28. febrúar 2006

Saltkjöt og baunir... nei takk
Kjartan Sveinn er með ofnæmi fyrir baunum og því er þetta einn af þessum dögum. Verðum fegin þegar hádegismaturinn er búinn.

25. febrúar 2006

Laugardagur
Í gær fórum við Anna kr. og Þóra saman í Baðhúsið í laugina og höfðum það mjög nice. Ég var þreytt eftir erfiða viku og busy dag. Ég beilaði á ÍMARK vegna þreytu - stundum er ágætt að þekkja sín takmörk.

Ég kom heim rétt til að skella kossi á drenginn minn og hann sagði mér allt um hvað hann ætlaði að gera í sumar þegar litla barnið kæmi. Sverrir kom og horfði með okkur á Idol. Mér fannst Ína alveg frábær og eiginlega fannst mér þetta kvöld svoldið kósý. Við eigum nokkra diska með dægurlögum frá þessum tíma sem stílað var inn á en hlustum allt of sjaldan á. Þessi lög eru mjög ljúf.

Sofnaði áður en úrslitin voru tilkynnt. Ég var mjög sátt við að þau og var að vona að Eiríkur myndi detta út. Á engin sérstök uppáhalds.. en líkar vel við lífsglöðu og einægu Bríet Sunnu, Ína hefur þvílíkt blómstrað, Ingó er sérstakur og spes.

Gummi er að útskrifast. Við KS ætlum að kíkja og reyna að ná því þegar hann tekur við skírteininu. Engin veisluhöld samt en vonandi seinna. Fínn dagur framundan :-)

23. febrúar 2006

Skemmtilegur mars
Óendanlega gaman í mars. Vorið kemur (já bjarstýn), ég á afmæli, förum í sónar, förum á árshátíð, tjillum í bústað, tengdó koma í bæinn sem þýðir að við hjónin getum, án mikillar fyrirhafnar, kannski farið í bíó.. eða út að borða jebbs. En síðast en ekki síst byrja frábærustu þættir í heimi aftur. Kroniken 3. sería. Hlakka alveg mikið til :-)

22. febrúar 2006

Við tökum ykkur í bakaríið
og fleiri frasar fljúga hérna um á skrifstofunni. Nei það er ekki samkeppni innan deildarinnar um sölu á auglýsingum. Þetta eru karlmennirnir á deildinni sem tala svona um liðin sín - eins og þeir séu í liðunum, þjálfarar liðsins eða ég veit ekki hvað. Finnst líka bjánalegt þegar fólk talar um sig í fleirtölu eða 3. pers. Bjánar! Nei nei þeir lifa sig bara svoldið mikið inn í þetta.... Þetta er heimur sem ég ætla ekki einu sinni að REYNA að skilja.
Skökk
Ég sit skökk allan daginn enda aðstaðan hér ekki til fyrirmyndar. Er það þá skrítið að ég geti ekki hreyft mig þegar heim er komið? Damnnnn.

20. febrúar 2006

Úrslit helgarinnar
nokkuð góð að mínu mati. Sátt við Silvíu og var ekki að fíla Elfu Björk þannig að þetta er allt hið besta mál.

Ef erlendir spekingar spá SN falli þá held ég að það sé líka í góðu - þeir sömu spáðu Selmu sigri.. segir allt sem segja þarf.

Gummi átti setningu helgarinnar: "Ég hef ótrúlega fordóma gegn eineggja tvíburum sem búa saman allt sitt líf."
Ég var veik - rúmliggjandi en naut þess að horfa á brettabrun, skíðagöngu og bið eftir bruni. Ég var í alvöru orðin þokkalega spennt yfir skíðagöngu - sérstaklega var boðgangan full af fjöri. Í öllum þessu var samt mest stuð þegar einhver datt... eða eitthvað fight var í gangi. Magnaðar þessar vetraríþróttir. Ekki missa af listdansinum annað kvöld. Í gærkvöldi duttu nokkur pör. Crazy fun.

15. febrúar 2006

Ekki minn dagur
Fór í sundið. Var komin úr þegar ég fattaði að ég gleymdi sundbolnum. Auðvitað pirrandi en meira pirrandi að Þóra var búin að bjóða sér með þeim mæðgum í lunch í Kringl. Var meira að segja að spá í að skrópa. En sem sagt endaði með ekkert sund og ekkert lunch.

Fór svo hérna bakvið í smá pásu. Sá þá að það er búið að hækka gosið í sjálfsalanum í 150 kr. Var áður yndislegur 100 kall.

Dagurinn getur því ekki versnað mjög.
Slúður!
Tom og Kate að hætta saman?

Jiminn hvað það er allt að hrynja þarna í Hollywood.
Magnað
Mér finnst ótrúlega magnað að fylgjast með þroskaferli fósturs. Var að skoða svokallað meðgöngudagatal á doktor.is og þar segir að barnið sé núna 115 gr. en eftir mánuð verður krílið meira en 450 gr. Þegar ég var ófrísk síðast pældi ég bara í hversu langt barnið væri.. og bar það við reglustikuna. En já núna er krílið..en næstum 30 sm í fullri hæð frá hvirfli til ilja, ef það gæti teygt úr sér.

Þetta voru óléttuupplýsingar dagsins. Fann reyndar líka 2 greinileg pot eða spörk í gær. Kallaði á Gumma en hann var að sinna KS. Svoldið öðruvísi núna en síðast.. smá... svoldið... pínku ponsu.

Eitt enn - fór í Hagkaup af því ég er komin með ógeð nú þegar á einu buxunum mínum. Nýkomin óléttuföt og jiminn hvað mér fannst þau HRIKALEGA ömurleg. Verð pirruð á að hugsa um það. Óléttar konur umturnast þegar á þessu ferli stendur, verða smekklausar og elska væmin, víð og helst munstruð föt. Hell no!

14. febrúar 2006

Ólympíublaaa
Ætla að horfa á listhlaupið í kvöld. Er mjög spennt.
Hvað er annars málið með Íslendingana okkar á skíðum. Virðist vera nóg að bruna niður án þess að detta þá er maður nokkuð stoltur af liðinu. Ahhh litla Ísland.

13. febrúar 2006

Smá sjokk
Um daginn var ég í meðgöngusundi.. og þá var mér boðið að vera í einhverri 30+ grúbbu og ég bara hmmm en ég er BARA 28 ára (Þóra benti mér seinna á að ég er reyndar enn BARA 27 ára). Á meðan ég flaut um laugina strjúkandi litlu kúluna mína hugsaði ég um aldur. Ég lendi allt of oft í að fólk heldur að ég sé eldri en ég er. Pirrandi. Hef líka lent í að vera yngri. Gaman. Fínt að vera 25 ára.

Horfði svo á leiðinlegan idol þátt. Þau voru ekki að standa sig vel. Þegar leið á þáttinn hætti ég að hlusta á þau og fór meira að spá í hvenær þau voru fædd. Ein fædd árið sem fyrsta Sálarplatan kom út og svo videre. Reyndar veit ég að Hildur Vala er yngri en ég og Britney Spears líka og hún er kannski að fara að eignast sitt annað barn. Madonna er eldri. Æi allt í einu er ég bara damn old. Samt ekki þrítug. Mér finnst fólk sem er þrítugt ekki gamalt. Mér finnst ÉG bara vera gömul og eldast allt of hratt.

Besta ráðið við þessari aldurshræðslu er að horfa á Sirkus og nokkra vel valda íslenska djammþætti. Þá getur maður ekki annað en verið ánægður með aldur sinn og þroska. Ég verð svo fegin að vera ekki á djamminu, fegin að vera ekki brún, fegin að þurfa ekki að umgangast þetta lið, fegin að þurfa ekki að vera í þröngu, stuttu og sýna brjóstin. Ótrúlega fegin.

12. febrúar 2006

1. Fjórir staðir sem ég hef unnið á:
*Kirkjugarðar Reykjavíkur - frábært stuð þegar ég var 17 ára
*Útlendingastofnun með skóla og á sumrin - ekki alveg eins mikið stuð.
*Au-pair í Austurríki. Ótrúlega góð lífsreynsla
*Auglýsingadeild Mbl.

2. Fjórir staðir sem ég hef búið á
*Hólagata 42- Vestmannaeyjum
*Tjarnarból 4 - Seltjarnarnes
*Eggertsgata - paríbúðir
*Eggertsgata 6 - fjölskylduíbúðir

3. Fjórir þættir sem ég fíla
*Sex and the city
*Desperate housewives
*Lost
*Prison Break

4. Fjórir staðir sem ég hef ferðast til
*Kanada Ottawa - fór ein í lest frá Boston þegar ég var 16 ára til að hitta æskuvinkonu mína. Smart.
*Costa del Sol - með Gumma áður en KS varð til.
*London með 10 stelpum þegar ég var 18 ára. Ruuuuugl ferð og ógleymanleg.
*New York með stelpunum í okt. Frábærar stundir með vinkonunum, hlátur og söngur.

5. Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega
*www.kjartansveinn.barnaland.is
*mbl.is
*nokkrar bloggsíður - helst þær sem ég er með tengla á og síður útfrá þeim.
*barnaland.is

6. Fjórar uppáhalds matartegundir
*Kjúklingur
*svartar ólífur
*kotasæla - á allan mat næstum því.
*Cheerios

7.Fjórir diskar sem ég get ekki verið án
*Allt með Bítlunum.
*Hildur Vala - finnst hún æði
*Norah Jones
*Blandaðir diskar heimatilbúnir diskar með lögum sem koma mér alltaf í gott skap.. Dolly, Tainted Love, Little Green Bag, U2, Bubbi, Alanis, Sálin.... og so on og so on.

Ég klukka Ace, Ástu og Svölu...

10. febrúar 2006

Klikk
eða klukk. Kristbjörg klukkaði mig og ég reyni að setja það inn um helgina.
Annars er klikk að gera og ég er klikk í haus. Sá hvaða lög idol keppendur taka og það er alveg við hættumörk í væmni úffff. Grundvallaratriði í svona keppni er að kunna að velja sér lög. Er samt spennt. As always.

Búin að borða heilan pakka af Lakerol-i.. svo er ég hissa ef mér er illt í maganum. Blóðþrýsitngurinn á fös má varla við þessu aukaboosti.

Var í mæðraskoðun í morgun og heyrði "strákalegan" hjarslátt. Algjörlega toppurinn á deginum. Og fréttirnar um að Gummi útskrifast eftir 2 vikur - fékk flotta einkunn fyrir lokarirgerðina sína. Er mjög stolt :-) Fínn dagur semsagt.

6. febrúar 2006

Áfram Silvía Nótt!



Ég verð þokkalega brjál ef hún fær ekki vera með. Hún vinnur þetta pottþét og vá hvað það verður gaman að horfa á júró í ár. Leiðindapúkar verið heima!

3. febrúar 2006

Gestgjafinn
Móðir mín var svo hugulsöm að gefa mér ársáskrift að Gestgjafanum. Hún var mjög æst í að ég færi á netið og á gestgjafavefinn, þar er hægt að "taka út" t.d. egg og hnetur úr uppskriftum - sem hentar okkur einstaklega vel. Ég hef ekki enn gefið mér tíma til að skoða vefinn nógu vel en ég sé að hann er mjög vandaður og góður. Verð að vera duglegri að kíkja þangað. Allavega - fékk blaðið í gær og mér finnst óendanlega gaman að fá blöð/bækur í pósti. Nokkrar uppskriftir voru með hnetu einhverju en það er lítið mál að sleppa þeim - svona oftast. Hnetuvæðingin pirrar mig þó sem aldrei fyrr. Er samt mjög ánægð með blaðið.
Markmið mánaðarins - elda/baka a.m.k 2 úr blaðinu! Læt vita hvernig það gengur. Er svo íhaldssöm að það er oft vandamál - en líka gott útaf KS - vitum hvað er í matnum og erum ekki stress.

Idol í kvöld.. væri ekki upplagt að baka pizzu og prófa uppskrift úr blaðinu? Held það nú!

2. febrúar 2006

Annars er ég mjög hress.. Þrátt fyrir nöldur og neikvæð blogg er ég ekkert nema hress og glöð. Veðrið skemmir ekki! Svo er ég bara svo óendanlega heppin :-)
Frábær fimmtudagur
Þó ég hafi farið mjög seint að sofa er ég hress. Fór á kaffihús og þegar ég kom heim var vibbaógeðs reykingalykt að mér. Er eðlilegt að kl. 22 á miðvikudagskvöldi gangi þjónustfólk um salinn og setji öskubakka á borð þar sem áður var reyklaust svæði? Nei það finnst mér ekki. Held það frumvarp um reykingabann á veitinga og skemmtistöðum sé til umræðu á Alþingi. Mér finnst að auka megi verulega rétt reyklausra.

Blog Archive

Um mig