31. maí 2006

Zara í Kringluna
Sá í dag að Zara opnar bráðum í Kringl - líklegast í plássinu sem NEXT var í. Þetta eru góðar fréttir. Maður bíður auðvitað alltaf og vonar að alvöru H og M líti dagsins ljós en á meðan er fínt að Zara sé að bætast við í Kringl. Jebbs.
Mikill áhugi
Fólk er alltaf að spyrja hvernig gengur með hljóðmönina enda vita þeir í kringum um mig hversu mikið hjartans mál þetta er mér. Það gengur þokkalega. Flestar spýtur eru negldar en það er samt eins og eitthvað vanti upp á. Það verður mikill léttir þegar ég hætti að vinna og get fylgst með verkefninu allan daginn.

29. maí 2006

X-Kristbjörg
Þokkalega sem Kristbjörg er að slá í gegn hjá kjósendum í Kópavogi. Allavega hjá einum óléttum og þreyttum kjósanda... :-) Snillingur.
Ánægja með helgina
Það er alveg frábært hvað allir eru ánægðir með sigra og varnarsigra helgarinnar.
Við vöknuðum kl. 6 í morgun (ekki viljandi) og eftir að allt var orðið klárt, allir greiddir, klæddir og saddir þá kveiktum við á NFS. Heimir og Gulli Helga voru mjög ánægðir með kosningavöku NFS.
Hins vegar virðast þeir hafa áhyggjur af táningum sínum (ég geri ráð fyrir að þeir eða annar þeirra eigi ungling miðað við innlifunina og einlægnina sem skein úr augunum á þeim og túlkun þeirra) en þeir fengu sála í viðtal til að ræða um ástir og ástarsorgir unglinga. Sálinn fékk alveg að tala en þeir höfðu sterkar skoðanir og túlkuðu orð hennar stundum þannig að ég var alveg hissa. Þeir virðast samt vera alveg að gera sitt besta með unglingana sína. Góðir pabbar á NFS.

28. maí 2006

Við fjölskyldan ákváðum að kíkja á Cafe París í dag og taka út breytingarnar á staðnum. Ég er mjög ánægð með breytingarnar. Sérstaklega er ég ánægð með að þurfa ekki að troðast niður stigann til að fara á snyrtinguna. Þegar við komum niður í bæ sáum við strax fólk sem við þekktum. Ég sá Guffu og fjölsk á röltinu (náði samt ekki að tala við þau) og svo sáum við Gulla og Styrmi í eltingarleik á Austurvelli - með Heru og Birgi Stein. Það voru greinilega fleiri á því að kíkja í bæinn í dag. Konur þeirra voru svo inni á Cafe París. Eftir að hafa smakkað aðeins á nýju réttunum (samlokan mín ekki í boði lengur og ekki heldur quesidillas sem ég fékk mér líka stundum) og spjallað fóru allir niður á tjörn og þá hittum við Obbu og Ágúst með Kristrúnu krútt. Ég bjóst alveg við að hitta þau en þetta er svoldið eins og þegar maður fór á barina í gamla daga - þá gat maður verið nokk viss um að hitta félaga hér og þar. Núna er það annaðhvort á Austurvelli eða við Tjörnina á daginn um helgar! Eða hugsum við vinkonurnar bara svona svakalega eins?
Hvenær verður svo byltingin?
Ég bíð spennt. En nei það er ekki búið að klára hljóðmönina. Í gær fóru þeir að saga ofan af henni.
Annars á ég erfitt með að trúa að kosningarnar séu búnar. Maðurinn minn er reyndar að ryksuga - og er heima - og er afslappaður þannig að jú - þetta er búið! Vei. En nei kannski ekki vei því okkar maður Samúel Örn fór ekki inn. Við kennum auðvitað bara veðrinu um, og sjálfselskum Sjálfstæðisflokknum, vondum vinstri öflum og heiminum öllum fyrir að vera stanslaust að reyna að eyðileggja fyrir Framsókn sem á þetta ekki skilið.

24. maí 2006

Kosningar í Kópavogi
hafa gefið okkur á Ásbraut langþráða hljóðmön. Það voru kappræður milli frambjóðenda í gær á NFS en merkilegast fannst mér viðtalið við mennina sem eru að byggja hljóðmönina fyrir ofan húsið okkar. Við hjónin glöddumst yfir fréttum af því að verkið gengi vel.. okkur hefur fundist þetta ganga væagast sagt hægt... ca ein spýta negld með súpernaglabyssunni á dag. En þeir voru nokkur öruggir með að verkið ætti að klárast fyrir helgi. Þá verður fagnað á heimili mínu. Svo töluðu þeir um eitthvað plexigler ofan á viðarspýturnar. Það er svo frábært að búa í Kópavogi!

23. maí 2006

Rusl-tv
Síðustu vikur hef ég ekki horft mikið á tv. Oft er ég sofnuð snemma, stundum hef ég annað að gera, um daginn var ég að lesa skemmtilega bók en aðallega finnst mér dagskráin svo hrikalega óspennandi að ég kveiki ekki einu sinni á kassanum. Í staðinn á ég til að tala mikið í símann og hangsa í tölvunni. Kristbjörg bjargaði nokkuð mörgum kvöldum með snilldarsendingu sem yljar mér enn. Er þó búin með skammtinn og farin að þrá næsta.
Kannski finnst fólki þetta afskaplega sorglegar pælingar en það fólk veit bara ekki neitt. Þegar maður er komin rúmar 30 vikur og er þungur og þreyttur þá er þráin fyrir léttmeti gríðarleg. Ég vil bara sitja og hlæja og borða smá nammi kannski líka. Ekki get ég rúntað um bæinn, farið í heimsóknir eða kíkt á kaffihús. Það þarf líka að hugsa um barn 1 sem sefur.
Varðandi ruslið þá nenni ég sjaldan að horfa á nýja þætti. Er komin með í kok á svokölluðum lífsstílsþáttum og taka í gegn þáttum. Ég fæ hroll að hugsa til þess að Jáið sé að byrja aftur. Eina sem ég hef virkilega gaman af er ANTM og endursýningar á Friends. Dettur í alvöru ekkert annað í hug. Stundum horfi ég á Gilmore Girls en það er ekki möst og allt annað pirrar mig bara. Meira að segja Grays anatomy nær ekki að heilla mig og ég hætti með stöð 2 án mikilla vandræða. Sakna reyndar Nágranna smá en ekkert brjál mikið. Skjáreinn lofar stelpudagskrá í sumar og ég gef líklegast einhverjum þáttum séns. Var að fá lánaðar nokkrar skemmtilegar bækur - algjör snilld að þekkja konur með góðan bókasmekk :-) Svo líður að undirbúningi fyrir komu drengsins. Efni í annað og jákvæðara blogg.

22. maí 2006

Skrítið símtal
Drrrrrrring kl. 22.35
GB: Halló
Anna: Hæ þetta er Anna
GB: Hæ hvað segirðu?
Anna: Allt gott. Afsakaðu hvað ég hringi seint.
GB (kl. ekki svoooo margt): Ekkert mál. Eitthvað að frétta?
Spjall um hitt og þetta í ca 5 mín.
Anna: En hvað er með Ásdísi?
GB (hissa): Hmmmm Ásdísi.
Anna (hissa líka): Já ég var að fá SMS frá þér.
GB (dularfull hún Anna): Bíddu ha? Er það ekki bara eitthvað gamalt?
Anna (dularfull hún GB): Neiiiiii.
GB (forvitin): Hvað stendur?
Anna (óþolinmóð): Hæ, nenniru að hringja. Var að tala við Ásdísi...
GB (steinhissa en jú ég var reyndar að tala við Ace... but): Þetta er mjög skrítið. Er ég geðveik eða hvað - man ekki eftir að hafa sent...
Anna (bullar ekki um SMS): Jú þetta er úr þínu númeri.
GB (sér ljósið): Já JÁ - Gummi var með símann minn áðan... og það er sem sagt bara allt fínt að frétta af Ace... og Gummi er í vooooooondum málum.
Anna og GB: hlátur hlátur!
Steikt en skemmtilegt símtal þökk sé ástkærum eiginmanni mínum. Og við ræddum líka um hvar Anna var stödd, hvað hún var að gera í dag og í gær og hvað ég var að gera í gær - áður en við komum okkur að þessu blessaða SMS... gaman að þessu.

18. maí 2006

Draumurinn úti..
Nei ég bjóst ekki við að við kæmumst áfram. Þetta júrótrash hefur greinilega ekki góðan húmor og þetta var í sannleika sagt ekki gott kvöld hjá Sylvíu Nótt. Fannst óþarfi hjá liðinu að púa svona á hana... en er þá ekki bara Finnland málið?
Öl er böl
Verð sannfærðari um það með hverju árinu sem líður. Fréttir vikunnar sannfærðu mig enn frekar.

16. maí 2006

Læknar og ég
náum oftast ekki vel saman. Fór til læknis í morgun og skildi ekkert hvað hann var að segja. Ekki að hann talaði eitthvað flókið læknamál heldur einfaldlega talaði hann hratt og óskýrt. Heimsóknin var þó furðugóð miðað við að ég skildi eiginlega ekkert en hann skildi mig held ég og það er fyrir mestu. Hann spurði mig hvort ég væri alltaf svona hvít (þetta fannst Gumma rosalega fyndið)... og svo kom honum á óvart þegar ég sagði að ég fengi góðan skilning og stuðning á vinnustaðnum. Greinilega ekki alltaf málið með óléttar konur með grindarves. Ég veit ég er einstaklega heppin með boss og samstarfskonur og ég er rosalega þakklát og glöð. Svo glöð að ég gæti grátið - eins og óléttri konu sæmir!

12. maí 2006

ANTM
Ætlaði að vera búin að blogga aðeins um ANTM. Tyra er söm við sig og ég held við megum eiga von á góðu drama í ár. Twiggy er voða góð og eiginlega allt of góð. Lesbíu twistið er áhugavert en lesbían er ekki meira módel en ég....

9. maí 2006

Bumbumót
Er að spá í að láta taka plastmót af bumbunni af mér og hengja upp á vegg.

Djók. En það eru í alvöru til konur sem finnst þetta geggjuð hugmynd. En ég gæti reyndar verið duglegri að taka myndir af bumbos. Gummi tók eina um daginn þar sem KS er að knúsa bumbunna og það er eins og hann sé að knúsa blöðru.. blöðruhval. Verð að muna að stækka þá mynd.
Vissuð þið að það er hægt að svitna á augnlokunum?
Ýmsar uppgötvanir hjá preggó þessa dagana. Svitse.

5. maí 2006

Úff
hvað ég er glöð að það er föstudagur. Nóg að gera um helgina en ég ætla að samt að reyna að hvíla mig. Helgarnar mættu líka vera aðeins lengri. Sérstaklega þegar spáð er 16 stiga hita á mánudag.

Gummi er að framsóknast og var með KS með sér í dag. KS segir að honum finnist GAMAN í Framsóknarflokknum og segir það af slíkri innlifun að ég er nokkuð viss að heyrist sjaldan annars staðar. Hann hljóp til mín þegar ég kom inn á kosningaskrifstofuna og spurði svo alla nærstadda hvort þeir héldu að ég væri feit - og útskýrði svo spekingslega að ég væri það ekki heldur væri ég með barn í maganum. Svo knúsaði hann litla bróður í bumbunni. Hápunktur dagsins. Fyrir utan þetta að spyrja alla hvað þeim fannst um bumbuna.
Bumban er hins vegar mikið til umræðu almennt. Fólk er oftast ofboðslega nice og segir mér að ég sé nú orðin myndarleg, að kúlan hafi stækkað síðan síðast, að bumban sé stór, fín, passleg, framstæð, lág, kringlótt, strákaleg, stelpuleg, pen, sumir bæta við að ég hafi ekki fitnað mikið sjálf (einmitt það já) og svo fæ ég samúðarkomment og spurningar um hvort ég sé ekki þreytt og hvenær ég ætli að hætta að vinna. Athugasemdir og spurningar trufla mig lítið sem ekkert og mér finnst alveg í lagi að fólk í kringum mig strjúki aðeins magann. Mikið er ég samt í alvöru talað orðin ólétt. Mér finnst ég vera að springa og springa úr hita. Ætli ég geti fengið hitavottorð þar sem ég fæ að vera heima skv. læknisráði þegar hitinn fer yfir 10 gráður?
Sá Friends í gær og þar var Rachel komin framyfir. Ég sat með fætur upp í loft og fylgdist með bjúgnum á ökklunum hjaðna en sá þá varla fyrir bumbunni - á meðan Rachel spókaði sig um í einhvers konar magabol (reyndar ekki slæm hugmynd í hitanum) og leit auðvitað EKKERT út fyrir að vera kona gengin 9 mánuði. Meira svona sæt ólétt gella á leið á kaffihús. Og að hugsa til þess að enn séu rúmlega 2 mán. til stefnu. Svitna enn frekar við tilhugsunina.
Jæja farin í háttinn enda klukkan alveg að verða of mikið fyrir mig og ekkert í telly.

3. maí 2006

Tiltekt lokið
í bili. Tók ótrúlega stutta stund. Undir bunkanum kom í ljós diskur með brúðarmyndunum okkar. Hef saknað hans í nokkra mánuði. Kannski eru bíllyklar hérna einhvers staðar og týnda bókasafnsbókin og fleira sem hefur horfið síðustu vikur. Kannski er tiltektar þörf á fleiri stöðum í lífi mínu. Ætla að spyrja lærlinginn.
Ofurnemandinn

Fyrsti dagur hjá lærlingnum mínum í gær. Hún er eldklár og ofurskipulögð og var því ekki sátt við óreiðuna á borðinu mínu. Gamlir minnismiðar fengu að fjúka enda löngu gleymdir og næst segir hún mér örugglega að henda dagatalinu frá 2005 en það þjónar sínum tilgangi. Tilgangurinn er óljós en er alveg til. Hún krafðist þess að kókdósin sem hefur staðið í nokkrar vikur á borðinu yrði hent en ég sagði að það þyrfti fyrst að tæma hana - hún var ca botnfull - nema hvað að hún var orðin alveg tóm. Uppgufun einhvers konar hefur átt sér stað mér til mikillar gleði. Starfið er fjölbreytt en ég vissi ekki að tilraunastarfsemi væri hluti af því og ekki lærlingurinn heldur. Okkur fannst þetta mjög skemmtilegt. Næst á ég að ráðast á annan bunka á borðinu sem fengið hefur að standa óhreyfður í ca.... 6 mánuði. Það verður stuð. Ég ætla að koma ofurnemandanum á óvart og vera búin að þessu þegar hún kemur.

Hvenær gerðist það að kennarinn fór að gera allt til að gera lærlingnum til geðs? Jú þegar lærlingurinn er ofurnemandi og besta vinkona kennarans :-)

Blog Archive

Um mig