenningi yfir nýju Dell fartölvunum sem hægt er að fá í ýmsum litum. Veit ekki um kosti eða galla þessara gripa en það hlýtur að vera allt í besta með þessar fallegur fínu tölvur. Þarf bara að komast á netið, getað glósað og unnið verkefnin sómasamlega en mikilvægast er að hún sé FLOTT og ekki mjög þung. Þá er bara spurning - liturinn.. er það bleik? Nei ég er með bleikan síma og það er alveg nóg. Blá er svoldið flott en finnst samt eins og ég verði að vera meira girly. Þá er það fjólublá eða rauð? Rauður hefur lengi verið uppáhaldsliturinn minn og ég á rauða kápu... svört er líka kúl og já hvít (en ég veit ekki útaf strákunum - fingraför strax). Ætla að hugsa þetta vel á meðan ég tek til í fataskápnum mínum. Tölvan er nýjasti nauðsynlegi fylgihluturinn og verður því að passa við það sem ég á!

13. ágúst 2007
The little things..
Hápunktur dagsins var þegar ég pantaði tíma í klippingu.
Og jú það var gaman úti að leika í dag í góða veðrinu og ferðin í IKEA gekk vonum framar. En samt tilhlökkunin á mjög tímabærri klipp/stríp er ólýsanleg.

11. ágúst 2007
Aftur heim
Eins og margir aðrir prófaði ég annað bloggsvæði en hef ákveðið að snúa aftur á gamlar, góðar og kunnuglegar slóðir. Moggabloggið var ágætt en það pirraði mig líka mjög, sérstaklega leiðinda athugasemdir fólks, mórallinn og eins var ég aldrei algjörlega sátt við kerfið. Ég held örugglega áfram að blogga um fréttir og slúður og um fjölskyldulífið og lífið almennt. Veit ekki í hversu miklu stuði ég verð næstu vikur en það er nóg að gera og ætti að vera frá mörgu að segja.
Eftir að ég hætti að vinna hef ég verið heima með strákana en Gummi var að byrja í nýju vinnunni sinni :-) Það er brjálað stuð á heimilinu og ekki margar rólegar stundir. Ég sakna vinnunnar og sérstaklega vinnufélaganna.... þeirra saknaði ég strax mikið! Skrítið að hætta og vera heima - þó ekki sé langt síðan ég var heimavinnandi en núna er stemningin allt öðruvísi. Bjarki stoppar ekki og er algjört yndi en líka hávær og krefjandi (já þetta breyttist bara meðan ég var að vinna en Gummi heima... skrítið :-)) Hann er að fá meira vit og núna er það súperegóið sem skín í gegn og smá misskilningur um eigin hæfni og getu. Litla krúttið heldur að hann geti allt og vill gera allt. Þegar hann er alveg að gera mig gráhærða á KS það til að horfa á mig og segja svo ohhh mamma hann er bara svo SÆTUR.
KS byrjar aftur á leikskólanum á þriðjudaginn en hann er búinn að vera í 6 vikna sumarfríi í sumar. Bjarki Freyr vonar að hann fái pláss sem fyrst á Sólgarði þannig að mamman geti lært og staðið sig vel í náminu. Hann er næstur inn.. hvað sem það svo þýðir. Við vonum það besta.
Jæja þar með er bloggi dagsins lokið. Góðar stundir.

Subscribe to:
Posts (Atom)
Blog Archive
-
►
2009
(42)
-
►
nóvember
(8)
- Dagur 3 Er ekki alveg að meika þetta núna. Er yfi...
- Dagur 2 Þetta gengur ótrúlega vel. Líf án FBook e...
- Dagurinn er alveg að verða búinn. Ég er búin að si...
- Fyrsti dagur í FB leysi gengur vonum framar. Klukk...
- Án facebook í fimm daga þar sem ég hef svo sjúkle...
- Meistara-taktar Önnur helgi að líða. Þessi fór í ...
- Endalaus pirringur Við Anna sátum í kaffi í Hámu ...
- Klapp á bak Þessi vika var alveg hreint mögnuð. É...
-
►
september
(6)
- Hvurslags eiginlega rugl er þetta? Er að reyna að...
- Kristilegt uppeldi Ég reyndi með KS. Pabbi reyndi...
- Hjóladagur fjölskyldunnar var haldinn hátíðlegur ...
- Skemmtilegur leikur Við fjölsk. þolum ekki þegar b...
- Shit hvað ég er í miklu stuði núna... vúhúu. Super...
- Er enn ekki komin með leið á bloggum. Á enn mín up...
-
►
nóvember
(8)
-
►
2008
(174)
-
►
desember
(14)
- Shopping og skemmtun í Dene í feb/mars
- Fjölskyldan í byrjun árs.
- Árið Topp 10 komment hjá KS 1. Mamma (eftir að é...
- Árið Topp 5 uppáhalds tónlist á Íslandi 1. Múgse...
- Árið Topp 5 fólk og atburðir erlendis 1. Barack ...
- Árið! Topp 10 persónulegt 1. Eignaðist lítinn fr...
- Já já.. ég er bara mest hræddur um að það verði ek...
- í skóginum stóðu kofar tveir Sátu við gluggann árn...
-
►
desember
(14)
-
▼
2007
(80)
-
▼
ágúst
(17)
- Loksins létu þau mig í friði Í dag fór ég í skóla...
- Leikskólastrákur Þessi litli gaur er kominn með ...
- Maður reynir að gera móður sinni til geðs þegar m...
- Hugmyndir Við Gummi fáum oft brjálæðislega góðar ...
- Menn Við vinkonurnar erum að horfa á Men in Trees...
- Ofnæmismál Ein ástæða til að flytja í skólahverfi...
- Ekki bara Páll Óskar.. Ákvað að kíkja P og jú han...
- Ahhhhh eitt enn varðandi glápið. Hef reyndar fylgs...
- Afrek dagsins... Framkallaði 200+ myndir og fékk ...
- TV-kvöldið Hlakka til að sjá nýjasta unglingadrama...
- Þakka gríðarlega góða þátttöku í tölvuákvörðunarfe...
- Skoðanakönnun Hjálpið mér!
- Helgarblogg Í gær fylgdist ég með tónleikum Kaupþ...
- Þreytt Ég er þreytt eftir daginn sem var ekki sá b...
- Hvernig tölvu? Það er að mörgu að huga fyrir skóla...
- The little things.. Hápunktur dagsins var þegar ég...
- Aftur heim Eins og margir aðrir prófaði ég annað b...
-
▼
ágúst
(17)